Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Dóp í Jórufelli
Karlmaður á fertugsaldri,
Helgi Þór Kristínarson,
mætti tii þingfestingar í
Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær vegna brota á fíkniefna-
löggjöfinni. Þann 19. októ-
ber árið 2004 höfðu lög-
reglumenn afskipti af Helga
Þór í Jórufelli 2 í Breiðholti
og var hann með rúm 6
grömm af amfetamíni og
rúmlega eitt gramm af hassi
í fórum sínum. Við afskipti
lögreglu framvísaði hann þó
hluta fíkniefnanna en hluti
fannst við leit á honum.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
krefst upptöku á efnunum
og að Helgi verði dæmdur
til hegningarauka vegna
annars brots.
Með dóp á
fimmtuqs-
aldri
Karlmaður á fimmtugs-
aldri, Sigurður Grettir Er-
lendsson, sætir nú ákæru
fyrir ffkniefnalagabrot en
honum er gefið að sök að
hafa haft í vörslu sinni tæp
20 grömm af amfetamíni,
tíu grömm af kókaíni og lít-
ilræði af hassi. Lögreglu-
menn fundu efnin við leit á
ákærða að kvöldi þriðju-
dagsins 24. febrúar árið
2004, í Laufengi í Grafar-
vogi. Mál Sigurðar var
þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur á föstudag, en
hann mætti ekki og máiinu
var frestað. Þess er krafist
að Sigurður verði dæmdur
til refsingar og hann sæti
upptöku á efnunum.
Bjartyfir
Raufarhöfn
Menningarhátíð Raufar-
hafnarbúa, Bjart er yfir
Raufarhöfh, hefst á morgun
þegar kveikt verður á bjart-
sýniskyndlum Raufarhafn-
ar. Hátíðin mun standa
fram á föstudag. Meðal
dagskrárliða er svokallað
Jónasarkvöld, en þá munu
nemendur grunnskólans
heiðra Jónas Friðrik
Guðnason skáld sem býr á
staðnum og er hvað kunn-
astur fyrir að semja texta
þeirra Ríó Tríós-manna.
Hátíðin var fyrst haldin árið
2003 og er því haldin í
þriðja skiptið.
Eigandi Kínversku nuddstofunnar í Kópavogi Lína Jia er ákærð af Sýslumanninum
í Kópavogi fyrir skjalafals. Henni er gefið að sök að hafa tvívegis falsað undir-
skrift starfsmanns síns, Xing Haiou. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem starfsmenn
Línu kæra hana.
/
Akærö fyrir að falsa unöir-
skrifl á skuggasamningum
DV hefur undanfarin tvö ár sagt frá viðskiptum starfsmanna
Línu Jia á Kínversku nuddstofunni í Kópavogi. Hún hefur flutt
inn nuddara til starfa á stofunni og hafa lögmenn ASÍ sagt að
samningar, líkt og þeir sem Lína gerir við starfsmenn sína, séu á
skjön við evrópsk lög og velsæmi. Nú sætir hún ákæru fyrir að
hafa falsað undirskrift starfsmanns síns á slíkum samningi.
mmMU
Bömberi
tkUrusl
FRJALSI
Lína er ákærð fyrir að hafa falsað
undirskrift á starfsmannasamning-
um fyrrverandi starfsmanns, Xing
Haiou. Hann hefur áður höfðað mál
gegn Línu vegna vangoldinna launa.
Sýslumaðurinn í Kópavogi fer með
málið, sem flokkast undir skjalafals.
Tveir samningar falsaðir
í ákæru segir að Lína hafi falsað
undirskrift Xings á ráðningarsamn-
ingi 11. febrúar árið 2002 annars
vegar og 7. maí árið 2003 hins vegar.
Eftir fölsunina framvísaði hún
samningunum til Útíendingaeftir-
litsins og Útlendingastofnunar
vegna umsóknar Xings um tíma-
bundið atvinnuieyfi. DV hefur und-
anfarin tvö ár birt fréttir af starfs-
mönnum Línu, þar sem þeir segja
farir sínar ekki sléttar.
Vangoldin laun
Xing Haiou höfðaði einkamál á
hendur Línu vegna vangoldinna
launa. Það var í mars á þessu ári.
„Hann Xiang er bara lygari," sagði
Lína þá um Xiang. Ekki hefur náðst í
Xiang, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Lína svaraði blaðamanni á nudd-
stofunni í gær og vísaði þá á dóttur
sína, sökum skorts á íslenskukunn-
áttu. Dóttir Línu kannaðist ekki við
ákæruna. Reynt var að ná sambandi
við Línu aftur, án árangurs.
