Símablaðið - 01.12.1957, Side 42
so
S I MAB LAÐ I Ð
A 18. þingi B.S.R.B. var kosin sér-
stök milliþinganefnd, til þess að vinna,
ásamt stjórn Bandalagsins, að lagfær-
ingu á launamálum kvenna.
1 nefndinni eiga sæti: Yalborg Bents-
dóttir, Anna Loftsdóttir og Inga Jó-
hannesdóttir.
Nefndin hefur haft samstarf við
nefnd kvenna í Starfsmannafélagi Bík-
isstofnana og tekið þátt í fundi, sem
Hellisgerði er ekki það eina, sem
Hafnfirðingar geta stært sig af.
Símastúlkur í Haínarfirði.
Ingveldur Herbertsdóttir, Vigdís Jónsdóttir,
Sigurlaug Björnsdóttir, Ragnh. Jónsdóttir.
—o—
haldinn var um launamál kvenna, að
tilhlutan þess félags.
Skýrslum var safnað um laun starfs-
manna innan starfsmánnafélagsins í 30
mismunandi ríkisstofnunum.
Starfsmenn þessara ríkisstofnana
voru samtaís 643 og skiptust þannig,
að 36% voru konur, en 64% karlar.
Athugun þessi leiddi í ljós, eins og
komið hefur fram í útvarpi og hlöð-
um, að meira en helmingur kvennanna
var í lægri launaflokkum, en fært virt-
ist að hjóða nokkrum karlmanni.
Kom það greinilega fram í skýrslun-
um, að flokkun á launum kvenna virt-
ist rnjög handahófsleg og ýmis störf,
sem hæði fylgdi vandi og áhyrgð, voru
mun betur launuð, ef karlar höfðu þau
með liöndum.
Formaður B.S.R.B. hefur ásamt for-
manni nefndarinnar, átt viðræður við
fjármálaráðuneytið með þeim árangri,
að það ráðuneyti hefur lofað að taka
til athugunar bráðahirgðalagfæringar,
sem hægt væri að gjöra innan ramma
launalaga, ef sýnt þykir að konur vinni
verðmætari störf en núverandi starfs-
heiti þeirra g'jörir ráð fyrir.
Eins og gefur að skilja, á nefndin
enn eftir mikið starf, en æskilegt væri
að hún fengi sem allra fyrst í liendur
þau mál, sem óskað er að lnin taki
til meðferðar.
Fyrir Alþingi liggur þingsályktunar-
tillaga um skipun jafnlaunanefndar,
„er athugi að live miklu leyti konum
og körlum eru raunverulega greidd
söniu laun fyrir jafnverðmæta vinnu“.
Það má vænta þess, verði þessi nefnd
skipuð, þá verði stórt skref stigið til
að lagfæra laun þeirra kvenna, sem