Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2005, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005
Fréttir 23V
Gísli er drífandi frumkvöðull
og einstaklega skemmtilegur.
Gfsli er ofvirkur sveitavarg-
ur sem ætlar sér of mikið i
einu.
„Gísli hefur eina virkustu frum-
kvöðlahugsun sem ég hef
kynnst hjá nokkrum einstak-
lingi. Gífurlegur eldmóður ein-
kennirhann og nýtur
hann sín bestþegar
verkefnin eru mörg og
strembin. Sköpunar-
kraftur, afburða leikni
með /slenskt mál og
næmi hans við að sjá spaugi-
legar hliðar mannlífsins gera
Gisla að því„idoli" sem hann
verðskuldar að vera. Hann tekur
þó stundum ofmikið að sér og
þarfoftar að geta sagt nei.“
Magnús Magnússon, ritstjóri Skessu-
horns.
„Hann er mesti sveitamaður
sem ég þekki og myndi ganga I
gúmmiskóm við smókinginn, ef
hann vissi hvað það væri. Hann
er lika sannfærður urh að Borg-
arnes sé miðdepill Islands
efekki alheimsins. En
Gísli er mjög fyndinn og
skemmtilegur og það er
gaman að vera I kringum
hann.Svo erhann fínn frétta-
maður."
Logi Bergmann Eiðsson fréttamaður.
„Gísli er drífandi og óþrjótandi
brunnur skemmtilegra hug-
mynda. Hann er ferlega
skemmtilegur, fyndinn og
greiðvikinn. Hann er
reyndar svo greiðvikinn
að það kemur honum
stundum í koll. Hann er
einnig mjög drlfandi og
óhræddur við að hrinda hlutun-
um i framkvæmd, sama hvernig
þeir svo enda."
Guörún Björk Friðriksdóttir, vinkona og
bóndi í Lundareykjadal
Glsli Einarsson starfarnú sem fréttamaöur
á RÚV en hefur áður komiö aÖ frétta-
mennsku á landsbyggðarblaöinu Skessu-
hornisem hann stofnaöi ásamtMagnúsi
félaga sínum 1998. Hann hefur vakiö at-
hygli fyrir athyglisveröan fréttaflutning og
talanda. Hann stýrirþættinum Út og suöur
sem sýndur er á RÚV.
mesturá
íslandi
í vefriti fjármálaráðu-
neytisins kemur fram að
framvinda efnahagsmála
á Norðurlöndum hefur að
undanförnu einkennst af
hagvexti, minnkandi at-
vinnuleysi, lágri verð-
bólgu og afgangi opin-
berra fjármála. Reiknað er
með að hagvöxtur á ís-
landi verði mestur af öll-
um Norðurlöndunum á
þessu ári, eða um sex pró-
sent. Á næsta ári er gert
ráð fyrir að hagvöxtur
verði að meðaltali svipað-
ur og í ár, eða um þrjú
prósent, og ísland verði
áfram hæst með 4,6 pró-
senta hagvöxt.
Alþingismenn úr öllum flokkum vilja láta kaupa 80 milljóna króna gegnumlýsingar-
tæki sem leitar aö fikniefnum í vörugámum á aðeins þremur mínútum. í dag þarf að
tæma alla gáma til að skoða innihaldið og aðeins er skoðað í einn gám af hverjum
hundrað. Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður segir ekki hægt að sitja með
hendur í skauti. Árni Mathiesen fjármálaráðherra segist bíða úttektar tollstjóra.
Árni Mathiesen fjármálaráðherra vill ekki kveða upp úr með það
að fengið verði til landsins gegnumlýsingartæki sem leitað getur
að fíkniefnum og öðrum smyglvarningi í gámum á þremur mín-
útum. í umræðum á Alþingi var bent á að tíu tollverði þyrfti nú
til að losa einn gám og skoða hann. Tækið kostar 80 milljónir
króna.
„Ég trúi því ekki að það geti nokk-
ur maður verið á móti þessu tæki,"
segir Svavar Sigurðsson, baráttu-
maður gegn fíkniefnum, sem er einn
þeirra sem beita sér fyrir því að flutt
verði til landsins sérstakt gegnumlýs-
ingartæki til að leita að fíkniefnum í
vörugámum.
Tækið sem um ræðir mun kosta
um 80 milljónir króna. Því fylgir bíll
svo hægt væri flytja það í allar hafnir
landsins.
Gammageislar
Að sögn Svavars eru slflc gegnum-
lýsingartæki bygð á gammageislum.
Svavar segir slflc tæki nú þegar í notk-
un á öllum Norðurlöndunum utan
íslands.
„Þetta kostar peninga en það er
ekkert miðað við gagnið sem tækið
gerir," segir Svavar sem í meira en
áratug hefur verið gríðarlegur bar-
áttumaður fýrir eflingu toligæslu og
sjáifur lagt henni til búnað fyrir 5,7
miiijónir króna.
Tækið Kostar80
miiijónir og gegnum-
lýsir vörugáma í heilu
lagi á þremur mínút-
um. Allt sést, hvort
sem það er vopn eða
fíkniefni.
