Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2005, Blaðsíða 16
J 6 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Bláu augun
þín
Grímuklæddur maður
réðst inn í banka í aust-
urríska bænum Obermill-
stadt. Hann veifaði byssu og
krafðist þess að gjaldkerinn
afhenti alla peningana úr
skúffunni. Konan bak við
glerið hlýddi ræningjanum
en náði um leið að líta djúpt
í augu hans. Hún áttaði sig
fljótt á að í þessi bláu augu
hafði hún horft áður, því
þetta var fyrrverandi kærasti
hennar. Hún lét lögreglu
vita nafn hans og innan
skamms var hann handtek-
inn heima hjá sér, með aila
peningana.
Bjórar í Bret-
landi
Til stendur að koma aftur
upp bjórastofni í Bretlandi,
500 árum eftir að þeim var
útrýmt þaðan af veiðimönn-
um. Sex dýrum verður
sleppt í Gloucester-skíri á
næstunni eftir að hafa verið
undanfama mánuði í sótt-
kví, en þeir koma frá
Bæjaralandi í Þýskalandi.
Bjórinn er grænmetisæta og
næststærstur nagdýra.
Bændur á svæðinu vonast til
að bjórinn aðstoði við að
halda ám héraðsins hrein-
um þar sem þeir nota trjá-
greinar og tilfallandi gróður
við stíflugerð sína.
Hleranirá
netinu
Einkaaðilar og tækni-
þjónustur herja nú baráttu
gegn nýjum reglum banda-
rísku fjarskiptanefndarinn-
ar, FCC, fýrir
rétti. Reglunum
er ætlað að gera
löggæslumönn-
um auðveldara
um vik að hlera
samtöl sem fara ff am um
netið. Netveitur telja ákvæði
nýju reglnanná krefjast nýs
tæknibúnaðar sem yrði
bæði dýr og flókinn í upp-
setningu. Dómsmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna telur
reglumar þó nauðsynlegar
til að veijast mögulegri
hryðjuverkaógn og eitur-
lyfjasmygli.
Harry hæddur
Harry prins var skipað
að gyrða niður um sig á
dögunum ef marka má
fréttir Ananova-fréttastof-
unnar. Liðþjáifi þeirrar
sveitar sem Harry er nú í
þjálfun hjá skipaði Harry
að sýna á sér afturendann.
Rauður á svipinn leysti
Harry buxnastrenginn og
var kominn með buxurnar
á hælana, en nærbuxumar
enn um það helgasta, •
þegar liðþjálfinn skip- j
aði honum glottandi að
hífa þær upp aftur.
Óstaðfestar sögur
herma að nafn
kæmstu prinsins,
Chelsy Davy, sé
tattóverað á óæðri
enda hans. Harry var'
sagður hafa tekið
þessu vel.
Síðan Bandaríkin réðust inn i írak hefur 2001 Bandarikjamaður fallið. Talan blikn-
ar þó i samanburði við fjölda þeirra íraka sem látið hafa lifið á sama tima. Þeir
telja minnst hundrað þúsund og höfðu ekki skrifað undir ráðningarsamning með
klásúlum um bætur til eftirlifandi ættingja skyldu þeir falla. Látnir írakar fá ekki
umræðu eins og þá sem tröllríður fjölmiðlum vestanhafs og austan.
NOT IN MV
OAUSHIEr s NAMC
Qodloy
ii ’m,.
[ Lamaður Tomas Young
meö konu sinni Brie. Orðinn
andstaeðingur strlösins eftir
aðhafa lamast i irak.
Ekki í nafni dóttur
minnar Darrii Bodley
heldur uppi mynd afdótt-
ur sinni sem fórst 11. sept-
ember2001.
Afneitun Bush
laug - 2000 létust.
Bush Bandaríkjaforseti hefur komið sér í óþægilega stöðu. Eng-
in gjöreyðingarvopn voru í Irak þegar ráðist var inn í landið. Ekki
hafa fundist nein tengsl milli Iraka og al-Kaída eða Osama bin-
Laden. Bandarískur almenningur er að komast að þeirri niður-
stöðu að gefnar ástæður fyrir innrás í írak hafi verið tilbúningur
einn. Þeirra á meðal er hermaður sem nú er bundinn við hjóla-
stól, Tomas Young.
Fjórða apríl á síðasta ári var Tom-
as Young ásamt 24 öðrum hermönn-
um í bíl sem ætlaður var einungis 18
mönnum. Hann þurfti því að liggja á
gótfinu til að koma fleiri hermönnum
fyrir.
„Trukkurinn átti að vera með yfir-
breiðslu og brynvöm allan hringinn.
Hann hafði ekkert," segir Tomas. „Ég
þurfti að liggja á gólfinu með M16-
riffilinn minn við hlið mér og hefði
aldrei getað beitt honum til að
skjóta."
Auðvelt skotmark
Trukkurinn var í björgunarleið-
angri í borgarhlutanum Sadr í Bagdad
þegar írakskir uppreisnarmenn skutu
á hann ofan af húsþökum. Tomas og
þrír aðrir hermenn urðu fyrir skoti.
Fyrri kúlan sem fór í Tomas fór undir
herðablaðið og skar mænuna í stmd-
ur. Hann lamaðist samstundis.
