Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 22

Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 22
S IMABLAÐIÐ 60 fæturna, að hann færi með einskonar at- vinnuróg, væri stéttarsvikari. Og hann fékk að heyra það. Atomskáld les upp „ljóð“ sín. Þessháttar viðbrögð hjá listamönnum gefa tilefni til að álykta, að gagnrýni sé þeim slíkur þyrnir í augum, að hún verð- skuldi einungis fyrirlitningu þeirra. Þeim ætti þó að vera ljós sú staðreynd, að ís- lendingar kunna allglögg skil á „leirburð- arstagli og holtaþokuvæli“ og góðum skáld- skap og hafa í því efni þroskameiri list- smekk en margar aðrar þjóðir. Þess vegna geta listamenn ekki umflúið dóma almenn- ings á verkum þeirra, þótt takast megi með gífuryrðum og hrokafullum gagn- sóknum að má þá út af síðum dagblað- anna. Hreinskilin og hlutlæg gagnrýni um list- ir og menningarmál er jafn nauðsynleg listþróuninni í landinu, sem störf garð- yrkjumannsins lystigarðinum, er vökvar og hlúir að skrautjurtunum, en upprætir illgresið. Sú krafa ætti því fyrst og fremst að vera borin fram af listamönnunum sjálfum, að heiðarleg gagnrýni á verkum þeirra sæti í fyrirúmi fyrir auglýsinga- skrumi, meðmælum um skáldastyrki eða stéttaráróðri. Sú tíð er upprunnin, að all- ir viðurkenna rétt listamannsins á að fá umbun fyrir verk sín og lífsviðurværi, sem skapar honum tækifæri til listsköpunar og þroska. Sem betur fer er ekki lengur deilt um tilverurétt listiðju í landinu. Listin er ekki álitin lúxus, sem hægt sé að vera án, heldur lífsnauðsyn. Þess vegna geta rök- ræður og gagnrýni um listir, jafnvel ó- réttmætar aðfinnslur, ekki lag't grundvöll að atvinnuleysi listamanna, nema þá þeirra, sem kafna undir nafngiftinni, ekki frekar en ákúrur um lélega heilbrigðis- þjónustu g'erir lækna að sveitarómögum. En það eru gerðar kröfur til listamann- anna og þeim ætti að vera ljóst, að því strangari, sem þær eru, því frjóari akur sá þeir í. Ef hvei'jum og einum leyfist ó- átalið að bera á borð fyrir almenning fá- ránlegar hugdettur og skrípiverk í nafni listagyðjunnar, er það sönnun þess, að listaþroskinn er á lágu stigi hjá báðum aðilum. En þessu er, sem betur fer, ekki þannig farið. Alþýðu manna er tíðrætt um allar greinar listanna, vegna þess að við eigum nokkra góða listamenn. Skoðanir skiptast sem eðlilegt er, og' enginn lætur sér til hugar koma, að listamennirnir eigi að hlaupa eftir öllum blæbrigðum þeirra. Það mætti æra óstöðugan! Hins vegar mun þykja sennilegt, að þeim sé nokkur styrk- ur í því, að list þeirra finni hljómgi'unn hjá þeim, sem þeir tjá sig fyrir. En vanti slíkan hljómgrunn, verður hann ekki skap- aður nema með góðri list. Áróður fyrir listgildi ákveðinna forma eða vei'ka færir engan nær til að njóta þeirra, fremur en mönnum verður skipað að gleðjast eða hryggjast. Oft bryddir á þeirri skoðun, að líku sé farið um listina og vísindin, að baki hvoru-

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.