Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1957, Page 27

Símablaðið - 01.12.1957, Page 27
s IMASLAÐIÐ Ö.í bæjar eða bvggðarlags, og gefum heil- luiga ráð, svo orlofsins megi njóta sem bezt. ()g sitjum heima. Eii við hugsum sitt af hverju, sú starfsemi er ekki klafabundin. Hvers- vegna á starfsmaður Landssímans á þessum eða hinum staðnum rétt á hvild frá störfum? Hversvegna er ríkisstofn- !llllllllllllllllllllill!llllllllllllllllllllllllll!ll Eftir lestur fundargerðar: e.......„algjör lágmarkskrafa, að ein og hálf stúlka vinni, auk stöðvarstjóra.“ „Ein og hálf“ Þá er bara spurningin, hvor helmingurinn er betri? spyr teiknari Símablaðsins. IIIIIHIIIHIIIIIIIIIUIIIIIIHIIIHIIIIIIIIIIIIIIIII unum lokað, til þess að gefa fólkinu frí? Hversvegna lokar jafnvel okrarinn sinni sölubúð í sama tilgangi? Við vit- um svörin, þótt við spyrjum. Raun- verulega hljóða spurningarnar á okkur sjálf, sem erum klafabundin ennþá. Þeir fáu, sem enn verða að sætta sig' við að fá ekkert orlof, sem lieitið geli því nafni, eiga skilvrðislaust sinn rétl, eins og' aðrir starfsmenn ríkisins. Það er tilgangslaust að segja, að þeir fái sitt orlofsfé, og fyrir það geti þeir keypt sér starfskrafta, meðan þeir fari að heiman. Þeim er orlofspeningurinn ekki meira virði til þessara nota, en færey- ingi er heimakrónan liér uppi á Islandi, af þeirri einföldu ástæðu er áður get- ur, að enginn er til, er getur gengið inn í störf þeirra. — Gjaldmiðillinn er verð- laus. Einasta leiðin, sem fær er, og líka er sjálfsögð, er sú, að vinnuveitandinn leggi til þann starfskraft, sem nauðsyn- legur er til fullnægingar orlofslögunum. Þannig leysir heilbrigðistjórnin úr mál- um, til þess að læknar dreifbýlisins fái sitt sjálfsagða orlof. Læknir eða kandi- dat fer úr einu læknishéraði í annað og sinnir þar störfum í sínar þrjár — fjórar vikur, eða livað það nú er, en viðkomandi læknir nýtur síns orlofs með fjölskyldunni einhversstaðar úti á landsbyggðinni, eða jafnvel erlendis. Þannig má leysa bnútinn, ef vilji er fyrir hendi. Við væntum þess, að póst- og síma- málastjórnin dragi ekki lengur að við- urkenna á borði réttindi starfsmanna sinna á þessu sviði sem öðrum. Starfs- fólkið rækir sínar skyldur. Það óskar þess jafnframt, að fá að njóta sinna rétt- inda. Og gott væri það, að þurfa ekki

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.