Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 Sport DV Þorvalduraft- uríboltann Þorvaldur Mak- an Sigbjömsson, knattspymumaður fráAkureyri, hefur ákveðið að taka firam skóna á nýjan leik eftir að hann hætti sumarið 2004. Hann fékk mígreniskast í leik með Fram gegn Fylki sumar- ið 2004 og var ráðlagt af læknum að hætta þar sem áfr amhaldandi knattspymu- iðkun gæti verið honum lífs- hættuleg. En hann hefur ákveðið að ganga til liðs við Val og mun stunda íþróttina í samráði við lækna sína. Laurenfráút tímabilið Arsenal hefur orð- ið fyrir enn einu áfall- inu því í ljós er komið að Lauren verður fr á til loka tímabilsins vegna hnémeiðsla. Hann gekkst undir aðgerð á fimmtudag þar sem þetta kom í ljós. Fyrir em þeir Pascal Cygan, Ashley Cole, Gael Clichy og Kerrea Gilbert á sjúkralista félagsins og auk þess hefur Sol Campbell ver- ið gefið vikufrí til að ná átt- um eftir slaka frammistöðu með liðinu að undanfömu. AF ÞESSU Laugardagur 10.40 EM í handbolta: Þýska- land-Rússland f leik um fimmta sætið. 13.10 EM í handbolta: Und- anúrslit, Frakkland-Króatia. (J^ 14.40 Á vellinum með Snorra Má á Enska boltanum. Hitað upp fyrir leiki helgarinnar sem verða allir í beinni út- sendingu. 15.50 EM í handbolta: Und- anúrslit, Spánn-Danmörk. 17.25 Hitað upp fyrir Super- bowl á Sýn. Mr (SSj 18.00 ÍBV-Valur í SS-bikar- keppni kvenna. Undanúrslit. 18.50 Real Madrid-Espanyol í spænsku deildinn í beinni á Sýn. Sunnudagur 12.25 EM í handbolta: Leikið um bronsverðlaun. 13.50 Inter-Chievo í itölsku deildinni í beinni á Sýn. 14.00 EM í handbolta: Hitað upp fyrir úrslitaleikinn á RÚV. 14.50 EM í handbolta: Úr- slitaleikur. m> 17.00 Undanúrslit í bikar- keppni kvenna í körfubolta. Keflavík-Grindavík og IS-Breiðablik. E 17.50 Barcelona-Atletico Ma- drid í spænsku deildinni í beinni á Sýn. 19.15 Undanúrslit í bikar- keppni karla í körfubolta. Grindavík-Skallagrímur og Keflavík-Njarðvík. (2 20.30 Helgaruppgjör á Enska boltanum. —22.00 Road tothe Superbowl á Sýn. 23.00 Úrslitaleikur NFL-deild- arinnar, Superbowl, í beinni útsendingu á Sýn. Pitts- burgh-Seattle í Detroit. Roll- ing Stones í hálfleik. i Vilhjálmur Halldórsson hefur ákveðið að gefa ekki framar kost á sér í ís- lenska landsliðið í handbolta á meðan Viggó Sigurðsson er við stjórnvölinn. Hann var skyndilega kallaður til leiks skömmu áður en EM í Sviss hófst en var svo aftur sendur heim eftir að riðlakeppninni lauk. Hann segir lé- leg samskipti helstu ástæðuna fyrir ákvörðun sinni. kk slæma Ósáttur VilhjálmurHall- dórsson er ósáttur við Viggó Sigurðsson landsliðs- þjálfara. Hér sjást þeir sam- an í einum æfingaleikjanna gegn Noregisem fóru fram hér á landi I lok nóvember. „Ég mun ekki gefa kost á mér í landsliðið á nýjan leik á meðan „Ég et Otðinn pittoð- Viggó verður við stjórn," sagði Vilhjálmur Halldórsson, hand- knattleiksmaður með danska liðinu Skjern, við DV Sport í gær. Vilhjálmur er ósáttur við þá meðhöndlun sem Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari og Handknattleikssambandið hafa sýnt honum, ekki síst í nýliðnu Evrópumeistaramóti í Sviss. „Þetta var mjög skrýtin upplif- un,“ sagði Vilhjálmur um reynslu sína af þátttöku sinni á EM í Sviss. Hann var kallaður inn í liðið á síð- ustu stundu þegar endanlega varð ljóst að Jaliesky Garcia gæti ekki leikið með liðinu vegna meiðsla. Þá var hann staddur á Kanaríeyjum með liði sínu í æfingaferð en kastaði öllu frá sér og lagði af stað til Sviss. Slæm samskipti „Ég kem og spila samtals 10-12 mínútur í þessum tveimur leikjum, gegn Dönum og Ungverjum. Þegar við erum svo að skipta um hótel og liðið er á leiðinni til St. Gallen þar sem milliriðlakeppnin fór fram kemur Viggó að máli við mig og seg- ir að hann sé tilneyddur til að senda mig heim og sækja Ásgeir í liðið. Það