Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2005, Síða 40
-*
JT* J* £ £ íJjjj í 0 ÍJ Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
|jnafnleyndar er gætt. fj fj f) fj^J fj
SKAFTAHÚÐ24, í05fíEYKJAVÍK £STOFNAÐ 7970] S(M!5505000 5 690710 111117
• Vinsældir Bubba
Morthens á meðal
íslensku þjóðar-
innar fara ekki
dvínandi nema
síður sé. Við-
hafnarútgáfur af
plötum hans, ís-
bjarnarblús og
Konu, hafa verið í sölu í eina
og hálfa viku og hafa, að sögn
Eiðs Amarssonar hjá Senu,
selst vel. „Það er rífandi sala og
við erum hæstánægðir," sagði
Eiður. Báðar
útgáfurnar
eru gefnar út í
tvö þúsund
eintökum og
sagðist Eiður
búast við því
að þær
myndu duga
fram yflr áramót. „Það verða
ekki gefin út fleiri eintök af
þessum diskum."
VarÁrni Johnsen
Bryggjutröll?
3WKÍÍÚ1 0
Tröllin á Kvíabryggju blogga Gillzeneggerinn
en kelling
„Sumum kann að þykja ég forn-
eskjulegur í hugsun en í minni sveit
varstu barn eða hommi þar til 100
kg var náð," segir Grétar Sigurðar-
son líkmaður á bloggsíðunni
Bryggjutröllin.
Grétar og nokkrir félagar hans,
sem allir afplána refsidóma á Kvía-
bryggju, halda úti Bryggjutröllun-
um. Fangar á Kvíabryggju hafa
reyndar ekki aðgang að netinu
allajafna en með hjálp Fieiðars
Geirmundsonar, sonar Geirmunds
Vilhjálmssonar fangavarðar, geta
félagarnir komið hugrenningum
sínum á framfæri á veraldarvefn-
um.
Bryggjutröllin hafa notið mikilla
vinsælda að undanförnu enda fátt
sem þeim er óviðkomandi. Skrif
þeirra hafa meðal annars beinst að
einkaþjálfaranum Agli
Gillzenegger, sem verið hefur áber-
andi sem helsti boðberi metró-
mennskunnar á íslandi. Það er
lífsstíll sem köppunum á Kvía-
bryggju þykir lítið til koma. „Við á
Bryggjunni höfum lítilega kynnt
vanda Gillzenegg-
er ekki kveðjurnar
Fangarnir hafa kynnt
sér skrifhans og telja
drenginn 'súrrandi
samkynhneiqðan."
okkur skrif þessa manns og er það
einróma álit okkar, eftir lestur sál-
fræðibóka, að Gillzenegger er súrr-
andi samkynhneigður," segir Grét-
ar til dæmis í einum pistli sínum.
Kvennafrídagurinn var Bryggju-
tröllunum líka hugleikinn og tilefni
skrifa: „Til allrar hamingju var okk-
ur hérna á Bryggjunni ekki hleypt
út til að taka þátt í Kvennafrídegin-
um. Ég var allt fram að þessum
Kvennafrídegi mikill stuðnings-
maður jafnréttis kynjanna en nú er
ég ekki viss hvort þær eigi í raun
rétt á jafnháum launum. Við settum
bara á mute og gáfum stelpunum
einkunnir fyrir fegurð. Tvær, þrjár
þeirra fengu sex í einkunn en restin
var fullkomið crash & burn," segir
Siggi Þór í sínum pistli.
Húmorinn er greinilega í fyrir-
rúmi hjá strákunum sem skrifa á síð-
una og engin ástæða fyrir viðkvæma
að láta þau fara fyrir bijóstið á sér. Á
blogginu segir til dæmis að það sé
einungis vegna misskilnings sem
þeir sitji á Kvíabryggju og afpláni
dóm. Fyrir þá sem vilja lesa nánar
um líf strákanna á Kvíabryggju er
slóðinblog.central.is/bryggjutrollin.
FRJALSI
FJÁRFESTINCARBANKINN
www.frjalsi.is
Ertu að byggja, kaupa eða breyta sumarbústað? Þú getur auðveldlega
samið um hagstætt sumarhúsalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum.
Lánið getur numið allt að 60% af verðmæti eignar. Til framkvæmda er
lánað allt að 75% af byggingarkostnaði.
Ráðgjafar Frjálsa fjárfestingarbankans veita allar nánari upplýsingar. Þú
getur komið við í Lágmúia 6, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst
á frjalsi@frjalsi.is.
Dæmi um mán. greiðslubyrði af 1.000.000 kr.
Vextir % 4,95% 5,50% 6,50% 7,00%