Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1953, Síða 27

Símablaðið - 01.12.1953, Síða 27
SIMABLAÐIÐ 33 hljómsveit kom og byrjaði að spila, unglirtgs- telpa í einshvers konar þjóðbúningi var með hljómsveitinni, og söng mjög laglega. Þarna á hótelinu bjuggu Ingrid Bergman, filmstjarnan fræga og hennar bóndi. Ekki voru þau neitt á ferðinni, héldu sig inni. Ma- donna ein þrifleg, dökk og bústin, vaggaði með tvíbura þeirra hjóna skammt frá ferða- fólkinu, ófeimin við myndavélarnar. Haldið var síðan áfram til Amalfi, og í heimleiðinni komið við i Sorrento, sem ligg- ur við Napólíflóann. Báðar eru þessar borg- ir mjög fagrar og skreyttar listaverkum, eink- um er þó leiðin sem farin var, ógleymanleg fyrir náttúrufegurð. Næsta morgun, sem var 7. april, var lagt af stað til Rómar. Var klukkutíma akstur til járnbrautarstöðvarinnar, en með henni þriggja tíma ferð til Rómar. Mörg jarðgöng voru á leiðinni, tók 7 mínútur að fara í gegn- um það lengsta. Miklir hveitiakrar voru á leiðinni sem farið var framhjá . Talsverð var eftirvæntingin að koma til þessarar borgar, sem að likum lætur, — því um enga borg i viðri veröld hefur verið jafn- mikið ritað og um hina frægu, fornu Róma- borg. í borginni eilífu var dvalið í þrjá daga, — til að skoða nokkuð að gagni það, sem þar var að sjá, hefðu þrjú hundruð dagar ekki nægt. Álitið er að borgin hafi verið stofnuð árið 753 f. Kr. Fjöldi konunga hefur ríkt þar og hafa þeir ekkert til sparað, að gera borg- ina sem glæsilegasta, enda er hún undur fögur. Um alla borgina eru stórkostleg minn- ismerki, fagrir gosbrunnar og listaverk. Skoðað var rómverskt hof, Pantheus. Er það kringlótt í laginu með hvelfingu mikilli, byggt árið 25 f. Kr. Nú er það notað sem kirkja. í þvi er hljómfegursta orgel í Róm. Var leikið á það meðan við vorum stödd þar, og var hljómfegurðin dásamleg. Mikil listaverk prýddu þetta musteri, en víða mátti sjá eyður þar sem listaverk höfðu staðið, en verið tekin og flutt í „St. Péturs- kirkju.“ Hurðin, sem var fyrir kirkjunni, var úr kopar; vegur hún 26 tonn og er 700 ára gömul, og aldrei þurft viðgerðar við. Þegar við komum í St. Péturskirkju, stærstu kirkju heims, urðum við alveg orðlaus, slik byggingar-, málara- og höggmyndalist á ein- um og sama stað var alveg undraverð. Upphaflega var þarna önnur kirkja, en árið 1500 var hún rifin og byrjað á byggingu St. Péturskirkju. Um 200 ár tók að byggja þetta listarinnar smíði. Meistararnir Rafael og einkum Michelangelo unnu við skreytingu kirkjunnar. Hvelfingin, sem er 132,5 m. á hæð, er skreytt listaverkum Michelangelo. Til að gera sér nokkra hugmynd um stærð- ina, má nefna Kristsmynd, sem máluð er nokkuð ofan miðju veggjarins, virkar að neðan séð normal stærð, en fingur myndar- innar er 1 meter á lengd, og annað eftir þvi. Lengd kirkjunnar er 211 metrar. Altarið, byggt af Bernini, er 29 metra hátt, skreytt skira gulli. Kirkjan rúmar 80 þúsund manns. Þótt fleiri en ein messa væri þar samtímis, mundu þær ekki trufla hvor aðra. Skírnar- athöfn stóð yfir meðan við og fleiri ferða- mannahópar vorum staddir þar, en það hafði engin áhrif á athöfnina. Engin sæti sáust í kirkjunni, þótti okkur það harla einkennilegt. Á nokkrum stöðum voru afþiljur, helgaðar hinum einstöku páfum. Þar lágu kórónur, skreyttar gulli, demöntum og eðalsteinum, og önnur forkunnarfögur listaverk. Allir veggir, útskot og innskot frá gólfi og upp í loft — þessa risahæð, voru skreytt skýra gulli, mar- mara, mosaik, myndum, málverkum og dá- samlegum höggmyndum. Sagt er að 360 kirkjur séu i Róm. Við skoðuðum nokkrar fleiri, en engin komst í hálfkvisti við St. Pét- urskirkju, enda er hún stærsta og fegursta kirkja heims, og ekki með nokkru móti hægt að lýsa, svo að gagni komi eftir stutta við- dvöl, þeirri afburða byggingar- og skreyt- ingarlist, sem þar er að sjá. Næst skoðuðum við Vatikansafnið; það er eitt undrið frá. í stífa þrjá kukkutíma geng- um við í gegnum langa ganga, í gegnum stóra sali, sem margir voru á stærð við Þjóðleik- hússalinn okkar, og aðrir enn stærri, gólf og veggir þaktir meistaraverkum, var þó ekki nema brot af því, sem þarna var, sem við gátum litið, þótt greitt væri gengið. í göng- unum voru kirkjulikön (model) úr silfri og öðrum dýrmálmum, sem voru gjafir til páfa frá flestum löndum heims. Borðin, sem Iík- önin stóðu á, voru einnig lireinustu völund- arsmið, greypt gulli og lögð mosaik á hinu fegursta hátt. Á veggjum var dýrindis gobe-

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.