var ekki vitlaust hjá honum enda kom það í ljós eftir meiðsli Einars og Alexanders. Þetta snerist meira um hvernig að þessu var staðið öllu saman." í viðtali við Vilhjálm sem birtist í staðarblaði í Skjern, í Danmörku í gær kemur fram að Vilhjálmur hafi verið ósáttur við hversu lítið hann hafi spilað og hvernig Viggó hafi hrópað á hann þegar hann spilaði. „Ég veit ekki hvort mín danska sé nógu góð til að ég nái að koma þessu rétt frá mér,“ sagði Vilhjálm- ur á þessári með- höndlun ur um viðtalið. „En það er rétt, Viggó lætur mann vissulega heyra það en hann er sjálfsagt ekki að skamma mig meira en aðra. Hann lætur alla heyra það, fyrirliðann líka. En það sem ég var að reyna að koma til skila er að Viggó talar mjög lítið við mig allan þennan tíma. Hann býður mig velkominn þegar ég mæti í morgunmatinn á föstu- dagsmorgninum og svo er það eina sem ég fæ að heyra frá honum í þessum leikjum þessi skot af hliðar- línunni. Það síðasta sem ég fæ svo að heyra er þegar hann ákveður að senda mig heim." Nafnið gleymdist Vilhjálmur segir þó að þetta eitt búi að baki ákvörðun hans. „Þetta er röð atvika. Til dæmis var eitt atvik þar sem landsliðshópur- inn var tilkynntur fyrir æfingaleik í fyrra, að ég held gegn Færeyjum, og þá gleymdist nafnið mitt á list- anum. Þetta birtist svo í öllum blöðum og þurfti ég sjálfur að ganga eftir skýringum á þessu. Ég fékk ekki einu sinni símtal frá Ein- ari Þorvarðarsyni þar sem ég er beðinn afsökunar á þessu.“ Hann segist ætla að standa við ákvörðun sína, sama hvað gerist. „Ég er orðinn pirraður á þessari meðhöndlun. Sérstaklega þegar ég kom heim og hafði aðeins spil- að í 10-12 mínútur og ferðast vegna þessa í þrettán klukkú- stundir. Mér var ekki gefinn neinn tími til að komast inn í málin hjá Viggó og þegar ég kem til Sviss spyr hann mig ekki einu sinni í hvernig formi ég er. Mér finnst þessi meðhöndlun á mér léleg." eirikurst@idv.is Ársreikningar KSÍ kunngjörðir í gær 61 félag deilir með sér 10,7 milljónum króna af hagnaði KSÍ Knattspymusamband íslands kynnti í gær ársreikninga félagsins fyrir fjölmiðlamönnum þar sem fram kom að tekjur umfram gjöld voru 27 milljónir króna. Ákveðið var að greiða út til þeirra félaga sem tóku þátt í bama- og unglingastarfi í knattspym- unni í landinu og nam sú upphæð 10,7 milljónum króna. Hagnaður KSÍ á árinu var því 16,3 milljónir króna og er eigið fé KSÍ-samstæðunnar nú orð- ið 197,4 milljónir króna. 47 félög fengu fulla greiðslu, alls 200 þúsund krónur, en þau sendu lið í keppnir á vegum KSÍ í yngri aldurs- flokkum beggja kynja. Sjö félög fengu 125 þúsund krónur og sjö til viðbótar 62.500 krónur. Græddu á KB Banka Fyrir rúmu ári keypti KSÍ hlutabréf í KB Banka fyrir 100 milljón- ir króna á genginu 480. Á árinu seldi sambandið bréfin í þremur hlutum á genginu 535-565 en þess má geta að gengi hlutabréfa í KB banka er nú um 900. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði það vera stefnu sambands- ins að selja hlutabréf sem sambandið fjárfestir í þegar ákveðnu takmarki hafi verið náð og það hafi yerið gert. Góð ávöxtun 'bréfanría frafl til að mynda getpþaðkleift^ðborga niður gamlar skuldir, til að mynda vegna byggingar „nýju“ stúkunnar á Laug- ardalsvelli. Langtímaskuldir sam- bandsins vom engar í árslok. Fyrirtækjastúkur KB Banki og Landsbanki hafa þeg- ar tryggt sér aðgengi að sérstökum fyrirtækjastúkum sem verða í nýrri aðstöðu áhorfenda á Laugardalsvell- inum. Greiddu fyrirtækin samtals 60 milljónir króna fyrir fast aðgengi að 200 sætum til ársins 2010. Innangengt verður að aðstöðunni og verður gert vel við gesti fyrirtækjanna, með veit- ingum og fleira þess háttar. Slíkt fyrir- komulag þekkist víða á knattspymu- völlum heimsins. eirikurst@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.