Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Qupperneq 12
72 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Símakeppni
Forsvarsmenn Og
Vodafone komu til
fsaíjaröar á mánudag
og áttu meðal annars
fund með Haildóri
Haildórssyni, bæjar-
stjóra fsafjarðarbæjar,
þar sem þeir kynntu
starfsemi fyrirtækisins, að
því er ffam kemur á vef bb.is.
Síminn tilkynnti fyrir nokkru
lokun starfsemi 118 á ísafirði
ffá og með 1. janúar og
misstu fimm starfsmenn í
hlutastörfum atvinnu sína
við það. ísafjarðarbær ákvað
í kjölfarið að endurskoða
viðskipti sín við Símann og
var sérstakur starfshópur
skipaður til verksins sem
skoðar nú hvort færa eigi
viðskipti til Og Vodafone.
Minnhluti
sagðurdylgja
„Dylgjum um
að „dráttur út-
boðs kunni að
hafa kostað fé" er
vísað á bug, sem
órökstuddum
vangaveltum,"
segir meirihluti
Sjálfstæðisflokks
í bæjarstjóm
Álftaness, um bókun minni-
hluta Álftaneshreyfingarinn-
ar sem gagnrýndi undirbún-
ing vegna stækkunar íþrótta-
miðstöðvarinnar. „Dráttur
útboðs kann að hafa kostað
sveitarfélagið miklar fjár-
hæðir. Verkið var boðið út í
tímapressu og reyndist
lægsta tilboð vera um það bil
15 milljónum yfir viðmiðun-
arboði ráðgjafaverkfræð-
inga.“
„Það er náttúrulega helst að
frétta að loðnan fannst nú í
vikunni,"
segirÞor-
steinn Steinsson sveitarstjóri
á Vopnafirði.„Við vorum nú
ekkert orðnir ofóþreyjufullir
því hún gerir venjuiega vart
við sig í kringum þorrablótin.
Þorrablótið verðurhjá honum
Dúdda i féiagsheimitinu Mikla-
garði föstudaginn næsta."
Landsíminn
Eyþór Guðjónsson leikur eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinnni Hostel sem er að-
sóknarmesta kvikmynd síðustu helgar í Bandaríkjunum. íslandsvinurinn Eli Roth
leikstýrði myndinni og Quentin Tarantino framleiddi. Tekjur af miðasölu á Hostel
fyrstu helgina voru sexfalt hærri en kostnaður við framleiðslu myndarinnar.
Eyþór Guðjónsson
Leikur í hinni óhugnan■
legu kvikmynd Hostel.
■r-.W1:-
„Ég reyndi allt sem ég gat til þess að fá prósentur af sölu myndar-
innar," segir Eyþór Guðjónsson athaftiamaður og einn aðalleikari
stórmyndarinnar Hostel sem EIi Roth leikstýrir og Quentin Tar-
antino framleiðir. Eyþór er orðinn einn farsælasti leikari íslands-
sögunnar eftir að kvikmyndin Hostel varð aðsóknarmesta mynd
Bandaríkjanna um síðustu helgi. Hostel skaut þar með kvikmynd-
um eins Namia, King Kong og fleiri stórmyndum ref fyrir rass.
„Það er súrreah'skt að heyra þetta,
náttúrulega," segir Eyþór Guðjóns-
son, aðalleikari í myndinni Hostel
sem í augnablikinu
er sú vinsælasta í
Bandaríkjunum.
Það er íslandsvinurinn Eli Roth
sem leikstýrir Hostel og Quentin Tar-
antino sem framleiðir. Eyþór segist
ekki hafa búist við þessum feiknavin-
sældum myndarinnar; og hvað þá að
hann yrði heimsfrægur í kjölfarið.
Eyþór er ekki lærður
leikari og hefur aldrei
áður tekið að sér hlut-
verk í kvikmynd en
steig þó á svið í
leikriti þegar hann
var tólf ára. Hann
segist gleðjast
yfir því að
myndin sé að
fá góða
dóma og
einnig
leikur
hans.
Ekki fyrir peninginn
„Þetta eru bestu mánaðarlaun
sem ég hef nokkum tíma fengið,“ seg-
ir Eyþór sem ekki vill gefa upp hvað
hann fékk fyrir leik sinn í kvikmynd-
inni; laun hans séu trúnaðarmál.
