Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1964, Síða 40

Símablaðið - 01.12.1964, Síða 40
fyrir að hafa staðist þung inntökupróf. Sem dæmi um þessi afföll má taka þann hóp, sem hóf nám 1960, en í þeim hópi voru þeir símvirkjar, er síð- ast útskrifuðust. Af um 70 umsækjendum stóðust 24 inntökupróf. Aðeins 12 þeirra Iuku þó símvirkja- prófi og má nokkuð af því marka hve námið er erfitt. Þá er mjög lítið gert af hálfu stofnunarinnar til að stuðla að framhaldsmennt- un, eða námskeið séu haldin um nýjungar á sviði tækn- innar. Sárafáir símvirkjar hafa t. d. farið í tæknifræði- nám eða annað sérnám. Námskeið fyrir línumenn, sem gefa þeim heitið teng- ingamenn hafa ekki verið haldin síðan 1947, eða í 17 ár. Síðastliðið sumar barst stjóm símans boð frá sænska firmanu L. M. Erics- son, um að senda 6 nafn- greinda símvirkja á nám- skeið, sem það hugðist halda í haust á írlandi, um sérstaka gerð sjálfvirkra stöðva. Nú þegar hafa verið settar upp nokkrar slíkar stöðvar hér á landi og fyrir- hugað er að fjölga þeim á næstunni. Það hefði því mátt ætla, að Landssíminn gripi þetta tækifæri fegins hendi, en það var þó öðru nær. Ekki mátti þó styggja hið sænska stórfyrirtæki og finna varð góðar og gildar afsakanir. Þar var þá helzt til fanga að bera því við, að umræddir símvirkjar myndu ekki nógu færir í enskri tungu til þess að taka þátt í námskeiði á írlandi. Reyndar hafa sím- 66 SÍMABLAÐIÐ — Svaraðu, strákur, — ertu mállaus? Loksins kom játandi stuna frá Gvendi. — Hlauptu þá heim og sæktu fötin þín, og vertu fljótur. Skipið fer eftir klukkutíma og það verður að „munstera" þig áður en þú kemur um borð. Strákurinn, sem átti að fara þessa ferð, varð veikur á síðustu stundu. Flýttu þér nú! Gvendur tók á sprett upp eftir hafnargarðinum. Hann var hlaupagarpur hinn mesti og mátti kannske segja, að mestu og beztu hæfileikar hans lægju í fótunum, enda höfðu þeir fengið mestu þjálfunina þessi 17 ár, sem hann hafði lifað, sennilega á kostnað annarra líkamshluta hans, og mun þá höfuðið hafa borið þar skarðastan hlut frá borði. Gvendur þaut eins og píla gegnum bæinn. Samtímis var heilastarfsemin í mestu óreiðu, allt stangaðist þar á. „Munstera", „Messastrákur"? Þetta voru orð, sem Gvendur hafði aldrei heyrt áður og skildi ekkert hvaða merkingu þau höfðu. Hann var hálfkvíðinn yfir orðinu „Munstera". Honum fannst það hafa hljómað hálfískyggilega af munni brytans. Kannske var það einhver þrekraun, sem hann yrði að ynna af hendi, áður en hann væri tekinn um borð. Vonandi stæðist hann prófið. Orðið „messastrákur" fannst honum ekki eins kvíðvænlegt, endingin — strákur — var eitthvað svo gamalkunnugt og róandi, samanber: Sveita- strákur, smalastrákur. Það gat tæplega verið neitt vanda- samt embætti, sennilega eitthvert snatt. Þessar áhyggjur Gvendar hurfu þó eins og dögg fyrir sólu gagnvart þeirri staðreynd, að hann var að fá sína heitustu ósk uppfyllta. Hið mikla ævintýri hans Guðmundar Jónssonar frá Bjólu í Suðursveit var um það bil að byrja. Gvendur vaknaði við að hann var hristur óþyrmilega. — Vaknaðu, strákur, heyrðirðu ekki þegar ég skellti saman lófunum? Gvendur reis upp í kojunni, horfði svefndrukknum aug- um á Sigga háseta og kvaðst ekki hafa heyrt neinn lófa- skell. — Hvaða andskotans auli ertu, drengur, veiztu ekki einu sinni, að til sjós eru allir vaktir með lófaskellum? Flestir vakna við fyrsta skell, aðrir, sem sofa eins og hrútar og það gerir þú auðsjáanlega, — enda ekki óeðli- legt, þegar haft er í huga hvaðan þú ert, — vakna þó venjulega við annan skall. En þeir, sem ekki vakna við þriðja skell, verða hýrudregnir. Svo að þú átt von á góðu. Gvendur góndi á eftir Sigga út úr lúkarnum, slappur í andlitinu af undrun og ótta. Hýrudreginn, hver skollinn skyldi það nú vera? Kannski flenging, eða eitthvað ennþá verra. Vekja menn með lófaskellum! Ekki þekktist það I Suðursveit. Margt var skrítið til sjós, hugsaði Gvendur og stundi við. Hann brölti á fjóra fætur og bjó ,sig undir að klifra fram úr kojunni. Skipið valt töluvert, svo Gvend- ur greip >un kojustokkinn til að reyna að halda jafnvæginu,

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.