Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 14.JANÚAR2006
Helgarblað DV
Brenndi
sig inni
Áttræður maður í Downey í
Kaliforníu kveikti í sér eftir að
hafa borið eld að húsi nágranna
sinna í hefndarskyni vegna bfla-
stæðaerjna. Lögreglan var kvödd á
staðinn eftir að maðurinn hafði
borið eld að dyrakarmi nágranna.
Þegar hún mætti á staðinn stóð
gamli maðurinn á miðri götu með
skammbyssu í hvorri hönd og
aðra ermina á náttserknum log-
andi. Þegar hann sá lögregluna
rauk hann inn í húsið. Mínútu
síðar heyrðist sprenging og húsið
stóð skömmu síðar í ljósum log-
um. „Hann hataði alla, mér datt
bara ekki í hug að
mundi ganga svona
sagði ná-
granninn.
Myrti
syni sína
Tvfburabræðumir John og
James Demeniuk fundust skotnir
á heimili sínu í Flórída. Móðir
þeirra, Leslie, fannst liggjandi
áfengisdauð í rúmi sínu. Hún
hefur verið ákærð fyrir að myrða
þá. Að sögn lögreglu segir hún að
hana minni að hún hafi skotið
annan þeirra í ennið og hinn
tvisvar í eyrað. Hún var nýskilin
við bamsföður sinn og sam-
kvæmt réttarskjölum hafði hún
skipt um geðlyf tveimur dögum
áður en harmleikurinn átti sér
stað og munu verjendur hennar
halda því fram að blanda af Pax-
illc ncr Rmirhnn-vislrfi hafi nllirS
Kyrkti
barnaníð-
ingsprest
Lífstíðarfanginn Joseph Druce
læsti prestinn John Geoghan inni
í klefa, barði hann til óbóta og
kyrkti hann síðan. Presturinn var
að afplána tíu ára fangelsisdóm
fyrir kynferðislega misnotkun á
ungum dreng. Druce heldur
fram sakleysi sökum geðveiki.
Fangaverðir í Souza-Baranow-
sky-fangelsinú segja að Druce
hafi stært sig af því að hafa drep-
ið níðinginn og talað um að
hann hafi með því bjargað fjölda
barna. Erfitt hefur reynst að velja
í kviðdóm fyrir réttarhöldin þar
sem fáir treysta sér í að vera
hlutlausir í máli gegn manni sem
drap barnaníðing.
Sarah Johnson var alin upp í rólegu úthverfi. Kunnugir sögðu að foreldrar
hennar hefðu ávallt reynt að gera allt til að gleðja dóttur sína en það breytti
því el^ að 16 ára gömul reiddist hún þeim heiftarlega.
„Eg verö í sjónvarpinu"
Sakamál
Hljóðlátt úthverfið Bellevue í
Idaho hefur verið griðastaður
margra. Fjöldi kvikmyndastjama á
þar annað heimili, stað sem lengi
vel var talinn órafjarri sviðsljósinu
og glæpum. í byrjun september
árið 2003 hafði ekki verið framið
morð á þessum slóðum í 25 ár. Síst
af öllu renndi fólk í gmn um að
ógæfan myndi dynja yfir á heimili
Johnson-fjölskyldunnar. Hjónin
Alan og Diane Johnson vom vel-
metin í þessu litla samfélagi, þau
vom vel stöndug fjárhagslega og
lýstu nágrannar þeirra þeim sem
miklu rólyndisfólki. Af fyrra sam-
bandi átti Diane 22 ára gamlan son
sem starfaði að fyrirtæki stjúpföður
síns en saman áttu þau ung-
lingstúlkuna Sömh sem var nýléga
orðin 16 ára.
„Þau eru dáin"
Allt breytist aðfaranótt 2. sept-
embers 2003. Lögreglan fékk símtal
frá konu sem tilkynnti að hún hefði
heyrt byssuskot og óp ffá húsi
Johnson-fjölskyldunnar. „Ertu viss
um að skothvellirnir hafi komið
innan úr húsi þeirra?" spurði lög-
Dóttirin Sarah Johnson varskapheitur
unglingur.
Heimilið Fjölskylduna virtistekki van-
haga um neitt.
reglan. „Já, og ung dóttir þeirra
flúði hingað og sagði okkur að ein-
hver hafi komið og skotið foreldra
sína,“ sagði nágrannakonan ang-
istarfifll. A bak við heyrði lögreglan
unga stúlku hljóða í ofboði á hjálp
og foreldra sína.
Sarah var fengin til að lýsa því
sem gerst hafði. Hún sagðist hafa
séð konu í garðinum fyrr um dag-
inn. Henni hafi verið mikið niðri
fýrir og hafði hún meðal annars
haft í líflátshótunum við foreldra
hennar. Vesalings stúlkan sagðist
ekkert hafa vitað hver þessi kona
var og enn síður hvað hún átti sök-
ótt við foreldra sína. „Hvers vegna
gerði hún þetta?" æpti hún upp-
námi.
