Símablaðið - 01.09.1962, Page 44
Nýr viðskiptafræðingur
í Hagdeild.
Fröken Björg Gunnlaugs-
dóttir, viðskiptafræðingur hef
ur verið ráðin fulltrúi 1. stigs
í Hagdeild P.&S. frá 1. sept.
síðastl.
Hún er fædd á Grund á
Langanesi 30. april 1934. Stú-
dentsprófi lauk hún við
Menntaskólann á Laugarvatni
vorið 1956, og prófi í við-
Björg Gunnlaugsdóttir
skiptafræði við Háskóla Is-
lands á s.l. vori.
Ætla má, að hin nýstofn-
aða deild, Hagdeildin, fari
hvað úr hverju að setja svip
á stofnunina. Þar vinna nú 7
manns, sem lokið hafa stú-
dentsprófi, og eru af þeim
4 viðskiptafræðingar.
Hér er sem sagt von um
að upp sé að risa hávaxinn
og blómlegur gróður á hin-
um andlegu steppum þessar
ar miklu stofnunar.
Hann varð sextugur 13. apríl nú í ár.
I tilefni þess flytur Símablaðið honum
lieillaóskir, þótt nokkuð sé komið fram
júir heiðursdaginn, en það er kannske
líka byrjun á annál félagsmanna, þar
eð skammt er eftir til nýs árs.
Við samstarfsmenn Friðþjófs færum
lionum einnig sérstakar kveðjur og
þakkir af þessu tilefni og minnumst
þess, að hann var einn af stofnendum
Félags simstöðvastjóra fyrir rúmlega
tuttugu árum, og er enn í þeim hópi.
Friðþjófur er Ijúfur og tillögugóður fé-
lagi og svo mun hann einnig vera i dag-
legum störfum og samskiptum við
menn. Hann tók við símastjórastarfi af
föður sínum, 1. des. 1934, og við póst-
afgreiðslunni 1. jan. 1956, en þá voru
þær stofnanir sameinaðar á Húsavik.
Aður hafði Bjarni Benediktsson gegnt
póstafgreiðslumannsstarfi þar um
fimmtíu ára skeið.
Ég færi Friðþjófi bæði persónulegar
og félagslegar kveðjur og árnaðaróskir
og læt fylgja aðra kveðju, sem hon-
umum barst á afmælisdegi hans frá
Karli Kristjánssyni alþingismanni, og
munum við einnig vilja taka undir
liana:
Háttvísin, heiðarleikinn,
hæfnin fjölþætt og vönd.
Gæfan og gjörvileikinn,
gengu þér öll á hönd.
Karl Helgason.
78
5ÍMABLAÐIÐ
j