Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBEFt 2005
Fréttir DV
Deilu um bón-
usvísaðfrá
Félagsdómur hefur vísað
frá kæru hjúkrunarfræðinga
á hendur Landspítalanum
fyrir að hafa greitt bónus til
hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða sem ekki létu af
störfum í vinnudeilu á árinu
2004. Hjúkrunafræðingar
vildu að Félagsdómur
dæmdi spítalann brotlegan
gegn lögum um stéttarfélög
og vinnudeilur með því
greiða 13 hjúkrunarfræðing-
um þakklætisvott að fjárgildi
13.900 krónur fyrir „trú-
mennsku og ósérhlífni" í
þeim „erfiðleikum sem
steðjuðu að Miðstöð
Heimahjúkrunar."
Jöfurvantaði
211 milljónir
Bílaumboðið Jöfur vant-
aði 211 milljónir króna til
að geta greitt skuldir sem
hvíldu á fyrirtækinu við
gjaldþrot þess árið 2000.
Sigurmar K. Albertsson
skiptastjóri samþykkti alls
kröfur upp á 301 milljón
króna sem gerðar voru á
Jöfur. Eftir að skiptum á
fyrirtækinu var endanlega
lokið hafði náðst að greiða
um 90 milljónir króna. Jöf-
ur var um árabil rekið í
Kópavogi og flutti meðal
annars inn bíla af gerð-
unum Skoda og Cherokee.
Tilraunir
á dýrum?
Bjarni Lárus Hall
tónlistarmaður.
„Ég vil helst ekki vita aftil-
raunum á dýrum þó sva að
slíkar tilraunir séu náttúru-
lega stór þáttur I allri fram-
þróun. Ég vil helst bara loka
augunum og sannfæra mig
um að þær eigi sér ekki stað.
En það er líklega barnaskap-
ur að halda að hjá þeim
verði komist."
Hann segir / Hún segir
„Ég verð að viðurkenna að ég
er harðlega ámóti tilraunum
á dýrum. Mér finnst ógeðstegt
að taka það sem er saklaust
og prófa eitthvað á því. Spurn-
ing hvaða önnur leið er í boði
en mér finnst þessi leið við-
bjóðsleg."
Guðrún Heiður fsaksdóttir
tónlistarkona.
Ólafur Eggert Ólafsson vann á súlustað og bjó með strippara á sama tíma og hann
tældi 15 ára stúlkur til samræðis og annarra kynferðismaka með peningagreiðsl-
um. Eins og rándýr nýtti hann eitulyfjavandamál stúlknanna til að láta þær fram-
kvæma ólýsanlega hluti að hans skipan. Héraðsdómur dæmdi hann í tveggja ára
fangelsi fyrir skömmu en Ólafur lætur sér ekki segjast og ætlar að áfrýja.
Barnaklámsmaður
níddist á barnapíum
„Hann mun áfrýja," segir Herdís Hallmarsdóttir, verjandi
Ólafs Eggerts Ólafssonar 37 ára, sem fyrir síðustu helgi var
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun
sína á þremur stúlkum og fyrir að hafa í fórum sínum
barnaklám. Ólafur tældi stúlkurnar til samræðis og annarra
kynferðismaka með peningagreiðslum meðan þær voru að-
eins 15 ára gamlar.
Ekkert næst í Ólaf Eggert sjálfan
til að fá viðbrögð hans við dómnum
eða svara því til hvers vegna hann
vilji áfrýja. Vinir hans sem rætt var
við segja að það sé eins og hann
hafi gufað upp. Ekkert hafi sést til
hans í mánuð. Verjandi Ólafs, Her-
dís Hallmarsdóttir, hefur hins vegar
staðfest við blaðið að áfrýjun sé í
undirbúningi.
DV bar þessar fréttir undir fjöl-
skyldu einnar stúlkunnar sem varð
fyrir misnotkun Ólafs. Viðbrögðin
þar á bæ voru fyrst og fremst reiði
og sárindi enda mipll vilji til að
málinu ljúki. Fjölskyldan hefur ver-
ið í uppnámi allt síðan dómur féll.
Mikill ótti er um að klámmyndirnar
sem Ólafur tók af dóttur þeirra hafi
farið víða. Að hann hafi selt þær til
manna erlendis eins og hann ræddi
um við stúlkurnar þegar hann hafði
þær á valdi sínu. Engar vísbending-
ar eru um að Ólafur hafi gert það en
ómögulegt er hins vegar að útiloka
það.
Segir logið upp á sig
Þeir kunningjar Ólafs sem hefur
verið rætt við síðustu daga voru
hvumsa þegar þeir heyrðu fréttirn-
ar af dómi Ólafs Eggerts. Svo virðist
sem Ólafur Eggert hafi sagt fjöl-
skyldu sinni og vinum að einhverj-
ar stelpur úti í bæ væru að ljúga
upp á hann sakir. Þær hefðu sagt
við hann að þær væru átján ára
gamlar og hann hafi látist blekkjast.
