Símablaðið - 01.12.1964, Page 38
fund, áttu flesta fulltrúana. Var þá, upp
á síðkastið, ekki lögð megináherzla á,
hverjir höfðu að baki sér mesta félags-
lega reynslu eða starfshæfni, — en hinn
félagslegi bölvaldur, pólitíkin, tók að
riða þar liúsum.
Fultyrða má, að hér var um nýtt og
óvænt fyrirbrigði að ræða í félagslífi
F.I.S., sem átti sér óefað upptök í heild-
arsamtökum opinberra starfsmanna. Og
haldi þar svo áfram í þeim efnum, sem
verið hefur i nokkur ár, er ekki ólík-
legt, að F.Í.S. telji þann styrk nægi-
legan i hagsmunaharáttu sinni, sem það
sjálft hefur yfir að ráða.
Sú nefnd, sem skipuð var fyrir síð-
asta Landsfund, hafði fullan hug á
að færa félagslífið í hið gamla liorf ein-
ingar, sem fyrr einkenndi það. M. a.
með því að liaga kosningu á fulltrú-
um til bandalagsþingsins þannig, að
þeim væri í fyrsta lagi skipt milli deild-
anna og í öðru lagi, að allir hinir dreifðu
meðlimir tækju þátt í þeim með óbund-
inni kosningu á nokkrum fulltrúum, í
hlutfalli við liinar einstöku deildir.
En við þessar fyrstu kosningar utan
Reykjavíkur kom sá agnúi á kosninga-
fyrirkomulaginu strax í ljós, sem von-
að liafði verið að komizt yrði hjá, að
áróðurshvötin sá sér þar leik á borði.
Þá reynslu ber að sjálfsögðu að taka
til greina á næsta Landsfundi. Því það
eitt er víst, að yfirgnæfandi fjöldi fé-
lagsmanna F.Í.S. vill reka öll pólitísk
sjónarmið á dyr í félagslífinu og hafa
frið til að velja sér fulltrúa á hvaða
vettvang sem er, án áróðurs, og með
tilliti til þess liverjir eru vænlegastir til
að ná árangri í baráttumálum stéttar-
innar, sakir félagslags þroska og mann-
gildis.
í nokkrum deildum hér í Reykjavík voru
fulltrúar á Bandalagsþing kosnir með alls-
herjar atkvæðagreiðslu á kjörstað, sem var
Formaður gengur í kjörklefann.
skrifstofa F.f.S. Hafði sú kosning á sér
annan svip en hin gamla aðferð, að kjósa
fulltrúana alla á aðalfundi. Og þótti góð
og skemmtileg nýjung. Greininni fylgja
tvær myndir af kjörstað.
Fræðslukvöld.
Sá gleðilegi viðburður gerðist föstudag-
inn 6. nóv. sl. að Póst- og símamálastjórn-
in efndi til fræðslufundar í kaffistofunni
á 6. hæð í Landssímahúsinu.
Benedikt Gunnarsson bygg.fr. flutti þarna
erindi um hagræðingu, og sýndar voru
tvær kvikmyndir um sama efni. Var þess-
ari fræðslu tekið mjög vel, og salurinn
fullskipaður. Póst- og símamálastjóri gat
þess í upphafi, að ætlunin væri að fleiri
slík kvöld færi á eftir. Að sjálfsögðu verð-
ur þá fyrst haldið áfram að fjalla um
þetta stórmerka og þýðingarmigla efni,
sem nú virðist vera ofarlega í hugum
manna. En æskilegt væri, að viðfangsefni
þessara fræðslufunda yrði valið þannig, að
það veki áhuga sem flestra, og að veitt yrði
sem víðtækust fræðsla um rekstur stofn-
unarinnar. Jafnframt yrði að skipuleggja
þá svo, að umræður geti orðið um efni
fræðsluerindanna.