Hostel kostaði 3,2 milljarða króna í
framleiðslu en halaði inn 20 milljarða
fyrstu sýningarhelgina, eða sexfaldan
kostnaðinn. Laun leikara em mjög
misjöfri í kvikmyndaheiminum og
hver leikari semur um sín kjör án þess
að einhvers konar viðmið séu notuð
en yfirleitt em þær upphæðir ekki
lágar.
„Ég gerði þetta ekki fyrir pening-
inn heldur íýrir ævintýrið að prófa
þetta," segir Eyþór og bætir við að
fjöldi leikara hafi viljað leika í mynd-
inni og hefðu þeir sennilega verið til-
búnir að gera það ókeypis.
Vill leika með Cameron Diaz
„Ég myndi leika aftur í kvikmynd
ef Cameron Diaz myndi hringja og
biðja mig um að leika með sér í róm-
antískri gamanmynd með mörgum
ástaratriðum," segir Eyþór um mögu-
leikann á áframhaldandi leiksigmm í
Hollywood.
Eyþór bætir við að það sé gríðar-
lega erfitt fyrir útlending að ná ár-
angri í kvikmyndum í Bandaríkjun-
um. Fyrir séu tugþúsundir leikara
„Ég myndi leika aftur í
kvikmynd ef Cameron
Diaz myndi hringja og
biðja mig um að leika
með sér í rómantískri
gamanmynd með
mörgum ástaratrið-
um."
sem vilja komast að í draumaborg-
inni.
Grín sem gekk of langt
„Ég ætla að einbeita mér að teikni-
myndafyrirtækinu mínu en við emm
að gera Grettissögu núna,“ segir Ey-
þór aðspurður um framtíðina. Hann
á og rekur teiknimyndafyrirtækið
Blue Turtle sem vinnur nú að því að
gefa út teiknimynd í fullri lengd um
Grettissögu. Hann segir að kvik-
myndareynsla hans nýtist honum
mjög vel í teiknimyndageiranum og
að hann sé mjög þakklátur fyrir að
hafa fengið að taka þátt í þessu ævin-
týri.
„En í fáum orðum sagt, þá var
þetta grín sem gekk of langt," segir
Eyþór hlæjandi. valur@dv.is
STYRKIR ÚR
HÚSVERNDARSJÓÐI
REYKJAVÍKUR
Aðalmeöferð lokið í máli Kjartans Haukssonar
Styttist í dóm yfir góðgerðarræðara
Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um
styrki til viðgerða og endurgerðar á byggingum í Reykjavík,
sem hafa sérstakt varðveislugildi af sögulegum og
byggingarsögulegum ástæðum. Bent skal á að endurgerðir á
ytra byrði húsa til upprunalegs stíls og viðhald húshluta sem
taldir eru hafa mikið gildi til varðveislu vegna heildarsvips
svæða s.s. klæðningar, steyptar þakrennur og garðveggir
njóta forgangs.
Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum:
1 .Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
2. Tímaáætlun.
3. Kostnaðaráætlun um fyrirhugaðar framkvæmdir.
4. Nýjar Ijósmyndir af húsi og eldri, ef til eru.
Umsóknir skulu berast til skipulagsfulltrúa á Skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, fyrir
7. febrúar 2006.
Eyðublöð liggja frammi á Árbæjarsafni, Skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkur, Borgartúni 3 og á heimasíðu
Skipulags- og byggingarsviðs, skipbygg.is.
Aðalmeðferð lauk í Héraðsdómi
Reykjaness í máli Ríkislögregiustjóra
gegn Kjartani Jakobi Haukssyni í
gær.
Kjartani er gefið að sök að hafa
brotið gegn lögum um staðgreiðslu
opinberra gjalda og lögum um virð-
isaukaskatt þegar hann var fram-
kvæmdastjóri og stjórnarmaður Sjó-
verks á árunum 2000 til 2002. Upp-
hæðin sem Kjartan er sakaður um
að hafa ekki greitt er um tíu milljón-
ir króna. Hluti þeirrar upphæðar
hefur síðar verið greiddur.
Kjartan gat sér gott orð í sumar
þegar hann réri í kringum landið á
árabátnum Frelsi til að hvetja hreyfi-
hamlaða til að láta draum sinn um
að ferðast rætast. Hann safnaði um
leið peningum í hjálparliðasjóð
Sjálfsbjargar sem var þurrausinn í
byrjun sumars.
í hringróðri sínum safnaði Kjart-
an rúmlega 3,5 milljónum í sjóðinn.
Dæmt verður í fjársvikamálinu inn-
an skamms.
Kjartan Hauksson Ríkislögreglustjórisakar hann um fjársvik.
andri@dv.is