Símablaðið - 01.12.1964, Qupperneq 35
Það er augljóst mál, að Bjarni Forberg
hefur lagt mjög mikla vinnu í þessa bók,
sem samanstendur af um 57000 orðum. í
henni er efnisinnihald hverrar bókar í
safninu dregið saman í stuttu máli, og er
það gert, eins og fyrr segir, til að auð-
velda þeim, sem vilja komast fljótt að
því efni, sem þeir leita að hverju sinni.
Bókasafnið er í vörzlu efnisvarðar Bæj-
arsímans, Kristjáns Jónssonar, en í lélegu
húsnæði. í formála að bókaskránni segir,
að safn þetta skoðist sem vísir að fram-
tíðar tæknibókasafni, að reynt hafi verið
að ná saman öllum gömlum bókum, sem
að öðrum kosti hefðu glatazt, og að fram-
vegis verði reynt að fá til safnsins það
markverðasta af nýjum bókum og tíma-
ritum um tæknimál.
H. Hallsson.
Simablaðið vill ekki láta hjá líða, um
leið og það flytur frásögn af opnun tækni-
bókasafns þess, sem vitað var að Bjarni
Forberg bæjarsímastjóri hefur unnið að
undanfarið af einstakri alúð — að minna
enn einu sinni á hinn merka vísi að síma-
safni, sem Eyjólfur sál. Þórðarson koin
Eyjólfur ÞórSarson
stofnandi símasafnsins.
upp a smum tima. En
það kcstaði hann mik-
ið fé og mikinn tíma.
Þessu safni er einnig
holað niður í kjall-
arakompu í Lands-
símahúsinu og ekki
sinnt að nokkru af
stjórn símans.
Símastofnunin er
að verða 60 ára, en
hefur ekki enn sýnt
þá menningarvið-
leitni að koma upp
símasafni eða tækni-
bókasafni. Þetta er
Ottó B.
Arnar
meS fyrstu
íslenzku
rafmagns-
fræóina.
svo vítavert skilningsleysi að furðu sæt-
ir. — Því lengur munu lifa nöfn þeirra
einstaklinga sem borgið hafa heiðri
stofnunarinnar á þessu sviði, þó hvorugur
þeirra hafi lagt stund á frönskunám eða
fengið akademiska menntun, eins og und-
anfarið hefur verið haft að slagorði hér í
stofnuninni, að gefnu tilefni.
Geta má þess að þriðji maðurinn, Rík-
harður Sumarliðason, mun í kyrrþey hafa
safnað saman talsverðu magni af tímarit-
um og fræðibókum á sviði tæknináms og
komið því safni fyrir í birgðahúsi Lands-
símans.
Það safn, og bókasafn Bæjarsímans
eiga að sjálfsögðu að sameinast sem allra
fyrst sem undirstaða stærra safns, í húsa-
kynnum þar sem aðstaða væri til lestr-
ar, og í tengslum við það ber einnig að
ætla hinum dýrmæta vísi Eyjólfs Þórðar-
sonar að símasafni hæfilegt húsnæði.
Þess verður fastlega að vænta, að nú
þegar verði ákveðið fast árlegt fjárframlag
til þessara safna. Starfsmannaráð Lands-
símans ætti að taka þetta mál upp á sín-
ar herðar.
Hvað er aðdáun?
Hæverskleg viðurkenning
á því, að annar maður sé
ekki fjarri því að líkjast
manni sjálfum.
Hvað er fjarstæða?
Skoðun, sem fellur ekki
saman við okkar eigin skoð-
un.
☆ ☆ ☆
Hvað er nefnd?
Hópur manna, sem fer
margra kílómetra krákustigu
til að komast að niðurstöðu,
sem þó er augljós.
SÍMABLAÐIÐ 61