Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1964, Síða 19

Símablaðið - 01.12.1964, Síða 19
Ágúst Geirsson: Nýir kjarasamningar. 23. þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sem haldið var dagana 17.—20. sept. s.l., samþykkti að mæla með uppsögn núgildandi kjarasamninga og beindi því til Bandalagsfélaganna og stjórnar BSRB, að hefja undirbúning að kröfugerð í væntanlegum samningum. Frá gildistöku núverandi launastiga, sem Kjara- dómur dæmdi opinberum starfsmönnum og var m. a. byggður á launakjörum hjá einkaaðilum, hafa orðið miklar launahækkanir hjá öðrum stéttum. í desember 1963 urðu um 15% almennar launa- hækkanir, sem BSRB gerði kröfu til handa opin- berum starfsmönnum, en meirihluti Kjaradóms hafnaði, eins og enn er í fersku minni. 1 vor fengu svo verkamannafélögin aftur hækk- un og lagfæringu á samningum og nú í haust eru iðnaðarmannafélögin hvert af öðru að gera nýja samninga um launahækkanir og aðrar kjarabætur. Ennþá er eftir rúmt ár af gildistíma þess samn- ings, sem við nú búum við, og ef að enn heldur fram sem horfir og opinberir starfsmenn fá ekki lagfæringar á kjörum sínum, hlýtur að skapast vandræðaástand og flótti starfsmanna úr opinberri þjónustu fyrirsjáanlegur. Nú þegar er farið að bera á slíku bjá Landssíma Islands, þrátt fyrir það, að fjöldi starfsmanna þeirrar stofnunar séu sérhæfðir og með sérmenntun, sem ekki kemur að notum annarsstaðar. Það er því áríðandi fyrir hið opinbera ekki síður en starfsmenn þess, að verulegar kjara- bætur fáist með næstu samningum. F.f.S. hefur nú þegar hafið undirbúning vegna nj'rra kjarasamninga, og hefur Félagsráð skipað nefnd til að gera tillögur um breytingu á flokka- röðuninni og reglunum um vinnutíma og önn- ur kjör, sem Kjaradómur setti. Óhjákvæmilegt verður að gera margar breytingartillögur við Hið frumstæða fólk trúir á hina hvítu lækna og kemur til þeirra hópum saman. þeirra, og seljast þær háu verði. En meðferðin á þess um konum er ómannúðleg. Húsdýr eru engin nema hundar og svín, og er svína- kjötið aðallega etið við trú- arleg hátíðahöld. Annars lifir fólkið aðai- lega á akuryrkju, — því loftslagið er vel til þess fall- ið, og háslétturnar ákaflega gróðurríkar og veðursæld mikil. Þegar loks að hvíta mann- inn bar að garði fyrir 30— 40 árum, var honum tekið með kostum og kynjum, enda ekki talinn af þessum heimi. Spakmæli. Hvað er leiðindaseggur? Maður, sem rænir þig ein- verunni án þess að veita þér félagsskap. ★ Reynslan kennir okkur, að reynslan kennir okkur ekki neitt. ★ SÍMABLAÐIÐ 45

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.