Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006
Helgarblað DV
Tónlistarmaðurinn Óttarr Proppé var ein aðal-
stjarna kvöldsins á tónleikunum sem haldnir voru
um síðustu helgi gegn virkjunnarframkvæmdum
undir yfirskriftinni „Erum við að verða náttúru-
laus?“ Hann fór fyrir alls þremur hljómsveitum um
kvöldið, í þremur búningum. En frá níu til fimm er
hann í allt öðrum búningi. DV tók hann tali.
Tónlistarferill rokkhundsins Óttars Proppé hófst íyrir alvöru árið
1988 þegar hann stofnaði þungarokkshljómsveitina Ham með
Birni Blöndal vini sínum úr Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og
„Kópavogsgenginu", þ.e. Sigurjóni Kjartanssyni og fleirum. Hljóm-
sveitin „meikaði" það aldrei á íslenskan mælikvarða í útlöndum
þótt þeir hafi gefið út disk bæði í Englandi og Japan og verið vin-
sælir á jaðrinum víðsvegar í Evrópu enda var það ekki ætlunin. Þeir
hættu svo formlega árið 1994. Hljómsveitin hefur komið saman
eftir að hún hætti, þeir hituðu upp íyrir Rammstein fyrir nokkrum
árum og nú síðast komu þeir fram á tónleikunum í Höllinni.
í kjölfar kveðjutónleika þeirra á
Tunglinu 1994 brann skemmtistað-
urinn og skildu þeir einnig eftir sig
sviðna jörð í New York, en klúbbur
sem þeir spiluðu í þar brann einnig
eftir tónleika þeirra. „Við skildum
víða eftir okkur sviðna jörð.“ segir
Óttarr og hlær. „Flestir tónleika-
staðir sem við tróðum upp á lögðu
upp laupana skömmu síðar."
Þessi magnaða hljómsveit skipar
merkan sess í íslenskri tónlistarsögu
íyrir frumlegt og þétt þungarokk og
er talað um þá sem frumkvöðla í ís-
lensku rokki. „Við höldum því alla
vega fram núorðið en við hugsuðum
ekkert sérstaklega um okkur sem
einhverja frumkvöðla þá. Við hugs-
uðum aldrei neitt sérstaklega um
okkur sem íslenska hljómsveit, við
vorum bara í því sem við vorum í.
Stærstan hluta ferilsins spiluðum
við meira í útlöndum en hér heima."
Óttarr segist ekki spila af neinu
viti á hljóðfæri fyrir utan að hafa
þótt liðtækur túbuleikari á árum
áður. „Það er vegna þess sem ég var
látinn syngja á sínum tíma, ég hafði
ekki hæfileika til annars."
Pönkari með Rass
„Það var svolítið stress, sérstak-
lega búningastress. Þegar maður er
að spila með þremur mismunandi
hljómsveitum á sömu tónleikunum
þarf maður að skipta um föt rétt til
að fólk fái ekki algeran leiða á
manni. Þetta voru samt með best
heppnuðu tónleikum sem ég hef
tekið þátt í, troðfull Höll og fín
stemning. Þannig að það var mjög
gaman, alveg frábært."
Óttarr steig einnig á stokk með
pönkhljómsveitinni Rassi með
kúrekahatt, í leðurbuxum og hlýra-
bol með tússuðu anarkistamerki. En
er hann pönkari? „Já, já, ég er alinn
upp í pönkinu. Ég er alinn upp í
„Þetta voru með best
heppnuðu tónleikum
sem ég heftekið þátt
í, troðfull Höll og fín
stemning. Þannig að
það var mjög gaman,
alveg frábært."
sjávarþorpi og í sveit í Dölunum.
Pönkið er mjög íslenskt. Ég er mjög
ánægður með að pönkið lifi í manni
enn í dag."
Hljómsveitin stendur fyrir sterk-
ar pólitískar skoðanir eins og sannri
pönksveit sæmir og flutti um kvöld-
ið lögin Andstaða og Kárahnjúkar.
„Þetta eru póljtískar skoðanir og
hörð andstaða gegn því sem maður
kallar þægilegheit og stöðnun á
öllum sviðum."
