Símablaðið - 01.12.1964, Page 14
Auglýsing frá
Póst- og símamálastjórninni:
Evrópufrímerki 1965
Hér með er auglýst eftir tillögum að Evrópufrímerki 1965.
Tillögurnar sendist Póst- og símamálastjórninni fyrir 1. janúar 1965 og
skulu þær merktar dulnefni, en nafn höfundar fylgja með í lokuðu umslagi.
Póst- og símamálastjórnin mun velja úr eina eða tvær tillögur og senda
hinni sérstöku dómnefnd Evrópusamráðs pósts og síma CEPT, en hún velur
endanlega hvaða tillaga skuli hljóta verðlaun og verða notuð fyrir frímerkið.
Fyrir þá tillögu, sem notuð verður, mun listamaðurinn fá andvirði 2.500
gullfranka eða kr. 35.125.00.
Væntanlegum þátttakendum til leiðbeiningar skal eftirfarandi tekið fram:
1. Stærð frímerkisins skal vera sú sama eða svipuð og fyrri íslenzku
Evrópufrímerkja (26x36 mm) og skal framlögð tillöguteikning vera
sex sinnum stærri á hvern veg.
2. Auk nafns landsins og verðgildis skal orðið EUROPA standa á frí-
merkinu. Stafirnir CEPT (hin opinbera skammstöfun samráðsins
ættu sömuleiðis að standa
3. Tillöguteikningarnar mega ekki sýna neinskonar landakort.
4. Heimilt er að leggja fram tillögur, sem kunna að hafa verið lagðar
fram áður.
Reykjavík 11. nóvember 1964.
Póst- og símamálastjórnin.
BÍMAB LAÐIÐ