Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.09.1962, Page 17

Símablaðið - 01.09.1962, Page 17
Pétur Brandsson: sökum, að þetta eru dagskrármál í dag. Ekki er séð fyrir það, hverjar afleiðing- ar þessara vinnubragða verða. En þau eru örlagaríkt spor afturábak innan vébanda þessarar stofnunar. Öll félög innan stofnunarinnar hafa með ályktunum bent á nauðsyn þess að taka yfirstjórn hennar og skipulag til endur- skoðunar, og gert tillögur um það til ráð- herra. Þau hafa vænzt þess, að hann skipaði nefnd til þess starfs þeirra manna, sem þar þekkja bezt til. Þessi stofnun er stórveldi á íslenzkan mælikvarða og oft kölluð ríki í ríkinu. Hún er margþættust allra opinberra stofn- ana og krefst skipulagningar og verkaskipt- ingar, sem ekki er handahófskennd. Tugir milljóna geta oltið á því, hvernig á þeim málum er haldið, þó ekki sé í öðru eri notkun húsnæðis og vinnufyrirkomulagi. Og um það munu flestir sammála, séin þekkja til þessara mála, að brýn nauðsyn sé á því, að lög og reglugerðir hér að lútandi verði endurskoðuð sem allra fyrst. Og þess er vænzt af félagssamtökunum, að símamálaráðherra láti það ekki dragast úr hömlu. Og þess er einnig vænzt, að til þeirra starfa verði valdir fulltrúar frá ríkisvald- inu, félagssamtökum starfsfólksins og við- skiptavinum símans. itofaaAMCLhÁyJiQL „Bölv.. baunin hrökk o’ní mig, þegar andsk.. baulið byrjaði.“ Menn litu upp frá jólagrautnum og horfðu með vantrúarbrosi á Sigga Jóns, þar sem hann sat með skeiðina á milli var- anna og vel uppgerðan sakleysis og undr- unarsvip á andlitinu. Ömurlegt væl loftvarnaflautunnar skar sig í gegnum loftið og minnti einna helzt á lýsingu ísl. þjóðsagnanna á útburðarvæli öræfanna. Enda engu síður fyrirboði vá- legra tíðinda. Siggi horfði á brytann með stríðnis- glampa í augunum. Hann átti það til að vera dálítill prakkari. Nú var hann senni- lega að reyna að snuða sér út kampavíns- flöskuna, sem var jólavinningur þess, sem hreppti baunina í grautnum. „Þú færð nú enga kampavínsflösku út á svona fullyrðingar, Siggi minn.“ Brytinn leit á Sigga með vanþóknun í svipnum. „Við 'bíðum og sjáum hvað setur. Ef baunin kemur ekki í ljós þegar grautur- inn er uppétinn, getum við rætt málið frekar.“ „Það getur nú verið að helv.... kokkurinn hafi misst tvær baunir út í grautarpottinn, hann er alltaf svo fjandi skjálfhentur, og þá á sá sem fyrst finnur baun flöskuna.“ Siggi leit á okkur félagana til skiptis, eins og hann vonaðist eftir stuðningi okk- ar, við þessa snjöllu rökfærslu sína. Bryt- inn þagði, hann þekkti Sigga of vel til þess að ætla sér að ræða þetta frekar með nokkrum árangri. „Mér finnst það nú glœpsamlegt, að nota svona orðbragð á sjálfum jólunum. Menn, sem játa kristna trú, eiga að haga sér eins og kristnum mönnum sæmir, bæði í orði og verki.“ 5ÍMAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.