Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 Helgarblað DV Leikarinn Stefán Karl er aö verða heimsfrægur sem Glanni glæpur. Honum berast bréf í stórum stíl enda skipta aðdáend- ur Latabæjar milljónum. 4| Sum bréfin eru furðuleg, ^ eins og t.d. eitt frá munki W nokkrum sem vill yfirgefa I regluna og eyða ævinni með 1 Stefáni, og fangar hafa tilnefnt hann heiðursfanga rati hann í steininn. En jjlL bréfin varða einnig SjV Regnbogabörn og W? stefnir í að samtökin ¥ verði alþjóðleg. Millj- / arðafyrirtæki hafa lofað stuðningi en framgangur þessa góða málefnis virð- ist stranda á ónógum styrkjum heima fyrir. Glanni glæpur Stefán segist ekki meðvitað notfæra sér frægð Glanna til að koma Regnbogabörnum á framfæri - það gerist hins vegar óhjákvæmilega með óbeinum hætti. Jk Wjji® f' ifilj t m Leikarinn Stefán Karl Stefánsson er á leið til íslands en hann er búsettur ásamt konu sinni, Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, og börnum í Los Angeles. Stefán kemur 20. febrúar til að leika í 18 til 20 þáttum Latabæjar sem til stendur að taka upp á næstunni. Hann er að pakka. En Stefán Karl, sem er maður ekki einhamur, ætlar ekki einungis að bregða sér í búninginn hans Glanna glæps, persónunnar sem hann túlkar í Latabæ, heldur ætlar hann að bretta upp ermar. Honum er mikið niðri fyrir. Nú á að rífa upp Regnbogabörn og gera þau sýnilegri. Mikla athygli vakti á fslandi þeg- ar spurðist að Stefán Karl væri að breiða út boðskapinn sem felst í Regnbogabömum sem hann stofn- aði hér heima fyrir nokkrum ámm - samtök sem helga sig baráttunni gegn einelti og því að styðja fórnar- lömb eineltis. Þetta er umræða sem hefur ekki farið hátt í Bandaríkjun- um. Það er því um frumkvöðlastarf að ræða í henni Ameríku. Ekki í lítið ráðist. „Nákvæmlega," segir Stefán. „Sko, ég hafði alltaf einhvers staðar átt í mér þann draum að gaman væri að minnast á þetta við Amerík- ana. En ég þurfti ekkert að gera það. Sökum vinsælda þessa karakters, Robbie Rotten, safnast í kringum mann fólk sem maður vekur hjá áhuga. Það voru hátt í 100 þúsund manns búnir að skoða heimasíð- una mína - síðu sem var var ekki neitt neitt. Þar voru upplýsingar um Regnbogabörn þannig að fólk komst á snoðir um þetta. Svo fór mér að berast tölvupóstur, lfkt og gerðist heima þegar vakningin varð í kjölfar þess að Pálmi Gestsson tók málið upp á heimasíðu sinni." Robbie Rotten gegn einelti Stefán Karl sem Glanni glæpur er orðinn heimsþekktur. Latibær nær nú til 500 milljóna heimila í 48 þjóðlöndum og hefur nær hvarvetna skipað sér í efsta sæti sem vinsælasti sjónvarpsþátturinn. í Bandaríkjunum, þar sem sjón- varpsþáttamarkaður ér risavaxinn, er Latibær í öðru eða þriðja sæti. „Já, vinsældir Latabæjar vaxa grfð- arlega hratt. Stærra batterí en mað- ur í raun gerir sér grein fyrir. Þetta er barnaefni, sjónvarpsþáttur, og þannig vænlegra til vinsælda en bíómyndir. Nær víðar," segir Stefán Karl. Aðspurður segist Stefán Karl ekki hafa neitt leyfi til að nota Robbie Rotten til framdráttar þeirri hugsjón að berjast gegn einelti. „Og ég geri það ekki. En óhjákvæmilega þekkja krakkamir hér mig sem Glanna glæp. Og það er drifskaftið í því að ég get farið og talað við þau eins og ég geri.