Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.09.1962, Blaðsíða 24

Símablaðið - 01.09.1962, Blaðsíða 24
um lyft slíkum mönnum upp úr óreglunni og skapað þeim nýjan grundvöll í tilver- unni. Hvora leiðina mennirnir fara, er erfitt að segja um fyrirfram, og hér á landi mun hvergi vera gerð nein alvarleg tilraun til þess. Reglan er oftast sú, að þeir sem eiga áhrifamenn að, fá starf hjá því opin- bera, hinir, sem ekkert eiga undir sér, gera það ekki, a.m.k. miklu síður. Enginn opin- ber aðili hér á landi hefur enn viljað nota þær leiðir sem til eru, til að kanna starfs- hæfni manna og skapgerð og verður því að álykta, að yfirvöldin séu ánægð með ástandið eins og það er. Allt þetta grefur hins vegar daglangt og náttlangt undan áliti hins opinbera. Maðurinn, sem vinnur hörðum höndum jafnvel 16 tíma á sólarhring, fær enga ofurást á þeim yfirvöldum, sem launa ná- búa hans höfðinglega fyrir að koma sem svarar 6—7 tíma annan hvern dag á vinnu- stað, en láta það algerlega óátalið þótt þessi gæðingur yfirvaldanna trufli svefn- frið erfiðismannsins jafnvel nótt eftir nótt með drykkjulátum, en sofi fyrir lokuðum gluggum á daginn. Sá embættismaður, sem hefur mælt með slíkum vesalingi í opinbera þjónustu, og heldur verndarhendi yfir honum þar, þarf ekki að búast við, að hann geti ferðazt með tandurhreinan mannorðsskjöld í allra augum, jafnvel þótt hann hafi annars margt vel gert. Það, sem hér er sagt, eru þó ekki nein rök fyrir því, að opinber rekstur afmanni starfsfólkið yfirleitt. Það sannar hins vegar það, sem áður var bent á, að rekstur hvers fyrirtækis stendur og fellur fyrst og fremst með æðstu stjórn þeirra. Þeim mun betri sem hún er, þeim mun þroskavænlegri og betri mun hún fyrir hvern einstakl- ing, sem hjá því vinnur. Hinu er svo ekki að leyna, að á vissum sviðum hlýtur opinber rekstur alltaf að verða þyngri í vöfum en einkarekstur. Opinbert fyrirtæki getur ekki tekið sömu áhættu og einkafyrirtæki og má segja, að undir vissum kringumstæðum geti það lagt nokkur höft á athafnafrelsi manna og hug- Launasamningarnir Launasamningarnir við rikisvaldið eru nú komnir á það stig, eftir margra mánaða undirbúning af hálfu kjara- ráðs, að sezt er að samningaborði og reynir nú fyrst á gildi þess samnings- réttar, sem opinberir starfsmenn hafa fengið. Bandalagsþing hefur samþykkt til- lögur kjararáðs um launastigann og flest sambandsfélögin lýst stuðningi við tillögur þess um skiptingu í flokka. Eft- ir er að vita, hvort mat þeirra, sem með samningana fara fyrir ríkisvaldið, fer lieim við tillögur kjararáðs og mat á starfi flokka og einstaklinga. Það er ekki ósennilegt, að í ljós eigi eftir að koma, við fengna reynslu, að miklum vandkvæðum er bundið fyrir kjararáð að gera heildarflokkun eftir þeim upplýsingum og gögnum, sem það fær í hendur, sem nær eingöngu eru þess eðlis, að vera byggðar á sjálfsmati starfshópa og einstaklinga, án þess að samtímis liggi fyrir til samanburðar álit annara ábyrgra og kunnugra aðila. Þeir, sem kunnugir eru þeim tveim endur- skoðunum á launalögum, sem farið hafa fram, hafa sína sögu að segja af skiln- kvæmni. Hitt myndi þó vera ofmælt, að tala um afmönnun í því sambandi. Ef ekki er því meiri hörgull á vinnu- afli, eins og stundum getur komið fyrir, má yfirleitt segja, að hvert fyrirtæki fái það starfsfólk, sem það á skilið og manni það eða afmanni eftir því sem yfirmenn- irnir hafa vit og manndóm til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.