Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.09.1962, Síða 20

Símablaðið - 01.09.1962, Síða 20
gleði og juku heimþrána meir en hollt var — „Heims um ból“ (Holy Night). Þessi sálmur, sem er sameign allra krist- inna manna og allir skilja, — á hvaða máli, sem hann er sunginn, — hljómaði nú til okkar í dapurlegra umhverfi og undir sorglegri kringumstæðum en ég minnist að hafa nokkurn tíma heyrt hann áður. Við tókum undir sönginn og í hin- um sameiginlega söng þessa fallega jóla- lags, fannst mér ég tengjast þessu fram- andi fólki nánar, — skilja það betur og vera fúsari til að deila með því þrenging- um þess. Klukkan eitt um nóttina heyrðist aftur í loftvarnaflautunum, en í þetta skipti fluttu þær okkur gleðilegri boðskap en hið fyrra sinn. Hættan var liðin hjá, í bráð að minnsta kosti. Við gengum hljóðir út úr loftvarnabyrg- inu. Við höfðum orðið mikillar reynslu ríkari. Verið þátttakendur í jólamessu, sem ekki eingöngu boðaði ,,orðið“, heldur einn- ig staðreyndir. Allt í einu rauf félagi minn þögnina: „Ég hef verið að velta því fyrir mér, sem fyrir okkur bar í loftvarnabyrginu. Það undrar mig mest í því sambandi, að almenningur í þessum styrjaldarlöndum skuli stöðugt meðtaka boðskap prestanna um friðar- og bræðralags-hugsjónina með auðmýkt og trúarsannfæringu. Þrátt fyrir það, að þessi hugsjón er fótum troðin og bræðralagskenningin þverbrotin á íbú- um þessara landa, hvað eftir annað, öld eftir öld.“ Mér varð svarafátt. Félagi minn hélt áfram: „Hugsaðu þér annað eins brjálæði, að ungir menn þessara þjóða, — einmitt sú kynslóð, sem á að erfa þessa hugsjón krist- innar trúar, — skuli með valdboði vera sendir á drápsvélum yfir til nágranna- landsins með það í huga, að granda sem flestum trúbræðrum sínum, á sjálfri jóla- nóttinni. Drepa jafnt karla sem konur og börn og sem einnig játast undir sömu bræðralags-hugsjónir. Ef þessi háttur er hafður á þessum málum öllu lengur, hlýt- ur það að hrista gnmdvöll kristilegs sið- gæðis, eða jafnvel sprengja hann alveg og gefa þannig öfgastefnum einræðisins byr undir báða vængi.“ Ég hlustaði undrandi á þessar heimspeki- legu bollaleggingar félaga míns. Ég þekkti hann ekki frá þessari hlið, sem þarna kom í ljós. Daglega virtist hann sneiddur því, að hafa áhyggjur af því, hvernig heims- málunum yrði bezt fyrir komið. Ekki hafði ég heldur orðið var við, að áhyggjur út af eilífðarmálunum héldu fyrir honum vöku. Venjulega var hann léttur í lund og virtist taka hlutunum eins og þeir voru hverju sinni. Ekki veittist okkur erfitt að finnna leið- ina niður að höfninni. Rauðleitum bjarma sló á umhverfið, frá hinum mörgu eldum, sem loguðu víðsvegar 1 borginni. „Líttu á!“ Félagi minn benti með bein- um handlegg í áttina að stærsta bálinu. „Hversu mörgum mannslífum heldurðu að þeir hafi fórnað í nótt, á altari stríðsguðs- ins.“ Hann leit til mín, eins og hann vænti svars frá mér við þessari spurningu. En þegar ekkert svar kom, hélt hann áfram: „Hvar er „glæpurinn” hans Sigga Jóns? Finnst þér ekki erfitt að koma auga á hann?“ „Mér þykir þú hafa átt erindi í „stríðs- kirkjuna“ kunningi. Ég gat ekki stillt mig um að stríða honum dálítið. „Þú virðist hafa endurskapazt undir messunni og stíg- ur nú fram í öllu þínu veldi, sem heil- steyptur heimspekingur, með spádómsgáfu að auki.“ Hann hló og hristi höfuðið. „Ég er eng- inn heimspekingur, en ég hef bæði augu og eyru og mér hefur verið gefinn hæfi- leiki til að hugsa, þó að hann sé kannske ekki eins þroskaður og hjá heimspeking- unum þínum. Ég skal fúslega viðurkenna, að nóttin sú arna hefur snortið mig djúpt og komið mér til að hugsa um þá hluti, sem ég hef lítinn gaum gefið hingað til. Hann þagnaði, hallaði sér dálítið aftur á bak og horfði upp til skýjanna, eins og hann undraðist þessa dauðakyrrð, sem nú ríkti í kringum okkur og byggist við að símablað ð

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.