Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 27
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 18.JÚNÍ2005 27 Elín Hermannsdóttir fann til fæð- ingarþunglynidis skömmu eftir fæðingu Best leið henni í rúminu með breitt upp fyrir höfuð. Hún gat ekki talað við neinn þvl hún skammaðist sln, þvl nýbakaðri móður átti að llða vel og vera hamingjusöm. Lykillinn varað viður- kenna vandann og hætta að loka sig af. Heim kom Elín með góð áform í huga. „Það var mikill léttir að geta talað um þetta við einhvem. Þegar ég var búin að segja fólkinu mínu og manninum hvemig mér virkilega leið var eins og af mér væri tekinn níðþungur baggi. Yfirbragð mitt létt- ist og við það að taka ákvörðun um að vinna í að bæta b'ðan mína var helmingur vandans horfinn," segir Elín og leggur áherslu á að þetta hafi ekki allt komið af sjálfu sér. Hún hafi heilmikið haft fyrir því að ná heilsu. Fór út á meðal fólks „Ég byrjaði á að fara út á meðal fólks en loka mig ekki af. Þá tók ég á til að vakna snemma á morgnana og vinna verkin í stað þess að láta allt bíða. Það bætti síðan bðan mín mik- ið þegar ég var ánægð með sjálfa mig. Fólkið mitt tók þátt í þessu með mér og hvatti mig og stóð með mér. Ég fór að heimsækja afa og ömmu sem eru mikið heima, fór í kirkjuna á mömmumorgna og blandaði geði við aðrar mæður. Maðurinn minn hvatti mig líka og stóð með mér og allt þetta varð til að ég náði mér upp úr þessu þunglyndi sem var að fara með mig og hefði getað endað með því að verða slæmt viðureignar og jafnvel varanlegt," segir hún ánægð með hvað áunnist hefur. Ekki til að skammast sín fyrir Geðlæknirinn var áfram í sam- bandi við Elínu og studdi hana. „Ég gat abtaf hringt og hún fylgdist með mér. Það var mjög gott að fá hjá henni uppörvun og staðfestingu á að ég væri á réttri leið. Með tíman- um náði ég tökum á skömminni og veit núna að þetta er ekki neitt til að skammast sín fyrir. Þetta getur hent allar konur, líka mig, en það var einmitt það sem ég hugsaði: Þetta kemur ekki fyrir mig.“ Elín segist abtaf verða að gæta sín að detta ekki niður aftur. Stundum komi dagar sem séu erfiðari en aðrir en fyrst og síðast verði hún sjálf að vinna að bættri heUsu. Það geri það enginn fyrir hana. „Ég get átt við þetta að stríða eitt- hvað áfiram en nú veit ég hvemig ég á að taka á þessu og vinna mig frá þunglyndinu. Ég valdi þessa leið en ég hefði auðveldlega getað tekið lyf. Það hefði kannski gert mér þetta auð- veldara en á meðan mér gengur vel svona er ég tilbúin til að leggja þessa vinnu á sjálfa mig,“ segir hún glað- lega og tekur fram að hún segi frá þessu í þeirri von að geta hjálpað öðrum konum sem eiga við það sama að etja. Ánægð með lífið Þeirsem , - ----------muna eftir Ingibjörgu úr Tantra-þáttun- um sjá hversu mun betur hún lltur út I dag. Sjálf segist hún hafa mun meira sjálfstraust endahafihún aðeins verið skugginn afsjálfri sér þegar henni leið sem verst. DV-mynd Heiða get rekið hann í burtu." Tantra bjargaði sambandinu Ingibjörg á eldri son frá fyrra hjónabandi. Sá er í dag 27 ára og kominn með sína eigin fjölskyldu. Hún segist aldrei áður hafa uppUfað svona þunglyndi og fann fyrir engu þegar eldri sonurinn fæddist. Eins og margir muna vom Ingi- björg og eigmmaður hennar áberandi á tíma þegar þau tóku þátt í fram- leiðslu á Tantra-sjónvarpsþáttunum sem vom f umsjón Guðjóns Berg- mann. Framleiðsla þáttanna fór fram í kringum 2001 en þá var Ingibjörg einmitt að byrja að vinna í sínum málum. Hún segir þættina hafa hjálp- að sér heilmikið og ekki síst hjálpað þeim hjónum að vinna í sínum mál- um og byggja samband sitt upp aftur. „Þetta var ofsalega góður tími þó hann hafi verið erfiður