Freyr - 01.05.1949, Blaðsíða 23
FREYR
167
Kartöfluupptökuvélin. — Vélknúnir
þeytarar róta kartöflunum upp svo
þcer liggja ofan á. Fjórir menn
ganga á eftir vél'.nni og tína saman
og sekkja uppskeruna.
ur rekist í stein, sem er það stór, að plóg-
urinn geti ekki rutt honum úr vegi, hef-
ir átakið áhrif á vökvaþrýstitækin, svo
afturendi dráttarvélarinnar lyftist frá
jörð og hjólin spóla í lausu lofti. Dráttur-
inn stöðvast þannig áður en nokkuð get-
ur brotnað eða skemmst vegna festunnar.
Átta mismunandi sporvíddir er hægt að
hafa á hjólum dráttarvélarinnar, allt frá
48 upp í 76 þumlunga með 4 þumlunga bili.
Er mjög hentugt að geta stillt sporvíddina
og hagað henni eftir því, sem bezt á við
hvert verk.
Auk allra venjulegra landbúnaðarvéla
koma nokkur mjög hentug tæki til með að
geta fylgt dráttarvélinni og eru sum þessara
tækja algjör nýjung. Lausleg lýsing nokk-
urra þessara tækja fer hér á eftir.
Mykjudreifari og ámokstursskófla. —
Framan á dráttarvélina er fest skófla, sem
stjórnað er með vökvaþrýstibúnaði vélar-
innar og notuð er til þess að moka mykj-
unni í dreifarann, sem síðan er tengdur
aftan í dráttarvélina. Tæki þetta er nú
full prófað, en framleiðsla þess ekki kom-
in svo langt að búast megi við því hingað
til landsins fyrr en að nokkrum tíma liðn-
um.
Flutningatrog, sem fest er aftan á drátt-
arvélina og myndar einskonar vörupall.
Má á þennan hátt nota vélina til minni-
háttar flutninga milli staða.
Moldskúffa, sem tengd er aftan í vél-
ina og nota má til þess að grafa með og
flytja jarðveg, t. d. við gröft húsgrunna.
Skóflunni er stjórnað með vökvaþrýstibún-
aði vélarinnar.
Hjólsög, sem setja má aftan við vélina
og knýja frá reimhjóli hennar. Gæti þétta
orðið einkar hentugt tæki fyrir bændur á
jörðum sem hafa reka.
Sjálfvirkt lyftitœki, sem stjórnað er með
vökvaþrýstibúnaði vélarinnar. Tæki þetta
er einkar hentugt ef lyfta þarf dráttarvél-
inni t. d. til eftirlits, eða við stillingu
hemla, eða breytingu sporvíddar.
Öll er vélin hin einfaldasta að gerð og
tenging hennar við vinnutækin mjög auð-
veld.