Símablaðið - 01.12.1941, Side 55
S í M A fí L A Ð I fí
65
Kjörfundur F. í. S.
verður haldinn mánudaginn 12. janúar 1942. - Dagskrá skv. félagslögum.
Reykjavík 10. des. 1941.
STJÓRNIN.
kannske ekki tíma ti! að luigsa, heldur
flana af stað í blindni eins og þegar
nashyrningurinn lokar augunum áður
en hann ræðst að óvinum sínum.
Það þarf framsýna og stórhuga
menn til þess að veila forstöðu stórum
íVrirtækjum. Þeir verða að liafa vakandi
auga á því, sem unnt er að gera til bóta
og gera sér far um að lagfæra það, scm
að almanna dómi er ábótavant.. Það
virðist vera tiltölulega algengt að menn
séu ekki því sarfi vaxnir, er þeir liafa
tekið að sér að inna af böndum. Stund-
um vaxa fyrirtækin þeim yfir böfuð
og smæð þeirra sést bezt í samanburði
við fyrirtækið, sem þeir áttu að stjórna,
en reyndist þeim ofvaxið.
Sá maður, sem settur er yfir stórt
fyrirtæki verður að liugsa um fleira
en það, að fyrirtækið skili góðum arði.
Hann verður að vera mannvinur á-
samt því að vera vel að sér um allt það
er við kemur starfi bans og gela jafn-
framt notfært sér allar nýungar á sínu
sviði. Hann verður að geta tekið ráð-
leggingum frá öðrum þeim, sem betri
þekkingu hafa á sumuni málefiium en
hann. Hann verður að geta talað við
undirmenn sína og umgengist þá sem
jafningja sína. Að öðrum kosti bregð-
ast þeir því, sem þeim er trúað til. En
það vill enginn heiðarlegur maður
gera.
Mikið skortir ])ó á, að þess liafi alltaf
verið gætt, þegar valinn hefir verið
maður i báar stöður, að bann væri starf-
inu vaxinn og liefði skilyrði til þess að
vaxa með fyrirtækinu og fylgjast með
þróun tímans. Afleiðingarnar bafa fljótt
gert vart við sig. „Eftir höfðinu dansa
limirnir.“ Þessir menn hafa svo stund-
um orðið þeim þrándur í götu, sem
bafa verið samvizkusamir og nýtir
starfsmenn.
* XXX
RAFMAGN h.f.
Sími 4005. O Vesturgötu 10.
Amast raflagnir í hús og skip. Stöðvar settar upp. Allskonar viðgerðir á
rafmagnsáhöldum. — Fullkomið vélaverkstæði, sem annast allt það, er
lýtur að rafvélavirkjun og aðgerðum á hverskonar rafvélum.-