Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Blaðsíða 17
DV Sport
LAUGARDAGUR 14.JANÚAR2006 17
Héldu Spurs í
138stigumí
tveimur leikj-
um
Detroit Pistons vann
annan yfirburðarsigur á
meisturum San Ant-
onio Spurs í NBA-
deildinni í fyrrinðtt.
Detroit sem hefur
unnið 28 af 33 leikj-
um sínum endaði 12
leikja sigurgöngu
San Antonio með
því að vinna þá 83-
68 en Detroit vann fyrri leik
liðanna í vetur 85-70 á jóla-
dag og hélt meistunum því í
samtals 138 stigum í þessum
tveimur leikjum. Detroit
vann fráköstin 56-32 og
Spurs hitti aðeins úr 27 af 70
skotum sínum í leiknum.
Loksinsskor-
aði Solskjær
Norðmaðurinn Ole
Gunnar Solskjær skoraði
langþráð mark með varaliði
Manchester United í 5-1
sigri á Leeds en hann skor-
aði fjórða mark United í
leiknum. Ole Gunnar var að
leika sinn fimmta
leik eftir að hann
steig upp úr meiðsl-
um en þrír af þeim
hafa verið með
varaliðinu. Það voru
liðnir 28 mánuðir
síðan að Solskjær
skoraði fyrir United-liðið en
hann skoraði síðast í leik
gegn gríska liðinu Pan-
athinaikos í meistaradeild-
inni í september 2003.
Bestu konur
Breta og Norð-
manna á
vígslumótið
Frjálsíþróttamenn eiga
von á mikill veislu í nýju
frjálsíþróttahöllinni í Laug-
ardal en bestu sprett-
hlauparar kvenna í Bretlandi
og í Noregi á síðasta ári
koma og keppa á vígslumót-
inu 28. janúar. Þetta eru þær
Emma Ania og Anna Cat-
hrine. EmmaAnia,
sem dvaldi hér á
landi um nokkurt
skeið og keppti þá
fyrir FH hefur
ákveðið að koma og
keppa á vígslu-
mótnu 28. janúar
næstkomandi. Emma hijóp
lOOm á 11.35 sekúndum á
síðastliðnu ári, sem var jafn-
framt besti árangur í
kvennaflokki í Bretlandi í
fyrra.
Harpa heim í
Hafnarfjörð
Harpa Vífilsdóttir er á
leiðinni heim í Hafnarfjörö
en á heimasíðu FH-inga
kemur fram að hún hefur
gert samning við handknatt-
leiksdeild FH um að
hún leiki með
kvennaliði félagsins
næsta keppnistíma-
bil. Harpa, sem er
hægri homamaður,
lék á árum áður
með FH en hefur
undanfarin 3 ár dvalið í
Danmörku við nám auk
þess sem hún hefur leikið
handknattleik með lið BK
Ydun í Kaupmannahöfn
sem erí 1. deild.
íslenska handboltalandsliðið er á leiðinni á sitt 23. stórmót í handbolta og
hefur ekki tapað í 14 síðustu leikjum sínum. íslenska liðið hefur aldrei
komið inn á stórmót með meira en fimm taplausa leiki á bakinu en liðið á
eftir fjóra leiki fram að Evrópumótinu í Sviss.
BESTA GENGIÐ FYRIR STÓRMÓT:
5 leikir án taps HM 1974 (14. sæti)
4 sicjrar, 1 jafntefli - vann 2 síðustu leikina
4 leikir án taps HM 1970 (11. sæti)
4 sigrar í röð
4 leikir án taps HM 1990 (10. sæti)
2 sigar, 2 jafntefli - sigur í síðasta leik
4 leikir án taps HM 1995 (13. sæti)
3 sigar, 1 jafntefli - jafntefli í síðasta leik
S leiki á bakinu
Það hefur oft verið talað um að
vonir og væntingar til íslenska lands-
liðsins hafi mikil áhrif á hvernig ár-
angur íslenska liðsins sé á því stór-
móti sem fylgir á eftir. Þegar íslenska
þjóðin spáir Strákunum okkar
heimsmeistaratitli eða Ólympíugulli
þá er niðurstaðan oftast mikil von-
brigði en þegar enginn býst við
neinu þá geta oft óvæntir hlutir
gerst. Að þessu sinni eru vænting-
amar yfir meðallagi,- íslenska liðið
hefur gengið vel í síðustu landsleikj-
um og virðist hafa frábæra hand-
boltamenn í hverri stöðu. Gengið á
síðustu stórmótum, 13. sæti á EM
2004, 9. sæti á Ólympíuleikunum
2004 og 15. sæti á HM 2005, hefur
þótt næg ástæða til þess að halda
mönnum á jörðinni og halda þess-
um frægu væntingum niðri.
íslenska hand- \
boltalandsliðið er ekkert
að láta meiðsli eða veikindi
hafa áhrif á sig í sigurgöngu v
sinni en liðið er nú á lokakafla und-
irbúnings síns fyrir komandi
Evrópumót í Sviss. Framundan eru
fjórir æfingaleikir fyrir mótið, fyrst
gegn Katar og Noregi á æfinga-
móti íNoregi, svonefndum Um-
bro-bikar og svo tveir vináttu-
landsleikir gegn Frökkum hér
heima. Gangi aiit upp gæti liðið
komið inn á mótið búið að spila 18
leiki í röð án þess að tapa leik.
