Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.09.1962, Page 29

Símablaðið - 01.09.1962, Page 29
stórhópum til Bandaríkjanna, til þess að búa sig undir væntanleg störf á Gnfufskálum, til þess að halda uppi heiðri Landssímans og til þess að standa við þau loforð, er gefin höfðu verið um rekstur stöðvarinnar. Og á meðan þeir streittust með sveitt- an skallann við námið, héldu framkvæmdirnar sleitu- laust áfram á Gufuskálum. Reist voru hús, og þar komið fyrir öllum þeim tækjum, sem þarf til að reka lóranstöð, allt frá aflvélum upp í 625 feta hátt mastur. Og vegna væntanlegra starfsmanna og fjöl- skyldna þeirra voru reistar 12 íbúðir með öllu þvi sem ibúð þarf að fylgja á þessum siðustu tímum menningarinnar. Tíminn leið, menn komu smátt og smátt heim frá námi. Fluttu bú og börn hingað vestur, þar til komið var hér fullskipað starfslið. En í árslok 1961 fóru síðustu útlendu sérfræðingarnir héðan. og 1. janúar 1962 tók Landssíminn að sér allan rekstur stöðvarinnar. Stuttu seinna var þessa mikla atburðar í sögu Landssímans minnzt hér á Gufuskálum með veglegum hátíðahöldum. Þar afhenti ambassador Bandaríkjanna á íslandi, póst- og símamálastjóra lykla stöðvarinnar og fól honum gæzlu og rekstur Lóranstöðvarinnar á Gufu- skálum. Hér, eins og annarsstaðar þar sem tveir og fleiri íslendingar eru saman komnir, fór snemma að bera á stofnun ýmis konar félaga og klúbba. Yarla höfðu þrír fyrstu starfsmennirnir verið hér nema nokkr- ar vikur, þegar þeir hófu bátasmíði í frístundum sínum, og í kjölfar þessa hófst liin forna verstöð hér aftur til virðingar, enda eru hér við strendur ein auðugustu fiskimið landsins. Ljósmyndaklúhb- ur er starfandi hér og notfæra meðlimir lians sér óspart hina heillandi náttúrufegurð, sem hér hlasir við augum, hvert sem litið er. Sumum starfsmönnum hér þótti nú samt, sem hin mikla fegurð landsins birtist aðallega í ýmsum hraunmyndunum og hinni endalausu auðn, og ákváðu að lagfæra sköpunarverkið svolítið, helguðu Úr hófi á Gufuskálum, þegar Loranstöðin var afhent. Á Gufuskálum er aö rísa upp sérkennileg nýlenda, þar sem búa eingöngu tceknimenntaöir útlagar frá Landssímanum. En þeir una gloöir viö sitt. ænr S)ím aííacflc) foeáSum prumbtjcjCfjum mjrrar lorcjar off jjöLlijícíum feirra jóla ocf mjárá l?ue i; jur Framh. á bls. 77. Forn fiskbyrgi í hrauninu. SÍMAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.