Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1964, Side 23

Símablaðið - 01.12.1964, Side 23
nættið áleiðis til Svalbarða, en daginn eftir fréttist að skipstjóranum hefði borist skeyti bess efnis að stytta ferðina, og halda beint til Bergen og setja farþegana af þar. Þetta var nú aðeins nokk- urskonar forspjall, og sný ég mér nú að aðalefninu. í þá daga var Landssíminn ekki neitt risafyrirtæki. Hér í Reykjavík var síminn til húsa í „gamla barnaskólan- um“ (núverandi lögreglu- stöð), ásamt pósthúsinu. — Hafði síminn til sinna afnota um % hluta efri hæðarinn- ar, aðallega á vinstri hönd þegar gengið var upp stig- ann. Þar var skrifstofa landssímastjórans og síma- verkfræðings, lítið herbergi en þó minnir mig að þeir hafi haft sitt skrifborðið hvor. Þá var skrifstofa stöðvarstjóra (enn minna herbergi), þá ritsímaaf- greiðsluherbergið, talsíma- herbergi (opið bar á milli) og loks biðstofa með 2 tal- símaklefum. Hinum meginn gangsins var svo bæjarsíma- stöðin, í litlu herbergi, með skiftiborð fyrir 300 línur. Símritarar voru alls 2 og var vinnutími þeirra ann- að hvort frá kl. 8 morguns til kl. 3 síðdegis, með 15 mínútna matarhlé, eða frá kl. 3 síðdegis til kl. 9 að kvöldi (ekkert matarhléJ. Kaffitími þekktist ekki í þá daga. Þó kom það fyrir (þó að sjaldan væri), að góðir viðskiftamenn sendu „vakt- inni“ kaffi og með bví. Voru þessar „trakteringar“ aðal- lega ætlaðar hinum fríðu simameyjum, en eins og Danskurinn segir: „Naar det regner paa præsten, saa drypper det paa degnen“, og svo fór, að ég naut einnig góðs af. Þær voru þrjár hér á landssímastöðinni í þá daga, og skiftu tvær þeirra vakt með símriturunum, en sú þriðja hafði svonefnda „splitvagt“, þ. e. hún var hálfa vakt í einu, mesta annatímann. — Þær voru bundnar við afgreiðsluborð- in, svo að bær áttu óhægt um að hreyfa sig. Önnuðust því símritararnir afgreiðslu við biðstofugesti fyrir þær. Símaviðskiftin voru þá ekki meiri en svo, að betta starfs- lið gat annað beim. En nú varð mikil breyt- ing á. Síðustu dagana í júlí jukust símaviðskiftin við útlönd stórkostlega, í hlut- falli við spennuaukninguna út í heimi, og svo kom að lokum, að ekki varð um flú- ið að lengja afgreiðslutíma ritsímastöðvarinnar, en áð- ur hafði verið reynt að Iengja vinnutíma símritar- anna, þannig að báðir unnu allan daginn, frá kl. 8 á morgnana til kl. 9 á kvöldin. Þctta dugði þó ekki Iengi, aukningin var „explosiv" og hinn 1. ágúst var ákveðið að ritsímastöðvarnar í Reykja vík, Seyðisfirði, Siglufirði og Akureyri skyldu „fyrst um sinn“ vera opnar allan sólarhringinn. Jafnframt var ákveðið að bæjarsíma- stöðin í Revkjavík skyldi vera onin til miðnættis, í stað kl. 10 að kveldi. Við þetta jókst vanda- málið með starfsfólk, sér- staklega símritarana, sem ekki voru gripnir upp úr götunni. Sem fyrr segir voru 2 símritarar hér í Reykjavík og var annar þeirra dama, Guðrún Aðalstein, seinna frú Finsen og ég hinn, og urðum við því að leggja nótt við dag. Auðvitað gat ég ekki verið þekktur fyrir að láta dömuna vera eina í húsinu næturlangt, innan um alla draugana, sem þar gengu um, að sögn, svo ég bauðst til að taka að mér nætur- vaktina. Stöðvarstjórinn, Gísli J. Ólafson, var svo hugulsamur að senda ruggu- stól niður á stöð svo að ég gæti hallað mér aftur á bak ef tækifæri gæfist til þess, en það var nú heldur sjaldan. Aftur á móti gat ég fleygt mér út af í tvær klukku- stundir, milli kl. 8 og 10, eft- ir að frk. Aðalstein hafði tekið við dagvaktinni. Var hreinasta furða hvað skeyti gátu verið að berast alla nótt- ina. En það var eins og allir sem áttu vini og ættingja í öðrum löndum þyrftu að fá upplýsingar um líðan þeirra og eins hitt, hvort þeir væru í nokkurri hættu. Þá var það sem orðtækið „alt roligt í Hilleröd“ varð til, en það er önnur saga. Þá voru „Morse“ ritsíma- tækin einu ritsímatækin hér á landi, en þau eru sem kunnugt er frekar seinvirk. Var bó unnt að ná meiri af- greiðsluhraða með því að láta þau ekki „skrifa“, held- ur taka merkin eftir heyrn. En einhvem veginn blessað- ist þetta. Mest var auðvitað að gera á daginn, og hjálp- aði þá stjöðvarstj. Gísli J. Ólafson oft til við afgreiðsl- una, en annars hafði hann

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.