Viggó Sigurðsson er nú að-
eins einu leik frá því að jafha
met Þorbjöms Jenssonar
sem stjórnaði íslenska liðinu
í 15 leikjunum í röð án þess
að tapa árið 1996. Undir
stjóm Þorbjöms vann ís-
lenska liðið 14 leiki og gerði
eitt jafntefli frá apríl 1996 til
febrúar 1997 þegar sigurgang-
an endaði í tapleik
J 69 mörk í sigurgöngunni
I Guðjón Valur Sigurðsson hefur skorað 69 mörk I
I siðustu 14 leikjum íslenska landsliðsins en is-
| lenska liðið hefur ekki tapað íþessum 14 leikjum.
remá-M’
Besta
gengið fyrir
HM1974
Besta gengi ís-
lenska landsliðsins í
síðustu leikjum sínum
fyrir stórmót var undir
stjóm Karls G. Benediktsson-
ar fyrir HM í Austur-Þýskalandi
árið 1974. íslenska liðið var þá tap-
laust í síðustu fimm leikjum sínum
fyrir mótið, vann fjóra leiki gegn
Bandaríkjamönnum (2), Ungverjum
og Norðmönnum og gerði auk þess
jafntefli við Ungverja.
fslenska landsliðið hefur farið 12
sinnum inn á stórmót án þess að
tapa síðasta leik fyrir mótið en á síð-
ustu fimm stórmótum hefur liðið
ekki náð að koma inn á stórmót með
sigurgöngu á bakinu. Það er með tvo
leiki í röð eða fleiri án taps. íslenska
liðið vann sinn síðasta leik fyrir síð-
ustu tvö Evrópumót.
gegn Þjóðverjum í
Ludwigshafen. íslenska liðið
tapaði einnig næstu tveimur leikjum
en náði síðan 5. sætinu á HM í
Japan um sumarið.
Góðar minningar frá Sviss
íslenska þjóðin á góðar minning-
ar frá HM í Sviss fyrir 20 árum síðan
en íslenska landsliðið fylgdi þá eftir
6. sætinu sem liðið náði tveimur
árum á undan á Ólympíuleikunum í
Los Angeles með því að halda sér í
hópi sex bestu þjóða heims. Þetta var
í fýrsta og eina skiptið sem það hefur
tekist hjá íslensku landsliði.
Nú er að sjá hvemig ís-
lenska landsliðinu geng-
ur fram að Evrópu-
mótinu og hvort
íslensku strák-
arnir komi
inn á mótið
með 18 tap-
lausa leiki á
_________bakinu en
fyrsti leilcur
íslands á EM er
gegn Serbíu og Svartfjallalandi 26.
janúar næstkomandi. ooj@dv.is
Ensku meistararnir í Chelsea geta unnið sinn tíunda deildarleik í röð á morgun
Verður Eiður Smári í framlínunni í
250. leiknum sínum með Chelsea?
Sunderland á enn eftir að vinna
heimaleik í ensku úrvaisdeildinni í
vetur og líkumar em ekki miklar í leik
helgarinnar en sjálfir Englandsmeist-
aramir í Chelsea heimsækja Sunder-
land á morgun. Chelsea hefur unnið 9
síðustu deildarleiki sína og hefur
fengið 52 fleiri stig en Sunderland sem
er á botni ensku úrvalsdeildarinnar.
Liverpool er eina liðið sem hefur náð
að vinna tíu deildarleiki í röð á þessu
tímabili en metið í ensku úrvalsdeild-
inni síðan 2001-2002 þegar Arsenal
vann 14 leiki í röð. Ef marka má sann-
færandi sigra Chelsea að undanfömu
er Uklegt að þetta met geti fallið fyrr en
varir.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, gat
leyft sér að hvfla lykilmenn eins og
John Terry, Frank Lampard og Peter það reyndi mikið á þá í leikjatöminni í
Cech í bikamum um síðustu helgi en kringum jól og áramót. Þar sem Didier
77 mörk í 249 leikjum EiðurSmári
Guðjohnsen fagnarhérsinu 77. marki
fynr Chelsea sem hann skoraði í bikarleik
gegn Huddersfield um slðustu helgi
Drogba er farinn til móts við félaga
sína í landsliði Fflabeinsstrandarinnar
og Heman Crespo er enn að ná sér að
meiðslum em góðar lfloir á því að
okkar maður Eiður Smári
Guðjohnsen verði í framlínunni gegn
Sunderland á morgun. Þetta verður
250. leikur hans fyrir Chelsea og það
væri vel við hæfi að hann bætti við
þau 77 mörk sem hann hefur skorað
fyrir Chelsea í öllum sínum 249 leikj-
um.
Eiður Smári er búinn að spila 8 af
þessum 9 sigurleikjum Chelsea í röð
og samtals í 570 mínútur í þeim eða
70,4% leiktímans. Eiður Smári hefur
ekki náð að skora en hefur gefið 3
stoðsendingar, þar á meðal í tveimur
síðustu leikjum. Eiður Smári skoraði
síðan í síðasta leik sem var í bikar-
keppninni gegn Huddersfield um síð-
ustu helgi en hann bar þá fyrirliða-
bandið í forföllum þeirra Terry og
Lampard. Leikurinn hjá Chelsea hefst
klukkan 16 á morgun og er lokaleikur
umferðarinnar.