Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2005, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Röng synjun
um gjafsókn
Dómsmálaráðuneytið
studdist ekki við lög þegar
það neitaði félagi einu um
gjafsókn í skaðabótamáli
gegn ríkinu. Lögregla lagði
hald á traktorsgröfu í eigu
félagsins í máli sem var því
óviðkomandi og vill félagið
bætur. Dómsmálaráðu-
neytið studdist við umsögn
gjafsóknarnefndar sem tel-
ur gjafsókn eingöngu hægt
að veita einstaklingum. Fé-
lagið kærði synjunina um
að fá greiddan kostnað við
rekstur skaðabótamálsins
til Umboðsmanns Alþingis
sem nú hefur sagt að synj-
un ráðuneytisins hafi ekki
lagastoð.
Vilja völlinn
kyrran
Hagsmunastökin Áfram
í Dalvíkurbyggð hafa nú
hrundið af stað undir-
skriftasöfnun um allt land
til að mótmæla flutningi
innanlandsflugs úr Vatns-
mýrinni. Meðal annars
benda þau á að vegna ná-
lægðar Reykjavíkurflugvall-
ar við stærstu sjúkrahús
landsins sé það ómetanlegt
öryggisatriði að flugvöllur-
inn verði áfram staðsettur
þar sem hann er. Auk þess
benda þau á að ferðatími
almennra farþega tvöfald-
ast ef lent er á Keflavíkur-
flugvelli. Undirskriftirnar
verða afhentar samgöngu-
ráðherra.
Forseti íslands Ólafur Ragnar Grímsson er verndari átaks gegn fíkniefnum í tíu
evrópskum borgum. Hann segir engan undanskilinn þegar fíkniefnavandinn er
annars vegar. Sjálfur hefur hann horft á eftir ættingjum, vinum og kunningjum
verða fíkniefnadjöflinum að bráð. Forseti íslands er áhyggjufullur.
21 vill átta
efstu
„Það getur enginn keypt sér tryggingu fyrir því að einhver úr
hans fjölskyldu lendi ekki í þessum vanda sem fíkniefnin eru,"
segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti fslands, en í gær hófst for-
varnaverkefni í tíu evrópskum borgum, sem stýrt er frá íslandi.
Forsetinn er verndari verkefnisins og er það vel því Ólafur þekk-
ir þær grimmu afleiðingar sem fíkniefnaneysla hefur í för með
sér. Ekki bara fyrir þann sem ánetjast heldur fjölskylduna alla.
„Það hefur fólk úr minni fjöl-
skyldu glímt við þer.nan vanda og
sumir eru enn að glíma við hann,"
segir Ólafur Ragnar og ítrekar að
fíkniefnavandinn sé ekki einkamál
fárra og tengist ekki fjárhag fólks eða
stöðu þess í samfélaginu. Það getur
hver sem er ánetjast fíkniefnum.
„Fíkniefnaneytendur verða sífellt
yngri,“ segir Ólafur. „Og það sem
verra er að fólk sem á annað borð
hefur neyslu fíkniefna lendir verr í
því og hrapar fyrr niður á botninn en
hér á árum áður. Vandinn er stór og
meðferðarstofnanirnar fá sífellt
yngri fíkniefnaneytendur inn á gólf
til sín. Þeir koma ekki bara einu
sinni, heldur aftur og aftur.“
Á sjálfur vini og kunningja
í dópi
„Eg hef líka fylgst með þessum
vanda í gegnum ýmsa vini mína og
kunningja, þannig að ég hef kynnst
því af eigin raun hvað þetta er mikil
þrautarganga. Ekki bara fyrir við-
komandi einstakling heldur fjöl-
skylduna alla. Fyrir foreldrana, fýrir
systkinin, fyrir vinina. Fyrir hvern og
einn sem lendir í þessum vanda eru
tugir sem þjást með,“ segir Ólafur og
greinilegt að málaflokkurinn stend-
ur honum mjög nærri.
Hefurðu átt ættingja eða vin sem
hefur farið alla leið ígröfina?
„Nei, sem betur fer hefur ekkert
af því fólki sem ég þekki farið svo
langt," svarar Ólafur en hann hefur
meðal annars nýtt sér íslenskar bók-
menntir, bæði skáldskap og ævisög-
ur, til að kynna sér vandann betur.
Fyrir hver jól kemur út fjöldi bóka
sem lýsir hörðum fíkniefnaheimi ís-
lands.