“ Regnbogabörn vekja athygli úti Þegar aðdáendur Latabæjar höfðu rekið augun í upplýsingar um . Regnbogabörn á síðu Stefáns fóru foreldrar og kennarar að senda honum þakkarbréf. „Mér óx þetta í augum en nokkr- ir kennarar fóm að kasta á milli sín hugmyndum. Ég fylgdist með úr fjarlægð á Netinu og lét kanna hverjir þarna áttu í hlut. Þetta er svo stórt samfélag að maður veit ekki hverju og hverjum er að treysta." Á daginn kom að þetta voru sér- fræðingar, kennarar og háskóla- menntað fólk í félagsfræðum sem hafði tekið sig saman. Á skömmum tíma höfðu 200 manns skráð sig í stuðningshóp. Ég lét undan þrýst- ingi og fór til að halda fyrirlestur. Prófa það." Stefán hittir bandarísk börn Stefán fór til miðríkjanna. „Já, þarna í Kansas - þar sem Fargó er tekin. Þar sem skiýtni framburður- inn er. Heimaslóðir kúrekanna." Verkefnið var verðugt, að sögn Stefáns sem fór í afar sérstakan skóla með erindi sitt. Skólinn er einstaldega lítill, í einhverju minnsta þorpi Bandaríkjanna sem aðeins telur 300 manns - Buncton- skóli í Missouri. Bekkurinn sem Stefán hitti var athyglisverður. Þau höfðu farið í útvarp og sjónvarp og safnað fé fyrir fórnarlömb fellibyls- ins Katrínar. „Jájá, söfnuðu 300 dollurum sem er mikið fyrir svo lítinn bekk. Kenn- arinn þeirra, Elísabet Barkey, hafði hjálpað þeim við þetta en hún hefur notað Latabæ við kennslu í samfé- lagsfræði." 3% atvinnuleysi - 80% undir fátæktarmörkum Að sögn leikarans voru aðstæður allar hinar sérstæðustu. Fjörutíu prósent nemenda í skólanum eiga foreldra í fangelsi. Há glæpatíðni er á þessum stað og gríðarleg eitur- lyfjaneysla í heimahúsum. „Og meðal bama allt niður í níu ára ald- ur. Krakk-neysla. Áttatíu prósent nemenda búa undir fátæktarmörk- um en samt er ekki nema þriggja prósenta atvinnuleysi þarna. Ég hef aldrei á ævi minni staðið andspæn- ist öðmm eins vandræðum og í þessum skóla. En þarna stóð ég sem sagt með þessum krökkum sem vom nákvæmlega eins og aðrir krakkar, til dæmis í öldutúnsskóla. Með bros á vör og höfðu gaman af því að sjá þennan leikara og spjalla við hann." Milljarðafyrirtæki vilja styrkja Rainbow Children Eftir þessa lærdómsríku tilraun fór Stefán að leggja það upp við sitt fólk í samtökunum hvort ekki væri Stórfyrirtækin Gener- al Motors, m&m og Hersey-súkkulaði- verksmiðjurnarhafa Ijáð máls á að styrkja framtakið. nú tímabært að breiða út starfsem- ina. Og nú er í fullum undirbúningi að skipuleggja allsherjar fyrir- lestraferð um öll Bandaríldn. En Stefán leggur á það áherslu að það sé langhlaup, margrá ára verkefni. Þegar hafa stórfýrirtæki ljáð máls á að styrkja fyrirtækið. Stefán nefnir sem dæmi m&m-sælgætis- fyrirtækið, Genef al MotNfsöj; Hers - ey-súkkulaðiverksmiðjurnar. ...... „Mörg stórfýrirtæki hafa gefið vilyrði og vilja styrkja þetta verk- efni. En þau koma eldd inn í þetta fyrr en aJlt er fyrirliggjandi. Þá kem- ur að þessu gamla góða - fjárstuðn- ingur heima við þerinan málaflokk er grátlegur." Sendir stjórnvöldum tóninn Nú er sem þykkni upp í huga hins glaðlynda leikara sem rekur í löngu máli dæmi um að ísland sé meðal ríkustu þjóða heims. Þrátt fyrir það vanti sárlega stuðning. „Við höfum verið að fá þrjár milljónir frá ríkinu á ári. Höfum þurft að segja upp framkvæmda- stjóra vegna fjárskorts. Nú er bara einn starfsmaður þótt um sé að ræða á annað hundrað skjólstæðinga sem þarf að sinna. Við göngumst fyrir fyrirlestraferð- um um land allt og reynum jafri- framt að hafa opið hús í húsakynn- um