Pönkhljómsveit er kjörinn vett-
vangur til að sýna andstöðu gegn
hlutum eins og virkjanastefnu ríkis-
stjórnarinnar. „Það hefur enginn
náð að skýra og réttíæta þessar
framkvæmdir nógu vel fyrir mér.
Maður er aðallega og sérstaklega á
móti þessari aðferðafræði sem er
beitt, hvernig þetta hefur runnið í
gegn spurningalaust. Svona
ákvarðanir á ekki að taka nema að
vel ígrunduðu máli."
Prófessorinn
Þegar þessi dagfastprúði maður
stígur á stokk, segist hann vera í sér-
stöku skapi eftir því hvaða hljóm-
sveit hann er að syngja með frekar
en að um aukasjálf sé að ræða. Fyrir
nokkrum árum var það þó prófess-
orinn sem klæddist nfðþröngum
bleikum sokkabuxum, þykkbotna
skóm og ýmsum „fönkí" fötum sem
var hans aukasjálf. „Prófessorinn er
eina aukasjálfið sem ég hef haft.
Funkstrasse var hljómsveit sem
eiginlega datt upp úr okkur Jóhanni
Jóhannssyni á þeim tíma sem við
vorum saman í HAM. Við heilluð-
umst svo af gamla seventís-fönkinu.
Þar fólst mikið í mythólógíu og
karakterum ýmis konar. Prófessor-
inn var í þeim anda, svona eins kon-
ar skopúrgáfa af því sem Doktor
Gunni var síðar."
Þegar Óttarr söng síðan með
þriðju hljómsveitinni, Dr. Spock,
kom hann fram í bleikum sokkabux-
um og flatbotna skóm ber að ofan.
„Það var bara söngvarinn í Dr. Spock
sem fékk lánað úr fataskáp prófess-
orsins en ekki prófessorinn sjálfur,
hann fylgir bara Funkstrasse. Þetta
er bara sitthvor búningurinn og sitt-
hvort skapið hjá manni, það fer eftir
því hvaða hljómsveit á í hlut."
Aðalstarfið í bókabúðinni
Óttarrr er þekktur fyrir frábæra
sviðsfr amkomu og á hann sér marga
dygga aðdáendur sem dýrka hann
og dá. Hann segist hafa mjög gaman
af að koma fram með Jiljómsveit-
unum sínum og litíar líkur á að hann
hætti því á næstunni. Hann starfar
nú til jafns með Dr. Spock og Rass.
„Það fer svona eftir dögunum hvor
aðalhljómsveitin mín er. Báðar
hljómsveitirnar voru að gefa út sinn
fyrsta disk eftir um það bil tíu ára
samstarf. Það einhvern veginn þró-
aðist þannig að báðar hljómsveitir
urðu svo aktívar á þessu ári."
Þótt tónlistin skipi stóran sess í
lífi Óttars hefur hann hana ekki að
aðalstarfi og hefur aldrei gert.
„Ég er vörustjóri erlendra bóka
hjá Pennanum Eymundsson, starfa
aðallega við að panta og sjá um inn-
flutning á erlendum bókum. Ég er
búinn að hafa þetta að aðalstarfi
síðan ég útskrifaðist úr framhalds-
skóla og kann mjög vel við mig
hérna."
Óttarr hefur einnig starfað svo-
lítíð við kvikmyndagerð. Með félaga
sínum úr Rassi, Þorgeiri Guðmunds-
syni, gerði hann nýverið heimildar-
myndina Bítlabærinn Keflavík og
verður hún sýnd hjá Rfkissjónvarp-
inu á næstunni. „Kvikmyndagerðin,
llkt og músíkin er bara mitt hobbí og
hliðarverkefni," segir bókhneigði
pönkarinn með stóra yfirvara-
skeggið að lokum.
rap@dv.is
| Óttarr Ólafur Proppé
Sér um innfíutning er-
lendra bóka fyrir Penn-
ann Eymundsson.
Óttarr Ólafur Proppé
Tróð upp með þremur
óllkum hljómsveitum I
Höllinni á dögunum.
Pönkstjarna Óttarr
með pönksveitinni Rass.