„Það er merkilegt að fíknefna-
vandinn skuli vera orðinn það djúp-
stæður í samfélaginu okkar að það
eru að skapast hér sérstakar bók-
menntir - og það meira að segja
vandaðar og góðar bókmenntir -
sem spretta upp úr þessu þjóðfé-
lagslega vandamáli," bendir Olafur á
en það segir auðvitað sína sögu um
hversu fíkniefnin eru samtvinnuð
lífi íslendinga.
„Ég hef kynnst því of
eigin raun hvað þetta
er mikil þrautarganga. f
Ekki nóg að gert
Ólafur hefur einnig áhyggjur af
vexti glæpahringja í Evrópu. Island
er þar engin undantekning. Eins og
allir vita hefur dópið glæpavætt
samfélagið okkar og grimmdin nær
stundum út fyrir öll mörk. Ólafi
finnst ekki nóg að gert.
„Mér hefur fundist skorta á það að
menn viðurkenni þennan vanda. Það
þarf fjármuni og sameinaða krafta til
þess að glíma við hann því að kostn-
aðurinn síðar meir - ef ekki tekst að
stemma stigu við vandamálinu -
verður enn meiri,“ segir Ólafur Ragn-
ar, vemdari átaksins gegn fíkniefnum
sem hleypt var af stokkunum í tíu
evrópskum borgum í gær.
«•
-
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Islands Vemdariátaks gegn fíkni-
efnum i tíu evrópskum borgum sem
hleypt var afstokkunum á Bessa-
stöðum i gær. DV-mynd: Stefán
1
Ú
Alls gaf 21 kost á sér í
átta efstu sætin í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Hafnar-
firði. Samfylkingin hefur
verið með hreinan meiri-
hluta í bæjarstjóm á kjör-
tímabilinu með sex bæjar-
fulltrúa, en sjálfstæðismenn
hafa verið einir í minnihluta
með fimm fulltrúa. Allir nú-
verandi bæjarfulltrúar list-
ans sækjast eftir endurkjöri
nema einn, en það er Jóna
Dóra Karlsdóttir sem skip-
aði íjórða sæti listans við
síðustu kosningar.
Hrafn Gunnlaugsson fær stuðning úr óvæntri átt
Miðbæjarprinsinn vill byggja skýjakljúfa
„Það er best að byggja upp í loft-
ið. Þá nýtast lóðirnar best,“ segir
Engilbert Runólfsson byggingaverk-
taki sem skoðar nú möguleikann á
að reisa skýjakljúfa á suðvestur-
horninu. í gær var Engilbert í
Reykjanesbæ þessara erinda. „En
það er ekkert fast í hendi. Við emm
bara að skoða möguleikana og þurf-
um að sannfæra yfirvöld um að
þetta sé skynsamlegt," segir Engil-
bert sem gengur undir nafninu
Miðbæjarprinsinn eftir að hann
kynnti hugmyndir sínar um bygg-
Hvað liggur á?
ingu verslunarmiðstöðvar við
Frakkastíg og niðurrif gamalla og úr-
eltra húsa sem framkvæmdunum
fylgir. „Það hlýtur að vera framtíðin
að byggja upp í loft," segir Engilbert.
Helst lítur Engilbert til háhýsa af
stærðargráðunni 22 hæðir eða þar
um bil: „Það er nú varla hægt að
kalla þetta skýjakljúfa nema þá á ís-
lenskan mælikvarða. Hér eru ekki
svonaháhús."
Hugmyndir Engilberts Runólfs-
sonar falla vel að hugmyndum sem
Hrafn Gunnlaugsson hefur kynnt
myndrænt þar sem hann hefur
meðal annars snúið öllum Súðar-
,,Það liggur á að undirbúa heljarinnar dansveislu, segir Arnviður Snorrason skífuþeytari,
betur þekktur sem Exos.„Plötusnúðurinn Mistress Barbara kemur til landsins í fjórða sinn og
spila á NASA ásamt mér og Richard Cuellar um næstu helgi. Barbara er einn afþekktari
kvenplötusnúðum heimsins um þessar mundir og ferðast út um allt að spila á þekktum
klúbbum."
Manhattan
Lögheimili skýjakljúfsins.
. i
■■ ' ?víí*.~. ■
voginum upp á I kant og hækkað [ þannig að úr l hefur orðið stór- ' í í ji f ■*
Hefur Hrafn fengið
nokkurn stuðning við
hugmyndir sínar en Engil-
bert er fyrsti framkvæmd-
araðilinn sem lýsir yfir
vilja sínum til að taka slag-
inn og byggja á nýjum nótum.
Engilbert Run-
ólfsson Bygg-
ingaverktaki sem |
hugsarhátt.