Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 23

Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 23
SIMABLAÐIÐ 61 „Listamaðurinn“ málar verkamanninn á sína vísu. tveggja búi slíkur lærdómur, að það sé einungis á valdi sérfræðinga að skera úr um, hvað sé nýtilegt og hvað eigi engan tilverurétt. Auðvitað er tæknin, í hvaða mynd sem er, þekking á staðreyndum og þjálfun, og nauðsynleg í sköpun listaverka. En á þessu er sá reginmunur, að listin orkar fyrst og fremst á tilfinninguna, en vísindin á skynsemina, og þessir náttúru- kraftar fara ekki alltaf í hver annars klæði. Og svo er margt sinnið sem skinnið. Það, sem einum er unaður og lífsfylling, er öðr- um lítils virði. Þess vegna er ókleift að staðhæfa, að eitt listform sé öðru göfugra. Það skiptir litlu máli, á hvern hátt náð er til tilfinningalífs manna. Aðalatriðið er, að boðskapur listaverksins sé í eðli sínu göfgandi og fagur og skeri úr, nái til skiln- ingarvita njótandans. Listamaður, sem læt- ur slíkt atriði sem vind um eyrun þjóta eða flokkar alla gagnrýni undir þekk- ingarskort eða illgirni, þyrfti því að taka sig til bæna fyrst og bæta þekkingu sína. í nafntoguðum enskum skóla var aginn sagður svo strangur, að nemendum brast æfinlega kjark til að spyrja kennarann um torskilin efni vegna ótta við að koma upp um fáfræði sína. Þegar þeir gátu ekki svarað, áttu þeir að þegja og taka með velþóknun við ákúrum, ef þeim var þá ekki samstundis vísað úr tíma. Slíkt viðhorf til almennings virðist nokk- uð almennt hjá þeim listamönnum okkar, sem mest láta að sér kveða á ritvellinum, rétt sem þeir vilji hlaupa fram hjá þeirri staðreynd, að eins og krafan um svör við ýmsum ráðgátum er runnin af rótum sam- félagsþarfanna um bætta lífsmöguleika, og aukinnar menningar, er listsköpunin á- vöxtur á meiði þess andlega þroska, sem þjóðin hefur öðlast. Þess vegna er lífrænt samband milli listamanna og njótenda verka þeirra, jafn frjóvgandi fyrir báða aðilja sem greiður aðgangur lífssafans frá rótum trésins upp í blómgandi greinar þess. Þetta lífræna samband viðhelzt og dafn- ar bezt með hreinskilnum og frjálsum sam- skiptum á þeim vettvangi, sem hvorugur aðilinn þarf að óttast gagnaðilann, sem sagt, að njótendum listanna leyfist að láta í ljós skoðanir sínar án ótta við vansæm- andi brigslyrði um að þeir t. d. „kunni ekki að lesa“, og listamen eigi ekki á hættu hótanir eða raunverulegar framkvæmdir á, að gengið verði á verk þeirra „með hamri og þau mölvuð niður mélinu smærra". Sigurjón Davíðsson. Þeir, sem kynnu að eiga einstök blöð eða árganga af Símablaðinu og Elektron, og vilja láta þau, eru beðnir að gefa sig frani við ritstjóra blaðsins. — Einnig aettu þeir símamenn og konur, seni vildu eignast eittlivað af eidri blöðum, að snúa sér sem fyrst til ritstjórans.

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.