Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.09.1962, Síða 19

Símablaðið - 01.09.1962, Síða 19
fyrir sig, ef hægt var að tala um slíkt á þessum stað „Hjörðin“ var harla ólík á að sjá. Þar var fólk á öllum aldri, allt frá hvítvoðungum í örmum mæðra sinna tii örvasa öldunga, sem sennilega hafa ekki gert víðreist frá heimilum sínum, undir venjulegum kringumstæðum. Þarna voru fulltrúar frá flestum stéttum Bretlands. Minnist ég þess í því sambandi, að hin illræmda stéttaskipting Bretanna virtist al- gerlega hafa þurrkazt út meðal þessa fólks. Þar mátti sjá prúðbúna herramenn í inni- legum samræðum við kolakámuga hafnar- verkamenn, jafnvel deila bróðurlega inni- haldi vasapela hvors annars beint af stút, rétt eins og þeir væru gamlir „klúbbfélag- ar“. Skrautklæddar hefðarfrúr sáust sitja flötum beinum á rikugu gólfinu, rugg- andi fram og aftur í vonlausri tilraun til að hugga töturlega klædd börn, auð- sjáanlega úr fátækrahverfum borgarinnar. Jafnvel afklæðast dýrindis loðkápum og breiða yfir illa klædd gamalmenni, er lágu umkomulaus og einmana í myrkustu afkim- um kjallarans. Það er sagt, að þar sem dauðinn læðist um, hrynji hrokinn af okk- ur mönnunum. Nokkrar hjúkrunarkonur, klæddar í ein- kennisbúning Rauðakrossins, gengu u.m meðal fólksins og reyndu að hjálpa, þar sem þörfin var mest. Þegar ég virti fyrir mér hið óeigingjarna líknarstarf þessa fólks og bar það saman við það, sem var að gerast fyrir utan byrg- ið, datt mér ósjálfrátt í hug, sagan um nautin í fjósinu í Odda, sem þrifust í beinu hlutfalli við orðbragð fjósamannsins. Var hér ekki að ske eitthvað svipað á þessari nóttu. Væri nokkuð sennilegra en að hel- stefna jarðarbúa hefði gefið djöflinum kær- komið tækifæri til að hafa vistaskipti? Yfirgefa undirdjúpin og leggja undir sig háloftin og léki þar nú lausum hala, ásamt öllum sínum aðstoðarpúkum. En englar himinsins hrökkluðust undan djöfulgangi þeirra hingað, undir yfirborð jarðar og gengju hér á meðal okkar með huggandi og græðandi hendi. Ég hrökk upp af þessum hugleiðingum mínum við það, að hreyfing kom á fólkið sem stóð næst okkur, þar sem við stóðum, um það bil í miðjum kjallaranum. í einu horninu hafði maður nokkur tillt sér upp á gamlan kassa, sem þar stóð og var senni- lega undan gömlum bókum, frá þeim tíma er kjallarinn þjónaði sínu fyrra hlutverki sem bókageymsla. Byggingin yfir okkur var stærsta bókasafn Liverpool-borgar. Okkur lánaðist ekki að komast það nærri, að við heyrðum greinilega hvað um var að vera. Allt í einu byrjaði maðurinn að tala til fólksins. Hann talaði um heilaga jólahátíð, frið á jörðu og bræðralag meðal mannanna. Við ættum að elska náungann eins og sjálfa okkur og á þrengingarstund- um lífsins ættum við að sýna þolinmæði. Þetta allt væri ásköpuð örlög, sem ekki yrði fram hjá komizt. Þess vegna væri auðmýkt og þolinmæði svo nauðsynleg fyr- ir hvern mann. Ef við aðeins værum þolin- móðir, mundi allt snúast okkur í vil, annað hvort hérna megin eða hinum megin graf- ar. Mér heyrðist félagi minn muldra eitt- hvað í þá átt, að hann vildi nú helzt að það yrði hérna megin. Láði ég honum það ekki, eins og á stóð. Mér fannst ræðan stangast illilega á við staðreyndir líðandi stundar. Mér varð litið á andlitin í kringum mig, var forvitni á að vita, hvernig fólkið tæki þessum boð- skap mannsins. Ég bjóst við að sjá þar endurspeglast þær mótsetningarkenndu tilfinningar, sem bærðust með sjálfum mér undir þessari prédikun. Svo var ekki. Af andlitum fólksins, sem stóð þarna í kring um okkur, skein hin innilega trúarsann- færing þess manns, sem aðeins sér eina leið til bjargar, náð forsjónarinnar. Ekki vissum við, hvort þarna var prestlærður maður að verki, eða aðeins leikmaður, sem hafði fundið köllun hjá sér til að flytja þessu veslings fólki boðskapinn um bræðra- lag meðal manna og þjóða, meðan trú- bræður hans hömuðust við að slátra hver öðrum yfir höfðum þeirra. Hér þurfti sann- arlega „brezk“ þolinmæði að koma til skjalanna, ef vel átti að fara. Eftir ræðu mannsins var aftur tekið tii við sönginn. Allt í einu hljómuðu til okkar tónar, sem vöktu hjá okkur tregablandna sImablaðið

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.