Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1949, Page 18

Freyr - 01.05.1949, Page 18
162 FRE YR ÞÓRÐUR RUNÓLFSSON: Ferguson landhúnaðarvélar Segja má, að ekkert hafi valdið jafn stór- felldum breytingum á sviði landbúnaðar- ins og vélaaflið, sem nú er æ meir tekið í þjónustu hans hér á landi. Svo stórt skref, sem stigið var, þegar horfið var frá hand- aflinu til hestknúnu vélanna, er skrefið frá hestknúnu vélunum til hreyfilknúinna véla ennþá stærra. Síðan síðustu heimsstyrjöld lauk hefir innflutningur véla til landbúnaðar verið geysi mikill, en tæki þessi hafa að sjálf- sögðu verið nokkuð misjöfn að gerð og gæðum eins og ávallt vill verða. Eitt af því nýjasta á þessu sviði, sem komið hefir, og nú er að koma til landsins, er Ferguson-dráttarvélin og landbúnaðar- vélar þær, sem henni geta fylgt. Ferguson-dráttarvélin er knúin 24 hest- afla benzínhreyfli af svokallaðri fjór- gengisgerð. Rafknúinn ræsihreyfill er við hreyfilinn og er tengingu straumsins til ræsihreyfilsins svo haganlega fyrir komið, að ekki er hægt að ræsa, ef hreyfillinn stendur í tengslum við drifbúnað vélarinn- ar. Sjálfvirkur gangráður er á hreyflinum, sem heldur snúningshraða hans jöfnum, enda þótt álagið kunni að vera mjög mis- jafnt. Er hægt á þennan hátt að stilla snúningshraða hreyfilsins allt frá 400 upp í 2500 snúninga á mínútu. Stjórntækjum öllum er mjög haganlega komið fyrir nálægt sæti ökumannsins. Hemlarnir eru á afturhjólum vélarinnar, svokallaðir innri hemlar í lokuðum hemla- skálum. Hemlunum er stjórnað með helmla- pedulunum, sem eru þrír, liggja tveir þeirra sinn hvoru megin aftur með bol vélarinn- ar, og er sinn þeirra fyrir hvort hjól, er Mykjudreijari og ámokstursskójla. Amokstursskójlan er jull og verið að aka henni jrá haugnum að mykjudreijaranum, þar sem hvoljt er úr henni.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.