Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2005, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2005, Side 34
34 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST2005 Helgarblað DV <íkt í 'Snu/'fi/utrtí/n/ia Ólafur Helgi Ólafsson Hann segir mikilvægt að hugsa vel um húðina og nauðsyniegt að eiga gott dagkrem. Jean Paul Gaultier sólarpúð- ur „Ég nota sólarpúðrið því það gerir kinnbeinin svo flott. Púðrið kem- ur að góðum notum til að skyggja eða nota sem augnskugga. Það gerir mann frísklegri í einni stroku." Energy drops frá Marbert „Frábært dagkrem. Ég fékk prufu af því fyrir nokkru og fannst það alveg æðislegt. Það er mikil- vægt að nota dagkrem því maður verður að hugsa vel um húðina." Maskari frá Etre Belle „Ég nota oftast maskara á kvöldin þegar ég fer út á lífið. Ég á maskarann ffá Etre Belle í svörtu og gerir hann augun meira áber- andi. Þetta er nú samt eins konar plan B, því ég er vanur að láta lita á mér augnhárin á snyrtistofu." Gloss frá Etre Belle ___ „Ég nota glossinn frá Etre Belle frekar mikið því mér finnst liturinn vera algjört æði. Hann er Ijósbrúnn og glansandi. Ég mála mig nú samt aldrei nema á kvöld- in. En það kemur þó fyrir að ég skelii á mig smá glossi ef ég fer á kaffihús eða er að gera eitthvað sérstakt yfir daginn." Le Male frá Jean Paul Gaultier „Ég er alltaf með ilmvatnið frá Jean Paul Gaultier með mér enda besti herrailmur sem ég hef fundið. Le Male hefur verið uppáhaldsilmur- inn minn £ tvö ár.“ Ólafur Helgi Ólafsson er eins og margir vita Dragdrottning Islands árið 2004.1 vikunni krýndi hann arftaka sinn með pomp og prakt. „Ég er búinn að vera að hamast við að sauma nýjan búning á mig og dansarana mína því við tókum siguratriðið aftur á Dragkeppninni sem var haldin f vikunni sem lelð. f Gay pride-skrúðgöngunni mun ég svo svífa niður Laugaveginn á fleka sem er dulbúinn sem skemmtiferðasklp. Það hefur þvi verið nóg um að vera undanfarið vegna mikils undirbúnings. Maður verður að hafa þetta flott fyrst maður er að þessu á annað borð," segir Ólafur Helgi. I haust ætlar Ólafur að setjast á skólabekk og stunda nám á textfl- og handmenntabraut f FB. „Draumurinn er að starfa við búningahönnun. Ég gæti Ifka hugsað mér að læra leikstjórn því leikhúslffið hefur alltaf heillað mig," tekur Ólafur fram. Fyrir um einu og hálfu ári fékk Bryndís ísfold Hlöðvers- dóttir námsleiða og ákvað að hvíla sig á lærdómnum. Hún tók því upp á að opna verslunina Oni sem selur frumlega hönnun eftir unga og upprennandi hönnuði. Bryndís ein- skorðar sig þó ekki við verslunarreksturinn því hún er meðal annars í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar og formaður Jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar. En hvað svo sem hún gerir þá er hugur hennar hjá Oni, eða púk- anum eins og orðið þýðir á japönsku, alltaf til staðar. Bryndís ísfold Hlöðvers- dóttir Varð leið á náminu og ákvað að opna verslun- ina Oni og breyta til. „Það er rosalega gaman að reka sína eigin verslun og hefur rekstur- inn gengið framar öllum vonum. Sérstaklega með tilliti til þess að ég hafði enga reynslu af verslunar- rekstri þegar ég opnaði búðina," segir Bryndís ísfold Hlöðversdóttir, eigandi verslunarinnar Oni. „Bróðir minn var með verslun á tímabili og þegar hann ákvað að hætta, tók ég við húsnæðinu og opnaði Oni. Ég var að læra viðskiptafræði og stjóm- málafræði í háskólanum en var komin