Símablaðið - 01.09.1962, Blaðsíða 33
Það gerist nú i æ ríkari
mæli, að ísl. símamenn sæki
út fyrir pollinn til lengri eða
skemmri námsdvalar, og er
gott til þess að vita. 1 febrúar
síðastl. fór Jón Árni Vilmund-
arson, starfsmaður á Radió-
verkstæðinu, til námsdvalar
í Englandi og stundaði nám
við Marconi College í Chelms-
ford, um nokkurra mánaða
skeið. Lætur Árni hið bezta
af dvölinni í Englandi, og væri
vel ef fleiri símamönnum gæf-
ist kostur á slíkum ferðum í
náinni framtíð.
Okkur simafólki er kunnugt
um, að stjórnendur símans
íylgjast vel með tæknilegum
nýjungum á sviði símamála
og að unnið er markvisst að
því að notfæra sér á sem full-
komnastan og hagkvæmastan
hátt þá þekkingu. Má i því
sambandi geta þess, að það
er mun ódýrara að nota síma
hér á landi en í nágranna-
löndunum, þrátt fyrir það að
við þurfum að flytja allt okk-
ar símaefni inn frá öðrum
löndum.
Þá geri ég ráð fyrir, að
stjórnendum símans sé kunn-
ugt um, að þeir hafa yfir að
ráða starfsfólki, sem vinnur
störf sín af alúð og að meðal
þess er fjöldi manna, sem
unnið hefur símastörf árum
saman og náð mikilli leikni
í starfi.
Mér sárnaði því þegar ég
las grein, sem ég rakst á í
einu höfuðborgarblaðinu, og
geri ég ráð fyrir að öðru síma-
fólki, sem las þessa grein, hafi
fundizt sem mér, að þar væri
skrifað um íslenzk símamál
af mikilli ósanngirni. Að visu
er blað þetta stundum skrifað
í nokkrum æsifregnastil, eins
og sjá má á eftirfarandi glefs-
um, sem teknar eru úr um-
ræddri blaðagrein, en því mið-
ur er það ekki einsdæmi, að
skrifað sé um viðskipti við
símann af meira kappi en for-
sjá.
Blað þetta komst m. a. svo
að orði, að „þjónustan, sem
Landssími fslands léti í té,
væri ekki samboðin slíkri
menningarstofnun, sem Lands-
síminn ætti að vera“. Síðan
talar blaðið um ,,að ekki sé
til nein hliðstæð stofnun í hin-
um frjálsa heimi, sem okri
svo gegndarlaust á viðskipta-
vinum sínum sem Landssím-
inn“. Þá nefnir blaðið nokkur
atriði, sem það nefnir
„lymskulegar aðferðir, sem
Landssíminn beiti“, svo sem
yfirsamtöl og forgangshrað
og „ósvífnasta tiltækið" segii
blaðið vera hin furðulega
númerabreyting, sem gerð var
fyrir skömmu.
Það hafði verið tilætlun min
að svara þessum atriðum
hverju fyrir sig, með þvi að fá
upplýsingar varðandi þau hjá
viðkomandi forráðamönnum
simans og leiðrétta þannig
þann misskilning, sem kom
fram í fyrrnefndri blaðagrein.
Þá vildi það til, að hr. Bjarni
Forberg, bæjarsímastjóri,
sendi einu dagblaðinu hér í
borg mjög greinagóðar upp-
lýsingar varðandi öll þau at-
riði, sem ætlun mín var að fá
upplýsingar um til birtingar
hér í blaðinu.
Landssíminn ætti að gera
meira að því að senda blöð-
unum ýmsar upplýsingar svip-
aðar þeim og bæjarsímastjór-
inn sendi frá sér. Þá ætti síma-
fólk og að gera sér far um
að kynna sér þessi mál, og
má benda á, að amerísk síma-
félög leggja mikla áherzlu á
að fræða starfsfólk sitt um
ýmisleg atriði bæði tæknileg
og fjárhagsleg, er varða við-
skiptavinina. Þessi amerísku
símafélög segja, að því meira
sem starfsfólkið viti um þessi
atriði, þvi betri fulltrúar sé
það fyrir símafélögin út á við.
Það væri því ekki úr vegi, að
Símablaðið tæki að sér að
flytja okkur símafólki ýmsan
fróðleik frá forráðamönnum
simans, og mætti byrja á því
að birta fyrrnefndar upplýs-
ingar bæjarsímastjórans.
H. H.
NWIÍUWWWWWWWVW
ATHUGASEMD.
Símablaðið hefur margsinn-
is á undanförnum árum farið
þess á leit við stjórn stofn-
unarinnar að hún sæi um
fræðsluþátt í blaðinu, og jafn-
an fengið þar um góðar undir-
tektir. En útkoman hefur ver-
ið 000. Símablaðinu er kunn-
ugt um mýmörg dæmi þess, að
starfsmenn stofnunarinnar
hafa orðið sér og stofnuninni
til skammar, og fundið sárt
til þess, — sökum skorts á
vitneskju um nýjungar í
rekstri og þróun hennar. —
Og enn bíður blaðið eftir slík-
um fræðslugreinum.
Ritstjórinn...