„Þetta var eins og að skjóta fisk í
tunnu. Ég missti riffilinn og fékk doða
í finguma. Líkaminn hristist. Ég fékk
áfall," segir Tomas. „Ég man að ég
horfði á hendumar á mér og reyndi
að skipa þeim að hreyfa sig en ekkert
gerðist. Riffillinn lá við hliðina á mér
og ég gat ekki varist. Ég reyndi að
öskra en gat það ekki. Það kom ekkert
nema hvísl."
Seinni kúlan gróf sig í hnéð. Tom-
as fann vart fyrir henni.
Mótfallinn stríðinu
Tomas Young er ekki einn um að
hafa lamast eða misst útlim í stríðinu.
Fleiri þúsund bandarískir hermenn
hafa verið fluttir heim frá írak vegna
áverka sem þeir hafa orðið fýrir. Stór
hluti þeirra hefur snúist á sveif með
friðarsamtökum til að vekja athygli á
óréttmæti stríðsins í írak, þess sem
aldrei virðist ætla að ljúka. Tomas
hefur farið fram á að Bush hitti sig að
máli. Hann berst baráttu sem fær
meiri hljómgrunn meðal almennings
í Bandaríkjunum en nokkru sinni fyrr.
Hundruð þúsunda manna hafa tjáð
skoðun sína opinberlega með mót-
mælum víðs vegar um Bandaríkin.
Staða Bush hefur veikst til muna og
hefúr fylgi hans sjaldan mælst minna.
Einungis 39% voru fylgjandi stefnu
Bush samkvæmt könnun sem var birt
fyrr í mánuðinum. Það er lægsta fýlgi
síðan hann tók við embætti.
Lamaður en vill fjölskyldu
Helsti draumur hins 25 ára dáta
er að stofna fjölskyldu með konunni
sinni Brie. Tæknifrjóvgun er eina
leiðin sem fær er. Tomas er bitur
vegna stöðu sinnar. „Ég væri áreið-
anlega bitur þótt stríðið væri rétt-
mætt," viðurkennir hann. „Sú stað-
reynd að ég er lafnaður í hjólastól
vegna þess að við fórum í óréttmætt
og ósiðlegt stríð gerir illt verra."
Tala látinna hækkar enn
Samkvæmt talningu CNN hafa
2.198 látist úr herdeildum banda-
manna. 2001 Bandaríkjamaður, 98
Bretar, 26 ítalir, 13 Búlgarar, tveir
Danir og fjöldi manna af öðrum
þjóðemum. Yfir eitt hundrað þús-
und írakar hafa látist, flestir óbreytt-
ir borgarar. Heilu borgirnar hafa
verið jafnaðar við jörðu og 17 þús-
und írakar bíða örlaga sinna í yfir-
fullum fangelsum. Réttmæti stríða
hefur alltaf verið deiluefni. Ríkis-
stjóm Bush reynist þó þrautin
þyngri að sannfæra kjósendur sína
um að þeir hafi gert rétt í að leiða
þjóðina í stríð í Irak. Eftir því sem
tíminn líður verða áköll friðarsinna
háværari og fjölmennari. Hinir látnu
írakar hafa ef til vill að síðustu fund-
ið rödd til að tala sínu máli.
haraldur@dv.is
Ný reglugerð um dýravernd tekur gildi í höfuðborg Ítalíu
Rómverjar banna gullfiskabúr
Dýravemdunarsinnar fagna
mjög nýrri reglugerð sem hefur tek-
ið gildi í Róm. Hún bannar til dæm-
is kringlótt gullfiskabúr þar sem þau
er erfitt að þrífa og veita ekki nægt
súrefni í vatnið. Langlífi gullfiskanna
er þeim fýrir miklu því þar er nú
bannað að gefa fiska sem verðlauna-
gjafir, eins og hefur tíðkast.
Formaður ítalskra dýravemdun-
arsamtaka segir Róm ganga fram
Bannafi að gefa Gullfiskar munu sjá betri
tlma I betri heimkynnum I Rómaborg.
fyrir skjöldu í viðurkenningu á að
fiskar séu athyglisverðir einstakling-
ar sem eigi jafnmikinn rétt á samúð
og virðingu og hundar og kettir.
Reglugerðin kemur í kjölfar nýrra
dýraverndunarlaga sem kveða á um
harðar refsingar þeim til handa sem
yfirgefa hunda sína eða ketti. Hún
kveður einnig á um að hundaeig-
endur eigi að viðra hunda sína
reglulega og megi alls ekki stýfa
skott þeirra fýrir fegurðar sakir.
Skottstýfing hefur einnig verið
bönnuð hérlendis í nokkur ár.
í borginni Torino er tekið hvað
harðast á hundaeigendum, en þar er
leyfilegt að sekta eigendur hunda
um allt að 35 þúsund krónur fari
þeir ekki í það minnsta þrisvar á dag
út með hunda sína.
„Við verðum að gera það sem við
getum fýrir dýrin okkar sem í skipt-
um fyrir eilitla ástúð fýlla líf okkar,"
Vondir vifi ketti 150.000 kettir eru yfirgefn-
ir ár hvert á Itallu.
segir Monica Cirinna, lögfræðingur
sem kom að gerð reglugerðarinnar.
Dýravemdunarsinnar telja að allt
að 150 þúsund hundar og 200 þús-
und kettir séu yfirgefnir á hverju ári
á Ítalíu.
Harðar refsingar
[ Italir mega eiga von
á sektum fari þeir
ekki með hundana I
gönguferðir.