Skuggasamningar Línu
Lína hefur fengið kínverska
nuddara hingað til lands til að starfa
á nuddstofu hennar í Kópavogi.
Áður en hún flytur þá inn hefur hún
haft þann hátt-
inn á að gera samninga við þá, áður
en þeir koma til landsins. Lögmaður
ASI kallaði þá á sínum tíma skugga-
samninga. DV hefur haft slíka
samninga undir höndum og í þeim
kom fram að árslaun Kínverjanna
séu rúmar 1,2 milljónir. Þó þurfa
Kínverjarnir að reiða af hendi 600
þúsund krónur fýrir að koma hing-
að til lands og fá að vinna í Kópa-
vogi.
Kínverjarnir flýja
DV hefur eins og áður segir fjall
að um mál Línu og nuddstof-
unnar. Fréttir hafa ver-
ið fluttar af þremur
starfsmanna
hennar, sem flúðu
vinnustaðinn
vegna samnings-
ins. Lína virðist
hafa tröliatak á
starfsmönnun-
um. Fyrr-
verandi starfs-
maður
hennar
komst í
fréttirnar í
lok árs
2003. Þá
hafði dótt-
ir Línu
auglýst
eftir Kín-
verjanum
Pang í
smáauglýs-
ingum
Fréttablaðs-
ins. Pang hafði
flúið starfið á
nuddstofunni
ásamt tveimur
öðrum nuddur-
um.
gudmundur@dv.is
Lína Jia Ákærð af Sýslumann-
inum í Kópavogi fyrir skjalafals.
Maðurinn, hvers nafn hún er
sökuö um að hafa falsað, höfð-
aði einkamál á hendur henni
vegna vangoldinna launa.
Telur Sjálfstæðisflokkinn hafa misnotað aðstöðu sína
Sjálfstæðismenn í Sjónvarpinu
í tilefni umræðunnar um fjöl-
miðlalög ætlar Sigurjón Þórðarson
alþingismaður að leggja fram fyrir-
spurn á Alþingi á næstunni. Henni
hyggst hann beina til Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur en fyrir-
spurnin er svohijóðandi: „Hversu
margir og hvaða starfsmenn hafa
verið ráðnir án auglýsingar til Ríkis-
útvarpsins - sjónvarps til að sjá um
dagskrárgerð og fréttatengt efni síð-
ustu 10 árin?"
Sigurjón hyggst fara fram á að
„Nú liggur á að byggja skóla ÍVallarhverfi íHafnarfirði,"segir Hallur Helgason, kvik-
myndagerðarmaður með meiru. Hann hefur boðið sig fram iprófkjöri sjálfstæðismanna
sem haldið verður 19. nóvember. Stefnir ótrauður á 4. sætið og er þegar kominn i kosninga-
ham:„Svo liggur á að öll þjóðin staldri aðeins viö, hugsi sig um, slaki á ílífsgæða-
kapphlaupinu. Hugi að því að verja tima með börnum sínum, fjölskyldu og
vinpm. Og elska náungann."
sundurgreint verði í hvaða þætti fólk
hefur verið ráðið. Alþingismaðurinn
segir sjálfstæðismenn þykj-
ast hafa áhyggjur af því að
þeir sém hafi yfir fjölmiðlum
að ráða neyti aflsmunar til
að hafa áhríf á skoðana-
myndun í þjóðfélaginu.
„Það er því sjálfsagt að
skoða hvernig sjálfstæðis-
menn hafa notað afl sitt til
Sigurjón Þórðar-
son Ætlar að skoða
það hvernig sjálf-
stæðismenn hafa
neyttaflsmunartil
að hafa áhrifá
skoðanamyndun i
þjóðfélaginu.
þess að ráða starfsfólk á Ríkisútvarp-
ið á síðustu 10 árum,“ segir Sigurjón
á heimasíðu sinni.
Hvað liggur á?
Vill banna
reykingar
Ríkisstjórnin samþykkti í gær-
morgun að leggja drög að frum-
varpi um reykingavarnir fyrir
þingflokka stjórnarflokkanna, en
það var Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra sem hafði for-
göngu um málið. í frumvarpinu
felst að reykingar yrðu með öllu
bannaðar á veitingahúsum eftir
2007. Jón gerði tilraun til að
leggja frumvarpið fyrir á síðasta
þingi en fékk ekki stuðning til
þess innan ríkisstjórnarinnar.
Hins vegar kom fram þing-
mannafrumvarp um máiið en
það var fellt.