Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Uggur á
Raufarhöfn
„Sumum fannst svolítið
uggvænlegt að þetta skyldi
gerast í dag á afmæli Kópa-
skersskjálftans," segir á vef-
setri Raufarhafnarhrepps
um allsnarpan jarðskjálfta
upp á 3,6 á Richter sem
varð undan Tjörnesi um
klukkan 15.20 í gær. „Fundu
menn hér greinilega fyrir
jarðskjálfta," segir enn
fremur á raufarhofn.is.
Guðný Hrund Karlsdóttir er
sveitarstjóri á Raufarhöfn.
Ók á skilti
og utan vegar
Karlmaður á fimmtugs-
aldri missti stjórn á bíl sín-
um á Reykjanesbraut við
Grindavíkurveg og ók yfir
umferðareyju. Hann tók
með sér tvö umferðarmerki
sem á eyjunni voru og
hafnaði loks utan vegar.
Ökumaðurinn var einn í
bílnum og slasaðist ekki að
sögn Lögreglunnar í Kefla-
vík. Gerðist þetta um tíu-
leytið á fimmtudagskvöld.
Dráttarbíll kom bílnum aft-
ur upp á veginn og gat öku-
maður keyrt í burtu.
„Það liggur á að æfa, róta
og halda tónleika í Stúd-
entakjallaranum/' segir Sig-
hvatur Ómar Kristinsson,
orgelleikari i Apparat.„Svo
er ég að hjálpa mömmu og
pabba að flytja í höllina
slna í Grafarholtinu."
Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi, fagnar því að Bjarki Þór Pétursson
hafi verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ógeðfelldar hótanir í garð lög-
reglumanns. Ólafur segir að dómurinn marki tímamót og sendi skýr skilaboð út í
samfélagið.
Hótaði að lífláta böm
lögreglumanns
„Við erum mjög sáttir við þessa niðurstöðu/' segir Ólafur Þór
Hauksson, sýslumaður á Akranesi. f vikunni féll dómur í Héraðs-
dómi Vesturlands þar sem Bjarki Þór Pétursson var dæmdur í
fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hóta lögreglumanni og fjöl-
skyldu hans lífláti.
Hann hótaði þvi að
lífláta varðstjórann
frammi fyrir fjöl-
skyldu hans aukþess
semhann sagðist
setla að lífláta konu
hans ög börn.
í mars á síðasta ári barst Lögregl-
unni á Akranesi tilkynning þess efn-
is að maður væri að reyna að brjót-
ast inn í fjölbýlishús við Sóleyjargötu
þar í bæ. Lögreglumen fóru á vett-
vang og hittu fyrir Bjarka Þór. Hann
hafði haft í hótunum við íbúa húss-
ins og var handtekinn af lögreglu
vegna tilraunar til innbrots. Bjarki
Þór reiddist mjög við handtökuna og
var því beittur valdi af hálfu lögregl-
unnar vegna mótþróa.
Hótaði lögreglumanni og
fjölskyldu hans lífláti
Bjarki var ákærður fyrir að hóta
lögregluvarðstjóra við handtöku og í
lögreglubíl á leið á lögreglustöð.
Hann hótaði því að lífláta varðstjór-
ann frammi fyrir fjölskyldu hans auk
þess sem hann sagðist ætla að lífláta
konu hans og börn. Þessar hótanir
eru meginástæðan fyrir fjögurra
mánaða fangelsisdómi sem Bjarki á
Skýr skilaboð
í 160. grein almenma hegningar-
laga segir að hver sá sem ræðst
með hótunum eða ofbeldi á
opinberan starfsmann, þegar
hann er að gegna skyldu-
starfi sínu, skuli sæta allt að
sex árum í fangelsi.
„Lögreglumenn hafa lít-
ið notað þessa grein hegn-
ingarlaga meðal annars
vegna þess að refsingar
hafa verið lágar og ekki til
þess fallnar að draga úr
þeirri hættu sem lögreglu-
menn standa frammi fyrir í
sínu starfi," segir Ólaf-
ur Þór sem
vonar að
ip'
svona tilvikum muni fækka
í kjölfar dómsins:
„Á tímum sem of-
beldi hefur verið
að aukast hefur
lögreglumönn-
um fundist
vanta stuðning
að þessari grein
hegningarlaga.
Með þessum
dómi er dómstóll-
inn að gefa skýr
skilaboð um að það
sé verulega ámælis-
vert að hóta lögreglu-
manni."
svavar@dv.is
nú yfir höfði sér.
„Þegar þeir voru búnir að hand
jáma mig héldu þeir áfram að ham
ast á mér og pynta mig,“ segir Bjarki,
sem kveðst hafa verið beittur miklu
harðræði af hálfu lögreglunnar.
Bjarki sagði sér ekki hafa verið
kunnugt um niðurstöðu dómsins
þegar DVhafði samband við hann
í gær. Hann ætlar að áfrýja dómn-
um.
Ólafur Þór Hauksson
Sýslumaðurinn á Akra-
nesi vonar að dómurinn
verði til þess að dragi úr
hótunum og ofbeldií
garð lögreglunnar.
16. desember 2005
útsaia Útsila
Rýmum fyrir nýjum kortum.
Öll árskort á aðeins
Orkuverið líkamsrækt Egilshöllinni
ORKUVERID
Egilshöllinni
Simi: 594 9630
www.orkuverid.is
Hart tekið á smáglæpum
Fimm mánuðir fyrir lanq-
lokuþjófnað
Sigrún Kristbjörg Tryggvadóttir,
25 ára Kópavogsbúi, var í gær í Hér-
aðsdómi Reykjaness dæmd í fimm
mánaða fangelsi vegn ýmissa smá-
brota sem hún framdi á árinu 2005.
Sigrún játaði brotin.
Á meðal þess sem Sigrún vann
sér til saka var að hafa í júlí í fýrra
stolið þremur langlokum úr verslun
10-11 við Austurstræti, að verðmæti
877 krónur. í sömu verslun stal hún
svo í október 1944-örbylgjurétti að
verðmæti 658 krónur.
Sigrún braut skilorð með þjófn-
aðinum og því þótti Þorgeiri Inga
Njálssyni dómara rétt að dæma
hana í fimm mánaða fangelsi. At-
hygli vekur að enginn hluti refsing-
arinnar er skilorðsbundinn. Nokkr-
um mínútum áður en Sigrún hlaut
nO.kjfyiHW
Þorgeir Ingi Njálsson Dómarinnfór ekki mjúkum höndum um smákrimma 1 réttarsalnum f gær.
sinn dóm, fýrir samloku- og ör-
bylgjuréttarþjófnaðinn, var jafnaldri
hennar dæmdur í 30 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa undir
höndum tæp hundrað grömm af
hassi sem hann játaði að hafa ætlað
að selja. andrits>dv.is
Þrjátíu dagar
fyrir hass
Eyjólfur Gísli lónsson, 26 ára
Haftífirðingur, var
ígær
dæmd-
ur í 30
daga
skil-
orðs-
bundið fangelsi vegna fíkniefna-
brota. Lögreglan fann tæp hund-
rað grömm af hassi í bifreið Eyj-
ólfs þar sem hún stóð fyrir utan
heimili hans. Athygli vekur að
fíkniefnin fundust í ágúst 2004
en ekki var dæmt í málinu fyrr en
í gær. Eyjólfur játaði fyrir dómi
að vera eigandi efnanna og að
þau hefðu verið ætluð til sölu-
dreifingar. Hann hefur ekki áður
gerst sekur um refsiverð brot og
refsing hans því ákveðin þriggja
mánaða skilorðsbundin fangels-
isvist.