Símablaðið - 01.09.1962, Side 45
Vr folayAtífim
Vetrarstarfsemi Tafl- og spilaklúbbsins er nú í
fullum gangi. Síðastliðinn vetur var starfsemi klúbbs-
ins líkt og undanfarið, aðallega fólgin í tafl- og spila-
kvöldum, en þó voru lialdin nokkur skemmtikvöld,
sem tókust vel.
Síðastl. vetur var spilað á þriðjudagskvöldum, en
teflt á fimmtudagskvöldum. Haldin voru nokkur
innanfélagsmót og tekið þátt í skákkeppnum.
Skákmeistaramót símamanna fór fram í tveim
flokkum, eins og undanfarin ár. Skákmeistari varð
Karl Þorleifsson, hlaut bann 6% vinning af 8 mögu-
legum (sjá töflur). Tveir efstu menn úr 2. flokki
flytjast upp í 1. flokk, en tveir þeir neðstu í 1. flokki
niður í 2. flokk.
Að afloknu meistaramótinu fór fram hraðskák-
mót, og sigraði þar hinn gamalkunni skákmeístari
símamanna Jón Agústsson, hlaut hann 17% vinn-
ing, annar varð Árni Hafstað með 15% vinning.
Hin árlega taflkeppni síma, pósts og útvarps ann-
ars vegar og Hreyfils hins vegar, var liáð 15. janú-
ar s.l. I þetta skipti sigraði samfylkingin með mikl-
um yfirburðum, lilaut 18 vinninga móti 9 vinning-
um Hreyfils. Teflt var á 27 borðum og lagði sím-
inn til 14 menn, sem stóðu sig mjög vel, hlutu 10
vinninga. Útvarpið lagði til 7 menn, og fengu þeir
5 vinninga, og Pósturinn lagði til ö menn, sem fengu
3 vinninga.
Til hinnar árlegu skákkeppni fyrirtækja sendi
klúbburinn tvær sveitir. 1. sveit keppti í C-liði. Hlaut
hún 2. sætið í þeim riðli, % vinning á eftir sigur-
vegurunum. I hraðskákkeppni hlaut hún 2—3 sæti
í flokknum. Sveitina skipuðu Jón Ágústsson, Karl
Þorleifsson, Guðmundur Þorláksson og Snorri Jónas-
son; varamenn: Arnór Þorláksson, Sæmundur Ösk-
arsson og Árni Egilsson. 2. sveit símans keppti í E-
riðli, hlaut hún 3. sæti í riðlinum og varð í 4. sæti
í hraðskákkeppninni. Sveitina skipuðu Ivristján Jóns-
son, Sigurður Baldvinsson, Guðlaugur Guðjónsson
Skákmeistarinn Kari Þorleifs-
son með verðlaunabikarana.
Spilakeppni,
Guðlaufíur Guðjónsson
í þunsum þönkum.
Fjórir verðlaunahafar.
SÍMAB LAÐIÐ