Freyr - 01.07.1949, Side 31
FREYR
237
í vinnslusölum eru lögð gólfhellum, en vegg-
ir lagðir veggflísum 1 180 cm hæð. Flestar
hurðir eru klæddar riðfrýju stáli.
Gufan, sem notuð er við mjólkurvinnsl-
una, er framleidd í rafkatli, sem framleiðir
tæp 2000 kg af gufu á klst. Nokkur hluti
gufunnar er framleiddur að nóttunni og er
henni þá safnað á tvo gufugeyma, og er
samanlagt rúmtak þeirra 60 rúmmetrar.
Þegar geymarnir eru fullir er þrýstingur
gufunnar um 8 kg á cm2. Þessi gufa er svo
notuð að deginum, þegar hennar er mest
þörf.
Olíuhitaður ketill er hafður til vara.
Hann er um það bil helmingi afkasta minni
en aðalketillinn.
Á efri hæðinni í stöðinni er rannsóknar-
stofa, og verða þar rannsakaðar hverskonar
mjólkurvörur og mjólk, sem stöðin afgreið-
ir til sölu.
í suðaustur horni stöðvarinnar er um
þessar mundir verið að ganga frá vélum til
niðursuðu á mjólk. Vélar þessar standa á
efri og neðri hæðinni, og að nokkru leyti
einnig í kjallaranum. í sambandi við þær
er á efri hæðinni stór geymsla fyrir niður-
soðna mjólk.
r-------------------------------------\
Tek að mér
RAFLAGNATEIKNINGAR
í íbúðarhús og peningshús í sveitum.
Verklýsing og efnisskrá getur fylgt
teikningunum.
STEFÁN BJARNASON,
rafmagnsverkfrœðingur,
Sogamýrarbl. 55, Reykjavík. Sími 6611.
>
Bændasamband
Norðurlanda
Nordens Bondeorganisation, sem stofn-
að var árið 1934, en starfað hefir af mestu
kappi síðan styrjöldinni lauk, vinnur að
eflingu norrænnar samvinnu á ýmsum
sviðum búnaðarmála. Miðstjórn þess mun
halda fund 29—30 ágúst n. k. Verður hann
haldinn í Uppsala í þetta sinn, en formað-
ur miðstjórnarinnar er sænskur í ár — Ein-
ar Sjörgen.
Á fundi þessum verða, meðal annars, til
umræðu mál, sem hafa félagslega og hag-
færðilega þýðingu, svo sem félagsskap um
kaup á korni og fóðurv., vélum og verksm,-
tækjum o. fl. Aðalmálið í þetta sinn verður
þó tollasamband Norðurlanda, en það var
einnig til umræðu á fundi norrænna bú-
fræðimanna, er haldinn var að Hindsgavl
1 fyrra sumar á vegum Norræna félagsins.
Á umræddum miðstjórnarfundum mæta
fulltrúar frá Norðurlöndunum fjórum,
sendimenn frá búnaðarfélögum, smá-
bændafélögum og samvinnufélögum. ís-
lendingar eru ekki í þessum félagsskap
bændanna hjá bræðraþjóðum okkar og hef-
ir sú utanvelta af ýmsum á Norðurlöndum
verið túlkuð sem sönnun þess, að íslending-
ar kæri sig ekki um að tilheyra Skandi-
navíu heldur leiti vestur á bóginn í athöfn-
um og viðhorfum.
Þessi skoðun mun eflaust styrkjast ef úr
því verður, að íslenzk bændasamtök leita
upptöku í I. F. A. P. (Alþjóðasamtök bú-
vöruframleiðenda) án þess að vera með-
limir í þessu norræna sambandi bænda-
félaga. — Það er á meðal annars eitt af
hlutverkum Bændasambands Norðurlanda