Við nánari eftirgrenslan
Hjónin höfðu verið skotin í
hnakkann með öflugum rifli.
Greinilegt var að Alan hafði reynt
að koma konu sinni til hjálpar.
Sarah sagðist hafa komist undan á
flótta. Fljótíega fundu rannsóknar-
lögregluþjónar blóðuga bleika
kápu og hanska í grennd við heim-
ilið. Inni í hönskunum fundust
fingraför Söruh.
Við nánari eftirgrennslan
komust lögregluþjónarnir einnig
Foreldrarnir Þóttu mikiö rólyndisfólk sem vildu gera allt fyrir dóttur slna.
að því að Sarah hafði átt í miklum
deilum við foreldra sína. Ástæðan
var sú að hún hafði verið í tygjum
við Bruno Santos en hann var 19
ára gamall af spænskum ættum.
Hjónin höfðu meðal annars hótað
Söruh því að þau myndu láta kæra
hann fyrir nauðgun ef hún héldi
áfram að hitta hann. Sarah var
ákærð fyrir að hafa myrt foreldra
sína.
Gerðu allt fyrir hana
Hún var 18 ára þegar réttað var í
máli hennar. Ein af ástæðunum
fyrir morðunum var talin vera
græðgi en vitað var að Sarah hafði
lagt hart að föður sínum um að erfa
hana að öllum eigum fjölskyldunn-
ar þar sem hún taldi hálfbróður
sinn eins lögmætan erfingja og
hana. Hún virtist hafa lítinn áhuga
á réttarhöldunum en þeim mun
meiri á þeirri staðreynd að þeim
var sjónvarpað. Sérstaklega hafði
hún ánægju af viðurnefninu sem
spænskumælandi hópar gáfu
henni það er „La Matadora" eða
morðkvendið. Móður sinni lýsti
hún sem „algerri tík" og grobbaði
sig að því að hún hefði ekki átt í
miklum erfiðleikum með að kýla
hana niður. Henni virtist þó hafa
lflcað ágætlega við föður sinn. Þeir
sem þekktu til fjölskyldunnar
sögðu þó að foreldrarnir hefðu gert
nær hvað sem er til að gleðja einka-
dóttur sína.
Hvernig leit ég út?
Allt málið virtist vera eins og
einn allsherjar sirkus í augum
Söruh. Aldrei sýndi hún nein merki
iðrunar eða söknuðar. „Verður
réttarhöldunum sjónvarpað, er ég í
sjónvarpinu, hvernig leit ég út í
sjónvarpinu?" voru þær spurningar
sem henni virtust helst liggja á
hjarta. Hún fékk 10 ára dóm án
möguleika á reynslulausn og
afplánar dóm á neðstu hæð fang-
elsisins þar sem hún sagði að þá
sem myrða foreldra sína ætti aldrei
að setja á efri hæðir. Þeir ættu
mikla hættu á að falla til jarðar í
óðagoti.
í sjónvarpinu Dauði
foreldranna virtist ekki
vekja áhuga Söruh. Hún
nautþess hins vegar að
vera í sjónvarpinu.
Shirin Gul er talin einn af afkastamestu kvenfj öldamorðingj um sögunnar
Afgönsk húsmóðir og fjöldamorðingi
Afganska húsmóðirin Shirin
Gul er nú talin ein af áhugaverð-
ustu kvenfjöldamorðingjum
sögunnar. Gul er 39 ára gömul
og hefur hún játað að hafa myrt
27 karlmenn á ferli sínum, hið
minnsta. í kjallara hýbýla
hennar fundust 4 lík og í bak-
garðinum voru 18 til viðbótar
auk þess sem sex menn til við-
bótar hafa fundist í nágrenni við
heimiii hennar. Á meðal þeirra
voru jarðneskar leyfar fyrsta eig-
inmanns hennar. Flest líkin eru
talin vera frá því árið 2001 þegar
talíbanastjórnin þurfti að víkja.
Flest fórnarlömb hennar voru
leigubflstjórar en ástmaður
hennar Rahmatullah og 18 ára
sonur sáu svo um að koma bfl-
unum í verð. Lítið var hægt að
rannsaka hvörf þessara manna
vegna ástandsins í landinu á
þeim tíma sem þeir hurfu. Fyrsti
eiginmaður hennar er talinn
hafa verið upphafsmaður þessa
en hann fékk að bragða á sínu
eigin meðali þegar Shirin kynnt-
ist Rahmatullah sem hún segir
hafa verið ástina í lífi sínu. Hún,
elskhuginn og
sonurinn hafa
öll verið dæmd
til dauða.
Húsmóðir og morðin
Shirin Gul hefur játað ai
hafa myrt 27 karlmenn,
hið minnsta.