Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1964, Qupperneq 24

Símablaðið - 01.12.1964, Qupperneq 24
nóg með sitt eigið starf, því reikningshald stöðvarinnai jókst auðvitað að sama skapi og símaviðskiptin, en starfsfólk var samhent og bví gekk hetta slysalaust. Eftir miðjan ágúst (að mig minnir) fóru símaviðskiftin aftur að færast í eðlilegt horf, en auðvitað stóraukin frá því sem var áður, svo að nú var farið að hugsa til frekari skipulagningar á starfsemi landssímans. Lá þar fyrst fyrir að fjölga starfsfólki á stöðvunum. Hér í Reykjavík voru tveir pilt- ar „teknir í Iæri“ í símritun og ritsímafræði og var mér falin kennsla þeirra. Þá var og komið öðru skipulagi á stjórn símans, AÐALSKRIF- STOFAN stofnuð því að nú þótti ekki lengur fært að hafa sjálfa „administration- ina“ « skrifborðsskúffum landssímastjórans. Var skrif- stofustjórinn nefndur „að- stoðarmaður landssíma- stjóra“ og hélzt það heiti lengi nokkuð. Féll að miklu leyti í hans hlut, undir um- sjón landssímastjóra og símaverkfræðingsins að skipuleggja starfsemi aðal- skrifstofunnar og móta hana. Það kom fljótt í ljós, að nú var síminn alveg búinn að sprengja húsnæðið utan af sér. Var það ráð bá tekið, að sparka „administration- inni“ út. Var tekin á leigu fyrir hana efri hæð í ný- bygðu húsi, nr. 9 við Banka- stræti (þar sem nú er Klæðaverzlun Arna og Bjarna), bar sem landssíma- stjórinn, símaverkfræðingur- inn og aðstoðarmaður lands- símastjóra fengu hver sína skrifstofu. Var að þessu mik- il bót, og svo fékk stöðvar- stjórinn í Reykjavík einnig aukið húsnæði fyrir sína skrifstofu og aukið starfslið. Um hraðvöxt landssímans frá umræddu tímabili ætla ég ekki að ræða. Aukningin á símaviðskiftunum um mánaðamótin júlí-ágúst 1914 var svo stórkostleg, að erfitt hefði verið að ráða fram úr vandanum er þá skapaðist, ef starfsmenn símans, all- ir sem einn, hefðu ekki sýnt bæði mikla fórnarlund og þol, sem raun varð á. En þetta voru erfiðir dagar og er þeir nú rifjast upp fyrir mér, finnst mér rétt að skýra frá gangi málanna innan símans, svo að ekki falli í gleymsku. Margir þeirra sem þá komu við sögu eru nú fallnir frá, en nokkrir eru þó lifandi. Ritað í ágúst byrjun 1964. O. B. Arnar. ☆ GRlPTU TÆKIFÆRIÐ. Dæmisaga. Á torgi einu í grískri borg var fyrir langalöngu standmynd. Hún er nú ekki lengur við líði, en til er saga, sem segir frá samtali .styttunnar og ferðamanns: „Hvað heitir þú, stytta?“ „Ég er kölluð tœkifcerið.“ „Hví stendu þú á tánum?“ „Til þess að sýna, að ég staldra aðeins við eitt augnablik.“ „Hví hefurðu vængi á fótunum?11 „Til að sýna, hve hratt ég fer.“ „En af hverju er ennishár þitt svo langt?“ „Til þess að menn geti gripið mig, þeg- ar ég verð á vegi þeirra, og haldið mér fastri,“ „En af hverju hefurðu ekkert hár aftan á hnakkanum?“ „Til að sýna, að þegar ég einu sinni hef farið fram hjá, er ekki hægt að hafa hönd í hári mínu.“ Á vegi hvers manns verður tækifærið, oftar en menn sjá það, en hve margir okk- ar grípa það? * * * Ennþá einu sinni skakkt númer. A: „Ég vissi ekki, að Jónas ætti tvíbura.“ B: „O, blessaður vertu. Hann ,sem kvænt- ist símamey, og auðvitað gaf hún honum skakkt númer.“ 50 SÍMASLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.