Símablaðið - 01.12.1953, Side 19
SIMABLAÐIÐ
29
eigendanna, aS prýða umhverfið, og veita
vegfarandanum augnayndi.
Margir þessara múra hafa nú verið brotnir
niður, og slik bygifingarstefna verið lögð til
hliðar, til ómetanlegrar ánægju fyrir allan
almenning, og prýði fyrir hvert byggðarlag.
Það var af mörgum talin goðgá, þegar grind-
urnar umhverfis Austurvöll voru rifnar nið-
ur, bletturinn lagfærður og blómum skrýdd-
ur, lagðir gangstígar um hann, settir bekkir
umhverfis styttu Jóns Sigurðssonar, og al-
menningi þannig gefinn kostur á að njóta
fegurðar þessa staðar í hjarta bæjarins. Það
var álit flestra að þetta mundi ekki fá frið
fyrir spellvirkjum, en þær hrakspár hafa
verið hraktar með reynslunni, og þar með
fengin sönnun þess, að bætt aðbúð hefur
örfandi áhrif á góðar umgengnisvenjur fólks-
ins.
Sama er að segja um aðbúnaðinn innan
dyra. Meðfæddur fegurðarsmekkur alls þorra
fólks hefur þau áhrif, að það veigrar sér við
að setja blett eða hrukku á það, sem fallega
og hreinlega um er búið, og gerir sér far um
að umgangast hlutina samkvæmt því. Því
miður eru undantekningar frá þessu eins
og flestu öðru, en það má ekki byggja reglur
á undantekningum, heldur hafa gát á undan-
tekningunum og reyna að sjá við þeim á við-
eigandi hátt, að þær megi ekki eyðileggja
gildi reglanna.
Sem betur fer er sá tími löngu liðinn, að
menn létu sig litlu skipta hreinlæti og heilsu-
samlegan aðbúnað á vinnustöðum. Allar
starfsbyggingar og innréttingar þeirra, eru nú
sniðnar með hliðsjón af því, að auðvelda allt
lireinlæti og auka þannig heilsufarslegt starfs-
þol fólksins. Það er talin ill og lítt þolandi
nauðsyn að margsetja í kennslustofur skól-
anna, og gagnger ræsting fer fram á öllum
skrifstofum og öðrum vinnustöðvum daglega,
og þykir enginn hlutur sjálfsagðari.
Það segir sig sjálft, að þar sem unnið er
allan sólarhringinn, hlýtur meiri tími og
vinna að fara í ræstingu og viðhald á vinnu-
staðnum, heldur en t. d. skrifstofum, sem að-
eins er unnið 5—6 lclst. virka daga, og þó
aðeins helming þess tíma alla laugardaga.
Það virðist þvi eðlilegt, að á vinnustað, þar
sem unnið er allan sólarhringinn, alla daga
ársins, yrði ætlaður þrisvar til fjórum sinn-
um lengri vinnutimi til ræstinga.
í Gufunesi vinnur karlmaður að ræstingu
innanhúss, og vinnur að meðaltali 7 klst. á
dag, alla virka daga. En auk ræstingar vinnu-
salanna og annars húsnæðis stöðvarinnar,
þarf hann að sinna fjölmörgu öðru, sem til
fellur innan húss og utan, til viðhalds og
þrifa. Enda hefur það sýnt sig, að einn mað-
ur gerir þessu engin viðunandi skil. Það
hafa margir spreytt sig á þessu, þeirra á með-
al bráðfrískir og vinnusamir menn, en eng-
um þeirra hefur tekizt að komast yfir verk-
efnin, svo að ekki vantaði mikið á að sæmi-
legt væri.
Auk þess er sá annmarki á, að um allar
helgar líða fullir tveir sólarhringar án þess,
að snert sé við nokkurri ræstingu, svo og
auðvitað allir helgidagar, aðrir en sunnu-
dagar, og allir aðrir dagar, sem ræstingar-
maðurinn kann að forfallast af einum eða
öðrum ástæðum.
Það eru sópuð gólf, strokið ryk af syllum,
að svo miklu leyti, sem tíminn leyfir, en
meira kemst maðurinn ekki yfir af ræstingu
innan húss, hversu vel sem hann væri af
Guði gerður. Hér þyrfti nauðsynlega að bæta
úr. Við, sem eigum við þetta að búa, gætum
t. d. vel hugsað okkur, að til viðbótar þessum
eina ræstingarmanni kæmi hér kvenmaður,
ynni til jafnlengdar við það sem nú er, og
bætti þar með úr, svo að ræstingin yrði i
skikkanlegu lagi. Það yrði áreiðanlega mjög
vel þegið af öllum, sem við þetta eiga að núa.
Fólk það, er vinnur í Gufunesi, gengur
ekki ósnyrtilegar um vinnustaðinn sinn en
almennt gerist, siður en svo. En fyrsta skil-
yrðið til að hægt sé að ætlast til snyrti-
mennsku af fólkinu, er að umhverfið, sem það
á við að búa, sé haft eins aðlaðandi og snyrti-
legt, sem aðstæður frekast leyfa. Þetta er
gert af þeim, sem um daglegan rekstur stöðv-
arinnar sér, svo langt sem það nær, og kost-
ur er á. En dugar bara ekki til, nema úr sé
bætt á einhvern þann hátt, sem hér hefur
verið drepið á. Við vonum, að þetta verði
tekið til athugunar, mjög bráðlega.
H. E.
♦