Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006
Fréttir DV
TeenVogue Birti lista
yfír 35 flotta hluti sem
íunglingarættuaðfá
sér. iPod-hulstrin eru i
m&if,
Saman gegn
útlendingum
Bæjarráð Akureyrar hef-
ur samþykkt að starfa með
verkalýðsfélögum „...ívið-
leitni þeirra við að koma í
veg fyrir óæskilega þróun
vegna starfa erlendra
starfsmanna á vegum
starfsmannaleiga við fram-
kvæmdir á vegum Akureyr-
arbæjar", eins og segir í
fundargerð bæjarráðsins.
Áður hafði ráðið falið bæj-
arlögmanni, sviðsstjóra
tækni- og umhverfissviðs
og framkvæmdastjóra Fast-
eigna Akureyrarbæjar að
eiga viðræður við verka-
lýðsfélögin og leggja fram
hugmyndir að viðbrögðum
bæjarins.
Sameining
KHÍog HÍ
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráð-
herra hefur skipað starfs-
hóp sem á að kanna mögu-
leikann á því að sameina
Kennaraháskóla ís-
lands og Háskóla
íslands. Þorgerður
Katrín segir þessa
tilhögun ekki skoð-
aða í hagræðingar-
skyni heldur til
þess að styrkja há-
skólastarf og efla kennara-
menntun í landinu. Inga
Hrefna Sveinbjarnardóttir,
formaður Vöku og fulltrúi í
stúdentaráði, segir að
menntamálaráðuneytið
verði að fara varlega. Inga
segir þetta ekki rétta for-
gangsröðun því margt ann-
að sitji á hakanum.
Fyrirmynd
spastískra
Félagið CP, sem er félag
spastískra, veitti fyrirmynd-
arviður-
kenningu
sína í annað
sinn. Hlutu
Bjarki Birg-
isson og
Guðbrandur
Einarsson
verðlaunin í
ár. Bjarka og
Guðbrandi
eru veitt þessi verðlaun
vegna þess að þeir afrek-
uðu það að ganga hringinn
í kringum landið undir
slagorðinu „Haltur leiðir
blindan" í fyrrasumar. Með
framtaki sínu vildu þeir
vekja athygli á Sjónarhól,
fþróttasambandi fatíaðra
og íþrótta- og ólympíusam-
and íslands. Á sjö vikum
gengu þeir 1200 kflómetra,
eða um 24 kílómetra á dag.
ísland laðar marga að. Ivy Kirk, háskólanemi í New Jersey í Bandaríkjunum, er
engin undantekning. Ivy er ástfangin af landinu. Hún segir jöklana og umhverfið
yndislegt, þrátt fyrir að hafa aldrei komið hingað til lands. Ein jólin fékk hún frá-
bæra hugmynd að fjármögnun á ferð hingað til lands. Hugmyndin hefur vakið at-
hygli í Bandaríkjunum.
I 4:VK:
y ■ v ' y
Ivy KirkÆtlar að prjóna
sig til Isiands en myndin
Nói albinói vakti áhuga
hennar á landinu.
iPod-tónlistarspilari, sem Ivy Kirk fékk í jólagjöf, varð kveikjan
að hugmynd sem á eftir að fljúga með hana til íslands. Fjölmiðl-
ar í Bandaríkjunum hafa fjallað um iPod-prjónahulsturshönnun
Ivy og hafa meðal annars tímaritin Vogue og Cosmogirl birt
myndir og viðtöl við hana. Ástæðan fyrir prjónaæði Ivy er sú að
hún vill komast til fslands. Það er aftur á móti svo dýrt að ferðast
til landsins að hún segist þurfa að prjóna heilan helling til að
eiga fyrir ferðinni.
8)®
„Ivy, það er blaðamaður frá ís-
landi í símanum," sagði lulia Gorton,
móðir Ivy Kirk, þegar blaðamaður DV
hafði samband við hana þar sem hún
býr í foreldrahúsum í New lersey.
iPod Eitt afhulstrunum sem Ivy hefur prjón-
að til að fjármagna för sína til Islands.
Ivy átti erfitt með að trúa því að
blaðamaður frá íslandi væri að
hringja en sannfærðist þó er hún kom
í símann.
Hún hóf að prjóna iPod-hulstur í
fyrra til að fjármagna ferð til íslands
en í kjölfarið hefur hún stofnað fýrir-
tæki og framleiðir nú einnig meðal
annars úlnliðsbönd og hálsmen.
Nói albinói
„Á síðasta ári sá ég íslenska kvik-
mynd í bíói í Montreal og ákvað í kjöl-
farið að fara til íslands," segir Ivy Kirk.
„Myndin heitir Nói albinói og mér
fannst hún rosalega góð. Síðan sá ég
ljósmyndir af íslandi hjá foreldrum
mínum og vinum þeirra sem hafa
ferðast þangað. Á þeim og í kvik-
myndinni sá ég að ísland er mjög fal-
legt land," segir Ivy sem er nítján ára.
ísland dýrt
Mæðgumar Ivy Kirk og lulia
Gorton breyttu heimili fjölskyldunnar
í prjónastofu yfir jólin. Fjölskyldunni
leist vel á hugmynd Ivy og hófust þess
vegna strax handa við
hulstraframleiðsluna.
„Ég hef, síðan ég
byrjaði á því að fram-
leiða þessi hulstur,
prjónað um tvö hund-
mð stykki og ég á eftir
að pijóna miklu fleiri í viðbót," segir
Ivy.