Fyrir dómi kom þó hvergi fram í
máli Ólafs að hann hafi ekki vitað
að stúlkurnar sem hann hafði sam-
ræði við væru fimmtán ára gamlar.
Ólafur hafði ekki bara samræði við
stúlkurnar, sem á þessum tíma áttu
við veruleg fíkniefnavandamál að
stríða. Hann borgaði þeim einnig
fyrir að hafa samræði hver við aðra
og lét þær notast við ýmiss konar
kynlífshjálpartæki.
Eins og rándýr
Á því tímabili sem stúlkurnar
voru á valdi Ólafs var hann starfs-
maður súlustaðarins Club Clinton
sem staðsettur var í Fischersundi.
Hann bjó einnig með strippara sem
vann með honum í kúbbnum.
Stúlkunum sem hann misnotaði
kynntist hann þegar þær voru að
passa bam stripparans.
Hann bjó einnig með
stríppara sem vann
með honum á klúbbn- <
um. Stúlkunum sem
hann misnotaði
kynntist hann þegar
þær voru að passa
barn stripparans.
Honum var fullkunnugt um ald-
ur stúlknanna og það sem meira er,
honum var einnig fullkunnugt um j
þá erfiðleika sem þær gengu í
gegnum á þessum tíma. Foreldrar I
þeirra háðu á sama tímabili og tæl-
ingar Ólafs áttu sér stað harðvítuga
baráttu við að leysa dætur sínar úr
vítahring eiturlyfjanotkunar. Eins
og rándýr nýtti Ólafur sér þessa
veikleika með því gefa stúlkunum
peninga og eiturlyf til að fram-
kvæma ólýsanlegar athafnir að
hans skipan.
Hæstiréttur mun taka áfrýjun
Ólafs til skoðunar innan fáeinna
vikna. andri@dv.is
í>s/ííT,‘*
Suludans Ólafur vann
á Club Clinton og bjó
með dansara þegar
hann safnaði barna-
klámi og níddist á
barnapíunum.
Ólafur Eggert
Ólafsson Nýttisér
eiturlyfjavanda 15
ára stúikna.
Guðlaugur Laufdal svarar ásökunum Berglindar Sigurðardóttur
Segist hafa verið plataður
Trúbadorinn og guðsmaðurinn
Guðlaugur Laufdal segist ekki vera sá
glæpamaður sem Berglind Sigurðar-
dóttir hélt ffarn að hann væri í DV í
gær. Berglind seldi Guðlaugi hús sitt
að Kambahrauni 45 í Hveragerði fyrr á
þessu ári og hefur Guðlaugur ekki
staðið skil á lokagreiðslunni þrátt fyrir
að frestur til þess hafi mnnið út 1.
ágúst.
Berglind kallaði Guðlaug algjöran
glæpamann í blaðinu í gær og sagði
Guðlaugur í samtali við við DV í gær
að þau ummæli væm ekki svara verð.
„Ég get bara sagt að mér finnst þau
hafa platað mig. Þau leyndu mig göll-
um sem ég komst að síðar eins og til
dæmis ónýtu þaki og þess vegna held
ég eftir þessari lokagreiðslu upp á 1,7
milljónir þar til sátt næst um málið.
Það er alvanalegt í fasteignaviðsldpt-
um. Hún segir að ég sé glæpamaður.
Kambahraun 45
Styrstendur um
kaup Guðlaugs
Laufdals á húsinu.
Guðlaugur Lauf-
dal Trúaði trúbar-
dorinn segist hafa
verið piataður í fast-
eignaviðskiptum.
Það er ekki rétt,‘‘ sagði Guðlaugur.
Hann sagði jafriframt að það
kostaði hann .1,5 milljónir að skipta
um jám á þakinu auk þess sem þakið
væri óeinangrað. „Það er alltaf
skítakuldi í húsinu og það mun jL
kosta mig
milljón
til
viðbótar ¥,
að
einangra V
þakið.“
Kynbundinn
launamunur
mestur hér
Kynbundinn launamunur er
meiri á íslandi en í ríkjum Evrópu-
sambandsins. Þetta kom fram á
málþingi Jafnréttisráðs um launa-
jafnrétti sem haldið var í gær. Sam-
kvæmt opinberum tölum hafa ís-
lenskar konur sjötíu prósent af
tímakaupi karla en meðaltal Evr-
ópusambandsríkjanna er 84 pró-
sent. Það er þó ljós í myrkrinu að
samkvæmt nýrri rannsókn Lilju
Mósesdóttur, prófessors við Við-
skiptaháskólann á Bifröst, eru tölur
um kynfundinn launamun hérlend-
is ofmetnar.