Svavar Sigurðsson
„Þetta kostar peninga en
það er ekkert miðað við
gagnið sem tækið gerir,"
segir Svavar Sigurðsson
sem berst nú fyrirað fá
afkastamikið gegnumlýs-
ingartæki til fslands.
Gegnum-
lýst á 3
mínút-
um
Gegn-
umlýsing-
artækið
var rætt á
Alþingi á
miðviku-
dag í síð-
ustu viku eft-
ir að Guð-
mundur
Guðmundur Hall-
varðsson „Við liggur
að fslensk æska geti
labbað út og keyptsér
eiturlyf og jafnvel á
auðveldari hátt en að
fá sér karamellur,"
segir alþingismaður-
inn og vill aðgerðir.
Hallvarðs-
son lagði fram fyrirspum til Árna
Mathiesen fjármálaráðherra.
„Bifreiðin sem við emm að tala
um og sem hugsanlega væri hægt að
taka á leigu er svo afkastamikil að
ekki tekur nema þrjár mínútur að
skoða 40 feta gám. Við sjáum hag-
ræðinguna í því miðað við að þurfa
tíu tollverði í að losa einn gám til að
geta skoðað hann," sagði Guðmund-
ur á Alþingi.
Lítil tæki eru til
Við DV sagði Guðmundur að af-
kastageta tollgæslunnar myndi auk-
ast gríðarlega fengist gegn-
umlýsingartækið keypt
eða leigt til lands-
ins. Um 170 þús-
und gámaeiningar
yrðu fluttar til
♦- landsins á
þessu ári
þannig að verk-
efnið væri risa-
vaxið. Eins og
staðan sé í dag
hafi tollurinn tvo
-evls;
Árni Mathiesen Fjármala-
ráðherra segir Tollstjórann I
Reykjavik skoða hvort kaupa
eigi gegnumlýsingartæki fyrir
gáma eða ekki. A meðan geti
hann ekki tekið ákvörðun.
sendibfla með gegnumlýs-
ingartækjum.
„Litlu tækin í sendibfl-
unum hafa þegar sannað
gildi sitt við að finna fíkni-
efni en til þess að nota þau
þarf að tæma gámana og
renna einstökum hlutum í gegn. Það
er auðvitað afar tímaffekt miðað við
að geta gegnumlýst gámana í heilu
lagi," sagði Guðmundur.
Auðveldara en karamellur
Guðmundur sagði á Alþingi að ís-
lendingar yrðu að gæta sína á að
dragast ekfd aftur úr í óprúttnu eitur-
lyfjaumhverfi:
„Það er orðið svo ósvífið að við
getum ekki setið með hendur í skauti
og látið þetta fara fram hjá okkur og
standa svo frammi fyrir því að við
liggur að íslensk æska geti labbað út
og keypt sér eiturlyf og jafnvel á auð-
veldari hátt en að fá sér karamellur."
Ekki metið til fjár
Fleiri tóku þátt í umræðunni um
gegnumlýsingartækið á Alþingi.
Guðjón Hjörleifsson, sjálfstæðismað-
ur úr Vestmannaeyjum, sagðist hafa
séð búnaðinn í notkun og að hann
ætti að geta margborgað sig fýrir tofl-
inn. „Held ég að toflurinn mundi fá
margfaldar tekjur fyrir þessum
kostnaði," sagði þingmaðurinn.
„Við metum það ekki til fjár þegar
hægt er að fara í aðgerðir eins og þær
að kaupa gegnumlýsingartæki til að
fylgjast með vörusendingum í gám-
um," sagði Jón Gunnarsson, alþingis-
maður Samfylkingar.
Bara 1 prósent skoðað
„Aðeins 1 prósent af gámunum
sem fluttir eru inn er skoðað. Það er
algerlega óviðunandi þannig að ég
hvet hæstvirtan ráðherra til að drífa í
að kaupa svona tæki. Sú fjárfesting
mundi fljótt skila sér," sagði Ásta R.
Jóhannesdóttir úr Samfylkingu.
Fjármálaráðherra fékk einnig
hvatningu frá ísólfi Gylfa Pálmasyni
úr Framsóknarflokki.
„Við þurfum að að leggja pening í
að kaupa öll þau bestu tæki sem
hugsanleg eru til að herða það eftirlit
því það er hræðilegt að sjá eftir ungu
efnilegu fólki verða eiturlyfjum að
bráð," sagði ísólfur Gylfi.
Ráðherra bendir á tollstjóra
Þrátt fyrir hvatningu á Alþingi
vildi Ámi fjármálaráðherra ekki lofa
að gegnumlýsingartækið yrði fengið
til landsins. Um mikla fjárfestingu
væri að ræða. Tollstjórinn í Reykjavík
hefði verið að kanna hver væri heppi-
legasta lausnin.
„Ég held að við verðum að láta
þeirri athugun ljúka áður en við get-
um tekið ákvarðanir," sagði ráðherr-
ann.
gar@dv.is
mm,
;'"91T„T.Úr-ÖIIU7’ flo_kkum Guðión Hjörleifssonjón Gunnars
son, Jon Bjarnason, Asta R. Jóhannesdóttir og Isólfur 'cylfi Pálma on
eru meðal þingmanna sem hvetja til kaupa á gegnumlýsingartæki