„Ég veit ekki hvað ég þarf að
prjóna mörg hulstur til að komast til
íslands en það er víst rosalega dýrt að
vera þar svo ég þarf að selja nokkuð
mörg hulstur til þess að komast,"
segir hún.
Kosta 915 krónur
„Þau kosta fimmtán dollara [um
915 krónur] og em mjög vinsæl," seg-
ir Ivy, stolt af framleiðslu sinni.
„Eftir að Vogue og Cosmogirl
sýndu vömna mína í blöðum sínum
hafa fjölmargir sýnt áhuga á hulstmn-
um. Eg hef selt töluvert mikið af þeim
og áhuginn er mikill," segir Ivy og
bætir því við að fólk hvaðanæva að
hafi haft samband við sig.
„Fólk frá Ástralíu, Spáni, Frakk-
landi og nokkmm öðmm löndum í
Evrópu hefur keypt prjónaliulstur af
mér. Ég er lika með þau til sölu í versl-
un í New York og þar hafa fjölmargir
keypt hulstur," segir Ivy.
Partílandið ísland
„Við fjölskyldan vorum í fríi í
Montreal og sáum þar Nóa albinóa.
Áður en ég fór á hana vissi ég lítið um
„Myndin heitir Nói
albinói og mér farmst
hún rosalega góð."
ísland," segir Ivy.
„Ég vissi eitthvað um söngkonuna
Björk og síðan hafði ég lesið grein um
ísland í blaðinu New York Times. Þar
var talað um Bláa lónið og Björk og
það fannst mér mjög skemmtilegt.
Þar var sagt að Reykjavík væri nýja
partíborgin og að skemmtanalífið á
íslandi væri ótrúlegt þar sem það væri
myrkur svo lengi," segir Ivy.
Stofnaði fyrirtæki
Óskin um að ferðast til íslands hef-
ur heldur betur orðið Ivy til góðs. í
dag á hún fyrirtæki sem framleiðir
meðal annars prjónuð úlnliðsbönd
og hálsmen. Allt þetta kom í kjölfar
iPod-ptjónaskaparins. Hún segist
ekki vita hvenær af ferðinni til fslands
verður en er þó staðráðin í því að
koma hingað. Hægt er að skoða
hönnun hennar á vefsíðunni
ibestah.com.
atii@dv.is
Frelsið er ekki til sölu
Svarthöfði hefur haft gaman af
því að fylgjast með upprisu athafna-
mannsins Björgólfs Guðmundsson-
ar á undanförnum árum. Svarthöfði
fylgdist með þegar Björgólfur var
sviptur ærunni í Hafskipsmálinu á
níunda áratug síðustu aldar. En
Björgólfur kom til baka. Sterkari en
nokkum tíma áður. Brilleraði ásamt
syninum í viðskiptum með drykkjar-
vömr í Rússlandi. Og kom til baka
eins og kóngur. Svarthöfði gladdist
með þessum gráhærða, blíðlynda
manni í teinóttu jakkafötunum sem
keypti banka og bókaforlag. Hann
styrkti listamenn til hægri og vinstri
í
Svarthöfði
og var skattakóngur íslands. Björg-
ólfur var slíkur dýrlingur að sjálfur
biskupinn bliknaði í samanburði.
Svarthöfði hugsaði sem svq að þetta
væri of gott til að vera satt.
Sem kom á daginn. 1 hverri fjöl-
skyldu em einstaklingar með óþægi-
lega fortíð. Og einstaklingar sem
eiga ekki alltaf innistæðu á reikning-
um sínum þegar þeir em að versla.
Milljarðar af peningum og fín föt
koma ekki í veg fyrir það. Svarthöfða
brá hins vegar í brún þegar Bjöggi
/• -
Hvernig hefur þú það'
„Ég hefþað bara fínt/'segir Davið Örn Halldórsson Hamar myndlistarmaður.
„Ég eráopnuninni hjá Ásmundi Ásmundssyni /101 galleríi. Þetta er ferlega flott
hjá honum. Tótemsúlur og brosmildir menn. Gullfalleg málverk. Annars er ég að
fara að mála mottur úti um allan bæ. Meðal annars f Gel gallerli og nýrri búð Ny-
hil, hjá Smekkleysubúðinni og á fleiri stöðum."
gamli brenndi heilt upplag af.bók-
inni um eiginkonu sína og fjölskyldu
hennar. Tvær síður fóru í taugarnar
á honum. Og bókin var
brennd. í krafti eigu hans —-
á bókaforlagi.
Vitandi það að með
völdum og pening-
um er ýmislegu
hægt að koma í
ffamkvæmd beindi
Björgólfur augum
sínum næst að DV.
Blaðið hafði skrifað
fréttir af fjölskyldu hans
sem honum líkuðu ekki.
Hann reyndi að kaupa
blaðið til þess að leggja það
niður. Svarthöfði hlustaði
á fréttir um þetta og
trúði ekki sín-
um eigin
eyr-
um.
%
Það hefur verið sagt að völd spilli og
það géra peningar greinilega
- líka. Björgólf hefur sett
niður í augum Svart-
höfða. Þessi brosmildi
f karl er farinn að hegða
sér líkt og einræðis-
herra í þriðja heim-
inum. Kaupir sér
þögn og skammast
sín ekki fýrir það. En
•jj frelsið er víst ekki til
sölu. Að því komst
Björgólfur.
Svarthöfði