með námsleiða og ákvað því að breyta til. Ég byrjaði bara smátt en Oni hefur vaxið og daínað með auknum viðskiptum." Saumavélin er í uppáhaldi „Ég er að selja bæði íslenska hönnun og erlendar vömr í Oni. Ég sel hönnun eftir ólíka íslenska hönn- uði en geri líka mikið af því að fara til London og New York til að leita að sniðugum vömm. Svo er mín eigin hönnun auðvitað til sölu undir merkinu ísfold, en hún er nú líka upphafið að þessu öllu saman. Ég hef verið að sauma síðan ég var ung- lingur og þaðan kemur ástríðan á hönnun. Það má því segja að saumavélin sé uppáhaldsgræjan mín því án hennar get ég varla ver- ið,“ útskýrir Bryndís. Velur vörur eftir sínum eigin fatasmekk „Það er auðvitað vinna að finna réttu vömmar í verslunina. En þetta er lfka spuming um hvað maður er tilbúinn til að leggja á sig til þess að gera búðina eins og maður vill hafa hana. Með tímanum er maður líka fljótari að sjá hvað gengur og hvað ekki. Ég reyni samt að treysta á inn- sæið og vel mikið eftir mínum fatasmekk," segir Bryndís. Ekkert gaman ef allir eru eins Markmiðið með versluninni er að sögn Bryndísar að bjóða upp á fjölbreytta hönnun. „Ég panta aidrei mikið af hverri vöm, hvort sem það em kjólar, skartgripir eða eitthvað annað. Það er nefnilega ekkert hall- ærislegra en að fara niður í bæ og mæta einhverjum sem er alveg eins klæddur og maður sjálfur. Mottóið er sem sagt engin fjöldaframleiðsla. Svo em gæði lfka alltaf betri en magn," tekur Bryndís fram. „Oni þýðir púki á japönsku og fannst mérþað einkenna búðina vel. Ungt, ögrandi og öðruvísi. Svo er hún líka „oní" portinu góða á Laugaveginum," segir Bryndís. Efnakaup íTælandi og vef- verslun á næsta leiti „Oni þýðir púki á japönsku og fannst mér það einkenna búðina vel. Ungt, ögrandi og öðmvísi. Svo er verslunin lfka „onf“ portinu góða á Laugaveginum. Næst á dagskrá er að fara til Tælands til þess að kaupa efni sem ég mun sauma úr í haust. Ég er með vefsíðuna onishop.com þar sem hægt er að skoða vömr verslunarinnar, en í haust stendur til að opna vefverslun svo fólk geti keypt öðmvísi hönnun, hvar sem er í heiminum," segir Bryndís. iris&dv.is Feitir karlar halda sjaldnar fram hjá Þeir eru ekkijafn spenntir fyrir skyndikynnum og karlar I kjörþyngd. Feitir karlar halda síður fram hjá Niðurstöður þýskrar rannsóknar gefa til kynna að feitir karlar halda síður fram hjá mök- um sínum en karlar í kjör- þyngd. Ástæðan er ekki sú að feitir karlar hafi færri tækifæri til framhjáhalds. Þeir em oftar trúir maka sín- um því þeir hafa minni til- hneigingu til að stunda áhættusamt kynlíf eins og einnar nætur gaman og þess háttar. Ástæðan fyrir því er þó ekki ljós enn sem komið er. Niðurstöð- ur rannsóknarinnar benda einnig til þess að karlmenn í kjörþyngd séu tvisvar sinnum líklegri til þess að halda framhjá maka sínum en hinir feitu. Einnig eru feitari karlar ólíklegri til að sækja vændishús eða hringja í kynlífslínur til að stunda símakynlíf. Um eitt þús- und þýskir karlmenn tóku þátt í rannsókninni og voru þeir allir á aldrinum 31 til 69 ára. í ljós kom að tuttugu og þrjú prósent karlanna sem vom í kjörþyngd viðurkenndu að hafa áhuga á framhjáhaldi en aðeins ellefu pró- sent feitu karlmannanna höfðu áhuga á því. Karlmenn í kjörþyngd fjöllyndari Þeir eru allt að tvisvar sinnum líklegri til °ð ækjast eftir skyndikynnum en feitir karlar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.