Freyr - 01.05.1949, Blaðsíða 36
180
FREYR
ið gufi af honum, en diskurinn er settur strax,
heitur eins og hann er, á efri hæð diskastóls-
íns, en bollarnir, brennheitir, á þrepið neðra.
Þannig er fyrir því séð, að enga þurrku þarf
til þess að fjarlægja vatnið af matarílátum
og borðbúnaði, það gufar upp eða rennur nið-
ur á borðið — eiginlega hvort tveggja — og
það er góð hreinlætisráðstöfun, því að hversu
hreint sem afþurrkunar handklæðið er, loðir
alltaf við það meira eða minna af þvílíkum
óhreinindum, sem fólk mundi ekki kæra sig
um að fá smurt á matarílátin ef það skoðaði
þau undir smásjá.
Á uppþvottastólnum (diskastólnum) standa
diskarnir á röð og hver hlutur yfirleitt þann-
ig, að megin vatnsins rennur strax af og á
honum standa innan stundar þurrir og ó-
venju hreinir diskar, bollar, gafflar og hnífar,
sem strax er hægt að taka og leggja á sinn stað
þegar uppþvotti er lokið.
Uppþvottastóllinn er þarfur hlutur í eldhúsi
enda selzt hann eins og sætabrauð hvar sem
hann kemur á markað.
Uppþvottur með sápuvatni og bursta, dýf-
ing leirtaus og borðbúnaðar í brennheitt vatn,
og uppfærsla á uppþvottastólinn, þetta er
einfalt og auðvelt og „ótrúlegt að þetta fyrir-
komulag skuli ekki vera fundið upp fyrir
löngu“, segja húsmæðurnar, sem þegar hafa
prófað starfsaðferðina. Hversu margar hús-
mæður á íslandi þekkja hana? Nokkrar — ef
til vill margar — en ekki nærri allar.
Hross lœkka mjög l verði
á markaði í Frakklandi, en þar hefir það ver-
ið hæst að undanförnu. Dönsk hross, sem þang-
að voru seld á síðasta ári voru seld innanlands
fyrir verð sem nam um 6000 ísl. krónum enda
þó að þau væru keypt fyrir um það bil 2700 ísl.
krónur. Mestan hluta ágóðans hirti franska
ríkið.
Nú er svo komið að verðið á franska markað-
inum er ekki meira en helmingur á við það
sem var fyrir fáum mánuðum. Það er hvoru
tveggja, að vélanotkun ryður sér mjög til rúms
og svo hitt að uxar eru á boðstólum í stórum
stíl til dráttar. Annars er viðhorfið talið þannig
um meginhluta Evrópu, að farið sé að háttum
Vesturheims og vélrænt afl tekið í þjónustu
landbúnaðarins í stað hesta og uxa.
Handbók í alifuglarækt
FJÆRKRÆ heitir ritverk eitt mikið, í
tveim bindum, sem gefið var út hjá Al-
fred Jörgensens forlagi í Kaupmannahöfn
á síðasta ári.
Er hér um að ræða handbók, sem margir
ágætir höfundar standa að, fræðimenn á
sviði alifuglaræktarinnar cg fagmenn í
hinum ýmsu efnum varðandi meðferð og
sölu alifuglaafurða. Á því nær 200 síðum er
með texta og myndum greint frá öllu, er
varðar ræktun alifugla, meðferð þeirra og
fóðrun, hagnýtingu afurðanna og eiginlega
allt er snertir þessa atvinnugrein, sem um
öll menningarlönd — að íslandi undan-
skildu — er sett á fremsta b°kk meðal
framleiðslugreina landbúnaðarins. Mjólkin
og eggin, er nú um stundir viðurkennt, að
séu þær lífsnauðsynjar sem öllum öðrum
eru fremri að lífrænu gildi og ómissandi
þáttur í næringu þjóðanna.
Alþjóðastofnanir heilsuverndar nefna
þessar fæðutegundir „verndandi matvæli"
og skipa þeim í öndvegi, enda veita margar
þjóðir opinbera styrki til þess að gera öll-
um kleift að kaupa þær í vissum mæli.
Handbók sú, sem hér er á ferðinni, er
framúrskarandi að frágangi öllum, enda
náð afarmikilli útbreiðslu um öll Norður-
löndin. í henni eru 35 heilsíðumyndir, flest
litmyndir, óvenjulega vel gerðar, og þar að
auki hundruð annarra mynda.
Ókleift er að rekja efni þessa digra verks
hér, aðeins skal sagt, að það mun hið full-
komnasta, sem út hefir verið gefið um þessi
efni á Norðurlöndum og jafnvel þótt víðar
sé leitað. Auðvitað á það einnig erindi til
íslands.
Bæði bindin kosta samanlagt 140 dansk-
ar krónur í skinnbandi. Þeir, sem óska að
eignazt þetta stórmerka ritverk geta snúið
sér til Freys, er fúslega mun koma pöntun-
um á framfæri til bóksa’a, sem hefði ráð
á gjaldeyri til þess að flytja inn handbæk-
ur þessar, sem auðvitað verða aldrei prent-
aðar hér á landi. G.