Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.09.1962, Side 25

Símablaðið - 01.09.1962, Side 25
ings- og þekkingarlej'si stétta og ein- staklinga á starfi og gildi annara aöila, og ofmati á sjálfum sér. Þetta má segja, að sé mannlegt, og vart tiltökumál, þegar um er að ræða starfshópa með sérstæða menntun, sem án afláts verða að berjast fyrir bættum kjörum. En hvimleiðara er það, og því miður þó oft til meiri árang- urs, þegar einstaklingar ganga í skrokk á þeim, sem lokaorðið hafa í þessum efnum, og skera þá ekki ábyrgð sína og kröfur um menntun við neglur sér. Má sjá árangur slíks áróðurs við ýms- ar stofnanir frá fyrri endurskoðun launalaga, — og við þessa stofnun virð- ist einn slíkur árangur eiga nú að fram- lengjast, þó það raski öllu samræmi í yfirstjórn stofnunarinnar og sti'íði gegn staðreyndum. En hver önnur leið er þá væn- legi'i til réttlátari niðurstöðu? Finna verður leið til þess að undir- búningsstarf að launasamningum sé unnið á fi'æðilegan hátt. Því jafnvel þó að nú verði samið um launaflokkun, mun hún aldrei vei’ða á þann veg, að um liana verði ekki deilt, — og í mörg- um tilfellum með réttu. Reikna má þvi með, að sjálfa flokkunina verði að end- urskoða fljótlega og á traustari grund- velli. Þessa endurskoðun og endurmat verður að fela fösturn embættismönn- um, óháðum ríkisvaldi og stéttafélögum, en skipuðum af forseta landsins eftír innstilllingu fjármálaráðlierra og B.S. R.B. — og ráði hvor um sig vali jafn- margra embættismanna til þessa starfs. Önnur störf skyldu þeir ekki hafa á hendi. Þeim bæri að kynna sér starfs- aðfei’ðir annara þjóða i þessum efn- um, og afla sér ítai'legi’ar þekkingar á öllum störfum lijá hinu opinbera, — ábyrgð, menntunarkröfum o. fl. í byi’jun myndi þetta verða starf 4 embættismanna. Skyldu þeir jafnan hafa á reiðum höndum allar nauðsynlegar upplýsingar um ný og eldri störf, urn breytingar á hlutföllum milli flokka, og svo frv. Kjararáð og ríkisstjórn skyldu við hverja endurskoðun leita álits þess- ara embættismanna og liafa til hlið- sjónar við sanmingsgerðir. Með þessu móti myndu báðir aðilar losna innan tíðar við hvimleitt nöldur, ofmat og vanmat. Því smám saman myndi skapast viðurkenning á flokka- skiptingu við opinber störf. A. G. Þ. Orðsending frá símnotanda Þegar ég heyri þína rödd í 1000 svara, minnist ég þinna mjúku vara. Mikil er það mæða og raun að mega eigi með þér vera á nótt og degi. Heitt ég þrái í mínum bláa ástarfuna að finna þig bakvið Fríkirkjuna. SÍ M AB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.