Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2005, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2005, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 Sport DV Valsmenn að klófesta Pálma? Svo virðist sem Pálmi Rafn Pálmason sé á leið í Val, eftir því sem heimildir blaðsins herma. Pálmi hef- ur einnig verið sterklega orðaður við íslandsmeistara FH en hann hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs við félag á höfuðborgar- svæðinu en Pálmi hefur leikið með KA síðastliðin þrjú tímabil. Eins og fram kom í DV Sporti í gær gaf Pálmi KR-ingum afsvar en flest virðist benda til að hann muni klæðast rauðu næsta sumar. Soxvann loksins Chicago White Sox varð í fyrri- nótt bandarískur meistari í hafna- bolta en þetta er í fyrsta sinn frá 1917 sem félagið vinnur titilinn. Liðið vann Houston Astros í íjórum viðureignum og tap- aði liðið reyndar ekki átta síðustu leikjunum í úrslita- keppninni. Það er metjöfn- un frá því í fyrra er Boston Red Sox varð meistari. Er þetta því í annað sinn sem fornfrægt félag verður meistari í fyrsta sinn í lang- an tíma en Boston hafði ekki unnið titil frá 1919 er það fagnaði sigri í fyrra. Keflavík keppir í dag Körfuboltalið Keflavíkur keppir íÁskorendakeppni Evrópu í dag þegar liðið mætir BK Riga í Lettlandi. Kefl- víkingar mættu finnska liðinu Lappenranta á miðvikudag og töpuðu leiknum, 92-77. Það verður því mikilvægt að Keflvíkingar nái góðum úrslitum í dag ef liðið ætlar sér að komast áfram upp úr sínum riðli. Lappenranta og BK Riga hafa þegar mæst í riðlinum og báru Finnarnir sigur úr býtum í þeim leik. Lið ÍBV var eitt stærsta spurningarmerkið í uppphafi DHL-deildar kvenna. Stelp- urnar hans Alfreðs Finnssonar þjálfara hafa komið skemmtilega á óvart og tróna nú á toppi deildarinnar ásamt Stjörnunni. Aðalsmerki liðsins hefur verið góð vörn og markvarsla. Alfreð Finnsson, þjálfari IBV Hér ásamt Evu Björk Hlöðvers- dóttursem er einn aflykilleik- mönnum liðsins og unnusta Alfreðs. Mesl s/emmdl deild í la/emstleldd sem m mn enip „Þetta hefur farið mjög vel af stað og gengið vonum framar," sagði Al- freð Finnsson, þjálfari ÍBV, spurður um gengi liðsins það sem af er vetri. Að öðrum liðum ólöstuðum hafa Eyjastúlkur líklega farið í gegnum erfiðustu leikjadagskrána. Liðið hef- ur leikið við hin þrjú liðin í efstu fjór- um sætunum. Gerði jafntefli við Stjörnuna í Garðabæ, sigraði Val í Laugardalshöll og vann Hauka í Eyj- um á þriðjudag. „Þegar við lögðum í mótið var ekki lagt upp með að ná einhverju sæti eða eitthvað slíkt. Okkur var ekki spáð góðu gengi en ég vonaðist til að það gengi vel á heimavelli og að okkur tækist að ná í einhver stig á útivelli gegn þessum betri liðum. Það er ekki mikill getumunur á liðinu í ár og í fyrra, hins vegar tel ég okkur vera með betra lið. Jákvæðari einstaklingar og betri andi. Þá hefúr Ingibjörg Jónsdóttir komið inn í þetta og það hefur haft mikið að segja." Aðspurður hver styrkur Eyjaliðs- ins sé sagði Alfreð: „Vömin. Við spil- uðum frekar framliggjandi vöm framan af. Svo höfum við verið að fara í sex núll að undanförnu. Vörnin hefur bara verið mjög þétt og mark- vörðurinn (Florentina Grecu) varið frábærlega. Heimavöllurinn er sterkur. Hin- um liðunum finnst erfitt að koma til Eyja. Þau em ekki jafn vön því að ferðast eins og við." Eftir þessa góðu byrjun, er þá ekki stefnan sett á íslcuidsmeistaratitil- inn? „Ég held að það sé engin spurn- ing að það séu þarna fjögur til fimm lið sem geta hampað titlunum í vor. En það er allt of snemmt að spá um slíkt því mótið er ekki einu sinni hálfnað. Liðin á toppnum eru svo jöfn og lítið um stórsigra í innbyrðis- viðureignum toppliðanna. Ég held að aldrei hafi deild verið jafn jöfn og skemmtileg í kvennaíþróttum