Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1964, Síða 32

Símablaðið - 01.12.1964, Síða 32
VIINilMUHAGRÆÐING SÍMA - IMOTKUM ----- T®------ Á síðustu árum liefur vinnuhagræð- ing og notkun sérþekkingar á því sviði, meir og meir rutt sér til rúms hér á landi. I póst- og símastofnuninni lief- ur þessarar viðleitni nokkuð orðið vart. Þó meira í orði en á borði. Er það mál manna að óviða muni finnast meiri náma hér i landi fyrir skipulagsfræð- inga og ráðunauta í vinnuhagræðingu. Væri þvi æskilegt að þessi mál yrðu tekin fastari tökum en verið hefur. 1 ensku tímariti einu er í gamni minnzt á einn þátt i opinberum störfum, sem undir atliugun á þessu sviði myndi heyra. En það er tímasóunin við einka- símtöl í starfstíma, og fylgja margar skoplegar myndir. Af þvi liefur lengi farið orð hér á landi, bæði við opinbera þjónustu og hjá einkafyrirtækjum, að mörgu fólki finnist ekkert athugavert við það, að sitja makindalega við vinnuborðið og tala við kunningjana i síma um einka- mál eða allt og ekki neitt, þótt áríð- andi verkefni eða afgreiðsla biði. I ann- an stað er bent á liina miklu sóun á tíma, er fari i löng, útþynnt símasam- töl, sem ekki þyrfti nema nolckur orð til. En fjöldi embættismanna, jafnvel í háum stöðum, sé ekki gáfaðri en það, að þeir kunni ekki að ræða málefni á réttan hátt, heldur noti óþarfa mælgi. Séu þvi orðin „upptekinn“ og „á tali“ algengustu svör símastúlknanna við skiptiborðið, þegar beðið er um sím- 58 SÍMABLÁÐIÐ tal við opinheran starfsmann. Væri ekki ráðlegt að gera athugun á því, hvort einhver opinber stofnun hér á landi sker sig' úr um þessa tímaeyðslu og símamisnotkun, eða hvort sú stofnun finnst, sem hefur hreinsað sig af henni og kennt starfsfólki sínu símanotkun. Þetta myndi vera í verkahring ríkis- sparnaðarnefndar, eða er hún engin til? FYRIR 40 ÁRUM — framh. af bls. 54. hjúpaði minnismerkið. Hann stóð um stund í þögulli bæn, og með tárvot augu. Félagi hans, hr. Smidt, var þá látinn fyrir 9 ár- um. Hann féll af hestbaki og lézt af þeim sökum. Vélamaðurinn Nelsons er forstjóri fyrir einu stærsta flugfélagi Bandaríkj- anna, Eastern Airlines, New York, og hinn vélamaðurinn, sem kom á Hornafjörð, er einnig í hárri stöðu, og býr í Texas. Þegar flugmennirnir komu heim úr hnattfluginu, sigri hrósandi, birtust af þeim myndir og greinar í heimsblöðunum. Um Hornafjörð skrifuðu þeir, að hann hefði verið myndrænasti staðurinn á allri leið- inni. Læt ég hér staðar numið og óska lands- símastöðinni á Höfn allra heilla. Horna- fjörður er og verður mitt draumaland. Anna Þórhallsdóttir.

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.