Símablaðið - 01.12.1957, Síða 34
72
S I M AB LAÐ IO
Sjálfvirka bæjarsímastöðin
í Reykjavík og Hafnarfirði 25 ára
Stœkkun fyrir 6000 nicrner í Reykjavík
tekin í notkun.
Bjarni Forberg.
Fyrsta desember voru 25 ár liðin frá því
að sjálfvirku stöðvarnar í Reykjavík og
Hafnarfirði tóku til starfa.
í fyrstu voru 4000 nr. í Reykjavik og 300
í Hafnarfirði. Árið 1938 (14. júní) voru 1000
ný númer tekin í notkun, en sú stækkun,
sem þá var gerð, var ætluð fyrir 2000 nr.
Af þeim 1000 númerum voru 500 tekin í
notkun 11. júní 1945 og önnur 500 28. febr.
1946.
Var sjálfvirka stöðin í Reykjavík þannig
orðin fyrir 6000 númer.
20. júni 1946 var enn lokið við stækkun
fyrir 1000 númer.
Fimmta stúkkunin var fullgerð 21. sept.
1948 —- og símanúmerum þá breytt í 4 og
5 tölu númer.
Sjöttu stækkun, 1000 númer, var lokið í
des. 1952.
Og loks var lokið við stærstu stækkunina
og hún tekin í notkun 6. júlí s.l. —- eða
3000 númera viðbót við gömlu sjálfvirku
stöðina og 3000 númer í nýju símahúsi í
Grensás við Suðurlandsbraut.
1 Hafnarfirði var 1949 (í júní) bætt við
500 nr., en áður hafði verið bætt við 200 nr.
Eru þá nú í þessum stöðvum i Reykjavík
og Hafnarfirði símanúmer fyrir 17000 not-
endur.
Eins og fyrr er sagt, var síðustu og
stærstu stækkun sjálfvirku stöðvarinnar lok-
ið og hún tekin í notkun i júlí. Er því verki
nánar lýst i ræðu, er Bæjarsímastjóri hélt
við það tækifæri, og birt er hér á eftir.
Tomas Haarde, sem verið hefur stöðvar-
stjóri við sjálfvirku stöðina frá fyrstu tíð,
hafði yfirumsjón með uppsetningu stöðvar-
innar.
Auk starfsmanna sjálfvirku stöðvarinnar
unnu að þvi verki 5 Svíar.
Mikil þörf var orðin fyrir stækkun þessa,
enda lágu fyrir þúsundir símapantana —
og hafði biðtími sumra verið yfir 12 ár.
Er þess að vænta, að slíkt ástand komi
ekki aftur, — enda hafa forráðamenn Bæj-
arsímans fullan hug á að koma i veg fyrir
það.