yfir höfuð eins og nú í handboltanum, frá því ég man eftir mér. Maður er á tauginni fyrir hvern leik." Skemmtilegra að þjálfa konur Alfreð lék upp alla yngri flokka með KR og síðar með Gróttu/KR í meistaraflokki en þurfti að hætta vegna meiðsla. Eftir meiðslin hefur hann einbeitt sér að þjálfaraferlin- um og miðað við að vera aðeins 25 ára er hann mjög reynslumikill. „Ég hef mikinn metnað fyrir þjálfun og einbeiti mér þessa dagana alfarið að þjálfarastarfmu og ólíkt mörgum vil ég halda áfram í kvennaþjálfun. Það eru margir sem segjast stefna á karlaboltann en í kvennaþjálfun liggur minn metnaður. Veturinn hér hjá ÍBV í fyrra gaf mér ótmetanlega reynslu. Maður er stanslaust að læra eitthvað af leik- mönnum. Það er gott að fá ábend- ingar frá mannneskju eins og Ingi- björgu sem er með einhverja þrjú til fjögurhundruð leiki á bakinu. Ef eitthvað er, þá er skemmti- legra að þjálfa konur. Þær eru miklar félagsverur og gefa mikið af sér. Það er gott að tala við þær. En annars er enginn stórmunur á að þjálfa stráka eða stelpur. Nálgunin er aðeins önn- ur," segir Alfreð Finnsson. Næsti leikur ÍBV er gegn KA/Þór í Eyjum og mikið þarf að gerast svo heimasigur verði ekki niðurstaðan. „Okkur varekki spáð góðu gengi en ég vonað- ist til að það gengi vel á heimavelli og að okkur tækistað ná í einhverstig á útivelli gegnþess- um betri liðum ÞórðurtilHK Þórður Birgisson hefur gengið til liðs við IiK en hann hefur spilað með KS á Sigluferði all- an sinn feril í meistaraflokki. Þórður er 22 ára gamall og átti mjög gott tímabil með Siglfirð- ingum í sumar og mun koma til með að styrkja lið- ið mikið. Hann skrifaði undir tveggja ára samning í gær rétt eins og Jón Þor- grímur Stefánsson sem kemur aftur í sitt gamla fé- lag eftir að hafa leikið með íslandsmeisturum FH und- anfarin ár. Einn besti knattspyrnukappi allra tíma við dauðans dyr BEST BERST FYRIR LÍFISÍNU Norður-írinn George Best var sagður illa haldinn í breskum íjöl- miðlum í gær en hann dvelst á sjúkrahúsi í London og er vart hugað líf. Hann var lagður inn í haust á Cromwell-spítalann þar í borg vegna nýrnabilunar. Mun það vera af völdum aukaverkana af lyljum sem hann tekur í kjölfar lifrar- ígræðslu sem hann gekkst undir árið 2000. Best hefur verið áfengissjúk- lingur stærstan hluta ævi sinnar og batt hún á sínum tíma enda á knatt- spyrnuferil hans. Nú virðist sem drykkjan verði honum að aldurtila en Best er nú 59 ára gamall. George Best spilaði með Manchester United árin 1963-1974 og vann á þeim tíma tvo Englands- meistaratitla og einn Evróputitil, árið 1968. Það ár var hann einnig kjörinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu. Hann er yfirleitt settur í sama flokk og Pele og Maradona en sjálfur sagði Pele að Best væri besti knattspyrnumaðurinn sem hann hefði séð spila. En þar sem hann var Norður-íri náði hann aldrei langt með landsliði sínu. Hann lék 37 landsleiki og skoraði í þeim níu mörk. Best var ein fyrsta stórstjarnan í fótboltanum en hann var oft nefnd- ur fimmti Bítillinn. Hann var hluti af frábæru liði Manchester United en leiddist ekki sviðsljósið og þess síður áfengið og spilavítin. Svo fór að hann var rekinn frá Manchester United árið 1974 fýrir óhóflegan drykkjuskap og að mæta ekki á æf- ingar og í leiki. Best var þá aðeins 27 ára gamall. Á næsta áratug spilaði hann með liðum á Bretlandseyjum og í Bandaríkjunum en hætti endan- lega árið 1983. Best lét aldrei af drykkjunni og síðast í janúar árið 2004 var hann dæmdur fýrir að aka undir áhrifum áfengis. Hann gekk þó til liðs við Portsmouth í nóvember síðastliðn- um sem unglingaþjálfari og átti sér þá ósk heitasta að koma nálægt knattspyrnu á nýjan leik. eirikurst@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.