líka. Tantra breytti alveg heimiUslífinu og okkar sambandi. Við lærðum ákveðna sam- talstækni og tUeinkuðum okkur hana. Ég hafði alltaf verið að leita að söku- dólg og því var þetta stórt skref fyrir mig. Tantra snýst nefnilega ekki bara um kynlíf, það er algjör misskilning- ur, og það er ekkert í þessu sem kall- ast klám. Þetta snýst eingöngu um samskipti hjónanna," segir Ingibjörg ákveðin. Framtíöin björt Ingibjörg segist hafa haft stöðugt samviskubit yfir að hún hugsaði ekki nógu vel um Utla drenginn sinn. Hún segist þó ekki hafa verið áhugalaus gagnvart baminu því hún passaði upp á að hann vanhagaði ekki um neitt. „Ég þjáðist af samviskubitinu og geri enn að vissu leytí. Sálfræðingur- inn lét mig vinna úr þessu því ég kenndi mér um hvað hann var seinn að byrja að tala en í dag veit ég að veikindi eru engum að kenna.“ LitU drengurinn er nú orðinn 7 ára. Hann hefur verið í sumarbúðum síðustu vikuna og Ingibjörg er spennt að fá hann heim. Hún horfir fram á bjarta framtíð enda ákveðin í að leyfa þunglyndinu ekki að ná yfirhöndinni aftur. „Ég og sonurinn erum á leið tíl Danmerkur að heimsækja eldri son minn og fjölskyldu hans en þau eru nýfluttþangaðút." indiana&dv.is Þuríður Ósk Elíasdóttir lokaði sig af í heilt ár og þagði við alla um líðan sína. Fyrir tilviljun fór hún að taka fæðubótarefni og lifnaði við að nýju eins og blóm að vori. Síðan hefur allt geng- ið henni í haginn og hún finnur ekki til þunglyndis lengur. I Þuríður Ósk, hamingjusöm og ánægð Það stóðst ekki væntingar henn- ar að verða móðir og hún fann til dep- urðar,sektarkenndar og skammar. Hún I kynntist fæðubótarefni og það var lausn- in fyrir hana. Slðan hefur hún ekki fundið til þunglyndis eða kviða, hefur aldrei liðið betur, ein með þriggja ára son sinn. Liímii rið eins og tlém sð nri „Mér leið ofsalega vel á með- göngunni en nokkrum dögum eftír að sonur minn fæddist fór ég að finna fyrir fæðingarþunglyndinu. Það stóðst alls ekki þær væntingar sem ég hafði gert mér, að eignast bamið," segir Þuríður sem á þriggja ára son og var Uðlega 22 ára gömul þegar hún eignaðist hann. Áttaði sig fljótt á hvað var að Hún segist fljótlega hafa gert sér grein fyrir að um fæðingarþunglyndi væri að ræða en ekki haft orð á því við neinn. „Mér fannst bðan mín fjarri því sem ég taldi að hún yrði. Ég skammaðist mín fyrir hvemig mér leið og beið eftir að þetta ástand gengi yfir," segir hún og bætir við sektarkenndin yfir því að finna ekki til þeirrar miklu gleði sem aUir hafi talað um að hún ætti að finna, hafi verið einna verst. Þuríður segist hafa komið vel út úr öUum prófum sem lögð vom reglu- lega fyrir hana í tengslum við fæðing- una. „Ég vissi nákvæmlega hvemig ég áttí að svara til að þau kæmu fínt út. Líklega hef ég svarað spurningun- um eins og mér áttí að bða en ekki eins og mér raunverulega leið. En það var aUs ekki vegna þess að ég vildi vera óheiðarleg, heldur var það ómeðvitað," útskýrir hún. Forðaðist fólk Þuríður var á þessiun tíma í sam- búð. Kærastinn hennar vann mikið og tók ekki eftír neinu. Hún segist hafa forðast að vera innan um fólk og þótt best að vera ein heima með drenginn. Henni þóttí erfitt að vinna heimiUsverkin en hún lagði áherslu á að hafa abt sem viðkom drengnum ílagi. „Foreldrar mínir bjuggu útí á landi og áttuðu sig ekki á hvað var að gerast og ég ræddi ekki bðan mína við vinkonur mínar. Þetta fyrsta ár gerði ég btíð fyrir sjálfa mig og dratt- aðist áfram. Hlakkaði ekki til neins og gerði ekki meira en ég komst af með að gera. Enginn sagði neitt við mig eða minntist á að ég þyrftí að gera eitthvað fyrir sjálfa mig." Sonurinn var orðinn rúmlega ársgamaU þegar æskuvinkona Þur- íðar