Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 45
5IMABLAÐIO
83
STARFSAFMÆLI.
Fimmtíu ára.
1. júlí Þorsteinn Gíslason, símastj. Seyðisf.
Er hann þriðji þeirra símamanna, sem náð
hafa þeim starfsaldri.
•
Fjörutíu ára.
1. jan. Kristján Snorarason, verkstjóri.
I júlí Karl Ásgeirsson, varðstjóri.
15. marz Anna Sigurveig Guttormsdóttir,
bókari.
Þrjátíu og Jimm ára.
1. júní Sigríður Valdemarsdóttir, bókari.
IIii •
Þrjátíu ára.
1. jan. Marínó Jónsson, símritari.
1. sept. Þóra Þorsteinsdóttir, varðstjóri.
Á þessu ári hafa verið settir upp 150—160
notendasímar í sveitum landsins. Flestir
þeirra í Eyjafjarðar- og Skagafjarðar-
sýslum, einnig nokkrir í Árnessýslu. Með
hliðsjón af Bæjatali 1951, er nú talið að
notendasími sé kominn á 97% allra sveita-
býla á landinu.
itisniii • iiil
2. janúar s.l. hófust almenn skeytavið-
skipti á teleprinter, milli Reykjávíkur og
Nevv York.
sm • líHisffl
6. júlí var tekin í notkun ný viðbót við
sjálfvirku stöðina í Rvík.
•
27. júní s.l. fór fram fyrsta Radio mynda-
sending héðan til Stoekhólms. Var myndin
af mótttöku Svíakonungs á Reykjavíkur-
flugvelli, og heppnaðist myndasendingin
mjög vel.
iiiiiiii • iiSi
Lokið var á árinu við byggingu nýs síma-
húss í Borgarnesi, og hafin bygging nýs
simahúss á Akranesi, Keflavík og Gerðum.
Lokið var byggingu þriðju íbúðarblokkar
Byggingarfélags símamanna, við Dunhaga.
20. júlí s.l. var Innheimta Landssímans
flutt í hinn nýbyggða hluta símahússins, sem
er Aðalstrætismegin. Er þetta rúmgott og
vistlegt húsnæði, með auknum starfskröft-
um, sem full nauðsyn er fyrir, þar sem um
6000 nýir símanotendur bættust við hér í
bænum.
Guðm. Jóhannesson,
Innheimtugjaldkeri.
ilili • ■■ ,
Fullgerð voru símahús fyrir sjálfvirku
stöðina í Grensási, og viðbót við Landssíma-
húsið í Rvík.
Skiptiborðsverkstæðið hefur verið flutt í
Grensáshúsið, og þangað hafa einnig nokkr-
ir verkstjórar flutt bækistöð sina.
j • iiiliii
Dánardægur.
28. apríl Gunnar Bachmann, fyrrverandi
ritsímavarðstjóri.
13. júlí Sverrir Halldórsson, verkstjóri við
sjálfvirku stöðina í Rvík.
15. ágúst Olaf Forberg, fulltrúi á skrif-
stofu Bæjarsímans.
1. nóv. Brynjólfur Eiríksson, fyrrv. línu-
verkstjóri.