Regnbogabarna í Hafriarfirði. Jón Páll Hallgrímsson, sem unnið hefur kraftaverk meðal annars með því að opna þennan málaflokk meðal karla á aJdrinum 18 til 25 ára þar sem sjálfsmorðstíðni er há, er í fyrirlestraferð á Akureyri og þarf þá að loka skrifstofunum í Hafnarfirði á meðan. Þetta er ömurlegt." Fjárstuðningur heima af skornum skammti Stefán segir að fjárstuðningur hins opinbera sé ekki í nokkru sam- hengi við þörfina og hina miklu starfsemi sem Regnbogabörn reka. „Við getum ekki endalaust geng- ið á fyrirtæki. Það gekk fyrsta árið. Þetta er skelfilegt. Rfkið er að drepa okkur úr fjársvelti. Má segja það. Morðtilraun. Við höfum hvað eftir annað beðið um peninga. Það sem verður að gera er að taka þessi sam- tök og opna útibú á ísafirði, Akur- eyri og Egilsstöðum." Semingur kemur á Stefán þegar hann er spurður hvort vera kunni að starfsemin flytji einfaldlega af landi brott. „Eins og ég hef oft sagt; þessi samtök munu aldrei deyja þó tt ríkið skíti í buxurnar. Árangurinn er mun meiri en fólk gerir sér grein fyrir. Við höfum verið að sinna fólki sem fer með veggjum. Og hefur ekki farið hátt. En nú munu samtökin verða sýnilegri." Ekkiað reka rokkgrúppu • Stefán segist gjarnan svara spurningum sem að honum beinast þess efnis að ekki fari nú mikið fyrir Regnbogabörnum núna miðað við það sem var þannig að hann sé hvorki að reka rokkgrúppu né „commer-cial" leikhús. „En við höf- um þróað starfsemina og verðum sýnilegri. Þegar ég kem heim. Það er „Munkur nokkur sendi mér bréfog var ansi hrifinn. Hann var tilbúinn að yfirgefa regluna og koma." komið að því að bretta upp ermar." Viðbrögðin sem Stefán og börn- in í Buncton-skólanum í Missouri fengu voru mikil. Málið var tekið upp af þremur útvarpsstöðvum og tveimur sjónvarpsstöðvum og var Qallað um framtakið á fjórum for- síðum dagblaða í Bandaríkjunum. „Þetta var magnað. Við verðum að fylgja þessu eftir heima. Við þurfum að þjálfa upp fólk. Leita fjármagns til að þýða öll þessi gögn yfir á ensku til að Jeggja fram." Frábært tækifæri til að boða heiminum öllum erindið Bretland er að vakna líka og Kanada. Stefáni Karli hefur meðal annars borist bréf og fengið símtal frá aðstoðarmanni skólamálaráð- herra í Kanada. „Já, og Puerto Rico, Argentína ... Regnbogabörn um heim allan. RC - Rainbow Children en allt er þetta á byrjunarstigi og erfitt um vik þegar aðeins einn maður er á skrifstofunni á launum og svo ég í hundrað prósent vinnu annars staðar. Þannig er þetta nán- ast ógjörningur. Það þarf að ráða fólk. Og standa í þessu. Þetta er frá- bært tækifæri sem við megum ekki láta fara forgörðum. Við óskum eft- ir því að fá til liðs við okkur sérfræð- inga og aðra til að hjálpa okkur að nota þetta tækifæri. Þetta eru sam- tök sem ekki er ætlað að græða pen- inga heldur aðeins að eiga nóg til að geta hjálpað þessum lcrökkum og fullorðnum, kennurum og foreldr- um að takast á við þennan vanda." Furðuleg bréf frá föngum og munki Vegur Stefáns Karls í Bandaríkj- unum fer mjög vaxandi. Nokkrar aðdáendasíður hafa verið settar upp og í fyrra fékk hann send 43 þúsund bréf. „Já, þetta eru Bandaríkin. Hér búa 300 milljónir. Munkur nokkur sendi mér bréf og var ansi hrifinn. Hann var tilbúinn að yfirgefa regl- una og koma. Ég veit eiginlega ekki hvað hann vildi gera. Eyða með mér

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.