Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1949, Blaðsíða 6

Freyr - 01.05.1949, Blaðsíða 6
150 FREYR • við 70—80 hestburði af ha við notkun alhliða áburðar. En það sem vekur sérstaklega eftir- tekt í tilraunum þessum, er, að við á- framhaldandi tilraunir fór wppskeru- rýrnunin ekki vaxandi á fosfórlausu reitunum. Ólafur gefur þá skýringu á þessu merkilega fyrirbæri, að hér sé líklega nægilegur fosfór í jarðveginum en hann sé bara svo fast bundinn, að upplausn hans sé ekki nógu ör til að fullnægja þörfum jurtanna lengra en að vissu magni uppskeru, af því að vaxtarskeiðið er takmarkað. í góðum (hlýjum) sumrum hefir fosfórskortur jafnan virzt minni en þegar miður sumrar og má því álíta, að upplausn hafi þá verið meiri til jurtanæringar. 3. ífaZí-áburðartilraunir hafa verið gerð- ar og hefir það sýnt sig, að um skort er að ræða einkum þegar búfjáráburður (þvag) hefir ekki verið notað til lengd- ar á ræktað land. Glögg einkenni kalí- skorts hafa einkum komið í ljós á smáragróðri. Samanburðartilraunir við nýyrkju, hafa um langt skeið verið verulegur þáttur í starfseminni. í því sambandi má nefna græðisléttur — sáðsléttur, bæði í túni og utan túns um margra ára skeið, með búfjáráburði eða til- búnum áburði eingöngu, hvort tveggja, og með ýmsum víxltilraunum. Um árangur af þessum fjölþættu tilraun- um má segja í stuttu máli, að þær hafa sýnt, undantekningarlaust, yfirburði sáð- sléttanna, enda er svo komið í Eyjafirði, að varla dettur nokkrum bónda í hug að rækta land án þess að í það sé sáð. Að sjálfsögðu hefir árangurinn af sáðslétturæktinni allt- af orðið betri í gamalræktuðu landi. Fyrr og síðar hefir Ölafur Jóns- son gengið að daglegum störfum, og mun ckki fjarri sanni, að stundum hafi orðið að leggja leitina að sann- leikanum, í tilraunastarfseminni, á hylluna um stund til þess að gegna önnum dagsins við húska'pinn.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.