Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2005, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2005, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 Fréttir ÖV Meiri nýting á Thorsplani Til stendur að nýta Thorsplan í Hafnarfirði enn betur undir ýmsa viðburði í framtíðinni. Miðbæjamefnd Hafnarijarðar segir mikil- vægt að hugað verði sérstak- lega að þessu til að efla mannlíf í miðbænum. „Ný hönnun Thorsplansins býð- ur upp á marga skemmti- lega möguleika og leggur nefndin til að sérstakur verkefnisstjóri skipuleggi viðburðina,“ segir miðbæj- amefndin sem lýsti sérstaklega mikilli ánægju með staðsetningu jóla- þorpsins á Thorsplaninu. Bflnúmerinu Osti stolið Maður var fundimi sekur um að hafa stolið bflnúmer- um af vömbfl við verslun Samkaupa á Akureyri. Þjófti- aðurinn var fr aminn í -tvennu lagi með fjögurra og hálfs mánaðar millibili, fýrst var númerinu stolið af öðr- um enda bflsins í nóvember 2004 og síðan númerinu af hinum endanum 15. aprfl í ár. Um var að ræða einka- númer með áletruninni Ost- ur. Maðurinn játaði en honum var ekki gerð refsing. Alls hefur hann þó fimm sinnum hlotið refsingu fýrir ýmis brot. í maí fékk hann tveggja mánaða fangelsi fýr- ir fikniefha- og umferðar- lagabrot. Lækka skatta en fá þó meira Lækka á hlutfall fasteignagjalda á Akranesi á næsta ári. Bæjaryfirvöld segja að það stefni í að fasteignamat í bænum hækki um 25 prósent eða jafn- vel meira. „Miðað við það er eðlilegt að lækka álagningarprósentu til samræmis við það sem ger- ist í nágrannasveitarfélög- um Reykjavíkur svo sem Mosfellsbæ og Reykjanes- bæ. Þrátt fýrir lækkun pró- sentunnar má búast við að fasteignagjöld muni skila bæjarsjóði 18 milljónum meira en núverandi frum- varp gerir ráð fyrir," segir í greinargerð með fjárhags- áætlun næsta árs. „Það er allt fínt að frétta frá Dalvík," segir Kristján Aðal- steinsson hjá Sæplasti á Dal- vík.„Það er búið að skreyta bæinn þvers og kruss en við höfum haft jólasnjó síðan í byrjun Landsíminn berog ~ er ekki farinn. Ég er eitthvað byrjaöur að skreyta heima hjá mér en það klárast á Þorláks- messunni að sjálfsögðu." Um miðjan október vantaði 72 starfsmenn á leikskóla Reykjavíkur. Mánuði síðar var búið að ráða fjóra og í byrjun desember vantaði enn 62 starfsmenn til starfa. Það er því ljóst að enn er mikil mannekla á leikskólunum. Ingibjörg Eyfells og fleiri leikskólastjórar óttast að næsta önn verði erfið. Þann 1. desember biðu 36 börn eftir plássi á leikskólum Reykja- víkur. Líklegt er að sú tala komi til með að hækka um áramótin þegar fjöldi starfsfólks fer í nám eða önnur störf eins og vant er á þessum tíma. í vetur hefur lítið áunnist í ráðningamálum og leikskólastjórar kvíða áramótunum. „Ég er ekkert í góðum málum, en það þýðir ekkert að kvarta. Haustið er búið að vera þungt og ég hef ekki upplifað annað eins síðan um síð- ustu aldamót," segir Ingibjörg Ey- fells, leikskólastjóri á leikskólanum Geislabaugi í Grafarholti. Þó að staðan sé slæm um þessar mundir býst Kristín við því að staðan versni enn frekar eftir áramót. Margir að hætta „Um áramótin kemur mig til með að vanta 6 til 7 starfsmenn til þess að starfið á leikskólanum gangi með eðlilegum hætti. Við getum ekki tek- ið inn fleiri börn og um áramótin koma 16 börn til með að vanta pláss á Geislabaugi," segir Ingibjörg. Hún segir að slíkt ástand skapist venju- lega að hausti, vori og eftir áramót en á von á því að það verði óvenju- slæmt í byrjun næsta árs. Senda börnin heim Valborg Guðlaugsdóttir á leik- skólanum Engjaborg í Grafarvogi greip til þess ráðs að senda börn heim seinnipartinn í gær vegna manneklu. „Klukkan fjögur í dag þurfti ég að senda mörg börn heim. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég gríp til þess ráðs að senda börn heim,“ segir Valborg sem vantar fólk til starfa. „Staðan er skítsæmileg. Okkur vantar ennþá fólk en þetta hefur reddast fram að þessu. Það má lítið út af bregða til að starfið fari úr skorðum," segir Valborg. Áramótin geta orðið erfið Á Ieikskólanum Austurborg gengur starfið vel þrátt fyrir að enn vanti tvo starfsmenn. DV sagði frá því í haust þegar Austurborg glímdi við mikla röskun á skólastarfi og J greip til þess ráðs að senda börn heim af leikskólanum. „Við höfum ekki þurft að senda börn heim í nóvember og erum þessa dagana bara á fullu að undir- búa jólin," segir Alla Dóra Smith, aðstoðarleikskólastjóri á Austur- borg. Hún óttast þó að staða starfs- mannamála geti auðveldelga breyst til hins verra þegar nær dregur ára- mótum. „Það gerist alltaf á þessum tíma. Haustið var erfitt og áramótin geta orðið það líka. En við vonum að eitthvað fólki skili sér úr skólunum í störf inni á leikskólunum," segir Alla Dóra. svavar@dv.is Leikskólinn Austur- borg Haustið var erfitt og leikskólinn er viðbú- inn þvi að áramótin verði það einnig. .. ic-. -i Ingibjörg Eyfells og börnin á Geisla- baugi Eftiráramót verður biðlistinn á leik- skólanum Geislabaugi í lengra lagi. Sambíóin misskildu sett aldurstakmark á Harry Potter Bönnuð alls staðar nema í Keflavík Ekkert aldurstakmark var sett á nýjustu Harry Potter-myndina í Sambíóunum í Keflavík. Myndin var frumsýnd 25. nóvember og auglýst með 10 ára aldurstakmarki í öllum kvikmyndahúsum Sambíóanna, nema í Keflavík. „Ég fékk skilaboð um að myndin væri leyfð öllum aidurshópum en viðkvæm böm ættu að forðast að sjá hana," segir Haraldur Einarsson, bíóstjóri Sambíóanna í Keflavík. Hann segir að fýrstu skilaboð frá Kvikmyndaskoðun hafi gefið til kynna að myndin væri leyfð öllum aldurshópun en skömmu síðar hafi Sambíóunum borist önnur skilaboð þar sem myndin er bönnuð börnum innan 10 ára. „Ég var bara að fá þessi skilaboð rétt í þessu svo ég mun banna hana innan 10 ára frá og með deginum í dag," segir Haraldur. Guðjón Bjamason, forstöðumað- ur Kviianyndaskoðunar, segir að skoðunarmenn hafi verið ósammála þegar myndin var skoðuð í fyrsta skipti. Þá hafi verið kvaddur til þriðji matsmaður og þá hafi 10 ára aldurs- takmarkið verið samþykkt. „Vinnuaðstaða okkar er mjög vond að þurfa að skoða myndir í sjálfum kvikmyndahúsunum sem voru Sambíóin í þessu tilviki. Sam- bíóin hafa skilið sem svo að loka- ákvörðun okkar hafi verið að leyfa myndina öilum en ég lét þá vita inn- an nokkurra klukkustunda að við ætluðum að skoða myndina betur sem við og gerðum og bönnuðum innan 10 ára. Það getur verið að skilaboðin séu svona lengi á leiðinni eftir Reykjanesbrautinni," segir Guðjón sem vill beina því til foreldra og eigenda kvikmyndahúsa að þeir virði aldurstakmarkið. Engin börn í bíó Börn undir tíu ára fáekki að sjá Harry Potter I Keflavík frá og með gærdeginum eins og i öðrum kvikmyndahúsum „Þessi mynd er mjög ólík fýrri myndum um Harry Potter. Hún get- ur vakið ótta og kvíða hjá ungum börnum og það er ekkert lífsnauð- syniegt að börn sjái þessa mynd," segir Guðjón. svavar@dv.is Harry Potter Nýjasta myndin getur vakið ótta og kvíða hjá börnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.