bauð henni á Herbalife-kynn- ingarfund. Hún var ekki búin að sitja fundinn lengi þegar hún áttaði sig á að það sem þar væri á boðstólum væri einmitt það sem hún þyrftí. „Ég keyptí strax á þessum fundi það sem ég þurftí tíl að létta mig og eins tU að vinna á depurð. Ég var ekki búin að taka það lengi þegar ég fann árang- urinn. Líklega ekki nema nokkra daga," segir hún ánægð og hrifin. Fæðubótarefni breytti öllu Frá þessum degi í byrjun árs 2003 hefur líf Þuríðar tekið mUdum stakkaskiptum. Hún sleit skömmu síðar sambandi við barnsföður sinn. Vorið var í nánd og hún Ufnaði öU við. „Eftír nokkrar vikur hafði ég misst átta kíló og útíit mitt var aUt annað. Þá fóru vinkonur mínar og ættingjar að tala um breytinguna á mér. Eg heyrði hvað fólki hafði fund- ist þetta fyrsta ár, en enginn hafði á orði við mig þá að kannski væri ekki aUt í lagi. Utlit mitt gjörbreyttist, ég var ánægð og brosandi, leit miklu betur út og var farin að hugsa betur um mig. Ég get líkt þessu við blóm sem legið hafði í dvala en verið tekið og fært í birtuna og vökvað. Það fór að blómstra. Þannig leið mér," út- skýrir Þuríður glöð og ánægð með heUsu sfna og bðan þessa dagana. Aldrei liðið betur Henni hefur aldrei bðið betur, ,Ég var ekki búin að taka það lengi þegar ég fann árangurinn. Líklega ekki nema nokkra daga segist hlakka tU hvers dags og bða ótrúlega vel. í vor keyptí hún sér íbúð, vinnur aUan daginn og notar tímann á kvöldin tíl að annast við- skiptavini sína sem kaupa hjá henni sama fæðubótarefnið og hjálpaði henni. „Mér finnst æðislegt að ráða mér sjálf og vera ein með syni mín- um. Við höfum það eins og best verður á kosið," segir Þuríður ljóm- andi af hreystí. Þau ráð sem hún getur gefið öðr- um sem eiga við fæðingarþunglyndi að stríða er að loka sig ekki af með vandann. Tala um bðanina við ljós- mæðurnar og aðra sem hægt er að treysta. „Fæðingarþunglyndi er ekki tU að skammast sfn fyrir. Væntíngar manns tU fæðingarinnar og btla bamsins standast ekki aUtaf það sem maður hefur heyrt. Konur upp- lifa þessa hluti ekki endUega aUar á sama hátt. Það er engin ástæða tíl að hafa sektarkennd þó að manni líði ekki eins og hinum. Og konur eiga ekki að skammast sín. Taka á vand- anum strax. Ég veit ekki hvar ég hefði endað ef ég hefði ekki einmitt á þessum tímapunktí kynnst þessu bætiefni og náð heUsu á ný," segir Þuríður sem er nú 26 ára, sjálfri sér næg og hamingjusöm. Frægar með fæðingarþunglyndi Sadie Frost, fyrrverandi eiginkona leikararns Judes Law, þjáðist af fæðingarþunglyndi eftir að hún eignaðist eitt barna sinna. Hún vann sig frá þvl og er heil heilsu nú. Brooke Shields þjáðist afslæmu fæðingarþung- lyndi í kjölfar fæðingar dóttur hennar og Rowans árið 2003. Hún íhugaðijafnvel sjálfsmorð. Leikkon- an segir frá þessu I bókinni Down Came The Rain: My Journey Through Postpartum Depression. Hún er tæplega fertug að aldri nú og hefur lýst þviyfir að hún vilji eignast fleiri börn. Natasha Hamilton, einn meðlima breska stelpna- bandsins Atomic Kitten, þjáðist affæðingarþunglyndi eftir aö hún eignaöistson sinn Josh fyrir fáum misserum. Hún sagði það hafa lýst sér í grátköstum auk þess sem allt hafi farið i taugarnar á henni en hún hefureinnig átt við átröskun að stríða. Leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir sagði frá þvi í við- tali hér ÍDVÍ fyrra að hún hefði verið þjökuð affæðingar- þunglyndi eftir barnsburð fyrir nokkrum árum. Hún eignaðist þá stúlku sem fæddist með mjög sjaldgæfan sjúkdóm, auk þess sem faðir hennar lést um svipað leyti. Ólafía náði sér afþunglyndinu og segir að það hafí styrkt sig frekar en hitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.