Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Qupperneq 36
36 LAUCARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006
Helgarblað DV
SAMANBURÐUR
Anna Día Erlingsdóttir íþróttafræðingur og golfleiðbeinandi
leggur áherslu á skemmtun og alvöru þegar hún kennir vatns-
leikfimi. Helgarblaðið hitti hana við kennslu til að forvitnast
um starf hennar og hvort eldri borgarar væru þægir nemendur.
Englnn muniir á eldri
og yngri bnrgurum
„í sjálfu sér er munurinn enginn,"
svarar Anna Día þegar við forvitn-
umst um hvort hún finni mun á að
kenna yngra fólki eða eldri borgurum.
„Auðvitað þarf maður að taka tillit til
mismunandi einstaklinga burt séð frá
aldri. Mér finnst frábært að kenna og
taka þátt í vatnsleikfimi bæði með
yngra og eldra fólki. Það er ekkert eins
gott og að byrja daginn á því að hreyfa
sig vel í vatnsleikfimi sama með
hverjum maður er."
Dugleg og jákvæð
„Ég kenni vatnsleikfimi fyrir há-
degi í Mýrinni í Garðabæ," útskýrir
hún stolt og heldur áfram: „Árið 2000
stofnaði ég Golfleikjaskólann ehf.
sem sérhæfir sig í að kynna golfíþrótt-
t*. ina fyrir sem flestum. Þar er lögð
áhersla á að æfingar séu í skemmti-
legum leik og í alvöru," útskýrir Anna
Día orkumikil og jákvæð en þessa
dagana er hún verkefnastjóri fyrir
fjáröflunarverkefniö „Bleiki bikarinn"
sem gengur út á að fá sem flesta golf-
klúbba landsins til að haida samnefnt
golfmót. „Allur ágóði rennur óskiptur
til brjóstakrabbameinsrannsókna á
rannsóknastofú Krabbameinsfélags-
ins í sameinda- og frumulífffæði."
Ávextir góðir sem millimál
„Góður og nægur svefn er mikil-
vægur. Það besta sem ég geri er að fara
snemma að sofa, fyrir klukkan ellefu á
kvöldin og vakna fyrir klukkan sjö á
morgnana og drífa mig í vatnsleikfim-
ina. Nauðsynlegt er að gefa sér tíma til
þess að útbúa góðan og hollan mat,
setjast niður í rólegheitum og njóta
þess að borða. Æskilegt er að nota
ávexti og grænmeti sem millimál.
Mikilvægt er að njóta lífsins og hlakka
til næsta dags og nauðsynlegt er að
gleyma ekki að hugsa um og rækta
sjáfan sig og hugsa vel um bömin sín,
maka og sína nánustu," segir hún ljúf
og bætir við í lokin að ekki megi
gleyma því að stundum er gott að gera
ekki neitt og láta hugann reika.
elly@dv.is
Hraust,jákvæð & með-
vituð „Það er engin heilsa
| án geðheilsu. Andlegt og
llkamlegt jafnvægi þarfað
vera til staðar til þess að
manni llði sem best."
fSpáðíÖnnuDíu
Fædd: 04. nóvember 1957 - SPORÐDREKI
Anna Día vill allt eða ekkert ef marka
má stjörnukort hennar (góður kost-
I ur). Hennar lífsregla er sú að ef mað-
I ur er að gera eitthvað merkilegt þá
| skuli maður sökkva sér á kaf í það.
I Hér er á ferðinnl athafnakona sem er
viljasterk og með eindæm-
um klár í því að grípa hvert
tækifæri og fylgja eftir hugboð-
um sínum. Einnig er gaman að sjá að
hún laðast að spennandi ævintýrum
og þekkingu og svo er hún alltaf vak
því að finna
nýjar uppsprettur. Einmitt þess
vegna er hún virk í golfkennslunni og
þeim óteljandi verkefnum sem henni
hafa verið falin.
Sterk og raunsæ
Ljónið (Krístján) er ákveðið í
sambandi við vogina (Þorgerði)
sem er sterk og raunsæ. Vogin býr
yfir öflugum hemaðaranda sem
hún nýtir aðeins þegar um mikil-
væg mál er að ræða og það lfkar
ljóninuvel.
Vinátta þessara einstaklinga
sem um ræðir er gulls ígildi en til
að hafa stjóm á aðstæðum dregur
vogin sig oftast nær í hlé þegar
hitnar í hamsi
sjaldan því hér em á ferðinni tveir
þroskaðir einstaklingar sem elska
hvort annað.
Þau halda áfram að vinna
markvisst samkvæmt eigin
draumum og stefiia jafnframt
stöðugt að því að efla hvort annað.
Þau taka sameinuð á móti nútím-
anum eins og hann birtist og em
fær um að sjá það failega sem til-
veran færir
þeim og
- rómantískur
- glæsilegur
- kröfuharður
- hátt sjálfsmat
- formlegur & hlýr
- skemmtilegur
- býryfir innri ró & samræmi
- tælandi, munaðarleg & aðlaðandi
- listræn & siðfáguð
- reynist auðvelt að ná fétagstegum
samböndum
- samvinnuþýð
-sterk
Laugardagur
„Á laugardaginn er ég í fríi og má því
gera allt sem mér dettur í hug. Um
morguninn ætla ég þvi að skella mér í
Vesturbæjarlaugina, en að því loknu
fer ég í fjölskyldumáltíð, þar sem allir
eiga að koma með eitthvað," segir
Bergþór Pálsson söngvari með meiru
og bætir við: „Eftir hádegið er aldrei að
vita nema ég drífi mig á Kalla á þakinu
því að það er eina barnasýningin í
bænum sem ég á eftir að sjá. Barna-
sýningar þykja mér sérlega skemmti-
legar. Ég er reyndar að læra hlutverk í
einni slíkri á sænsku, Undir dreka-
væng, eftir Misti Þorkelsdóttur og
MessíönuTómasdóttur, sem verður
farið með til Finnlands í mars. Ég
hlakka mikið til, því að þetta hefur ver-
ið sýnt yfir sextíu sinnum hér á landi
og er einstaklega ánægjulegt verk-
efni."
Heiðra minningu Þorstelns Gytfasonar
„Eftir sýninguna á laugardeginum ætl-
um við koma nokkur saman og heiðra
minningu Þorsteins Gylfasonar sem
lést í fyrra. Garðar Cortes ætlar að
syngja Vorið eftir Grieg í þýðingu Þor-
steins," segir Bergþór og Ijómar við
frásögnina: „Þetta verður svo
skemmtilegt."
Síðan set ég eitthvað gott í ofninn,"
segir hann og heldur áfram eftir smá
umhugsun: „Sennilega verður það
kjúklingur."
Sunnudagur
„Það er frumsýning á Öskubusku eftir
Rossini á sunnudaginn. Því fylgir mikil
tilhlökkun en þó léttur fiðringur i mag-
anum," svarar Bergþór þegar við biðj-
um hann um að útlista hvað sunnu-
dagurinn færir honum. „Einn skemmti-
legasti þáttur starfsins eru einmitt síð-
ustu metrarnir fyrir stórverkefni því þá
þarf maður að sjá til þess að vera f sínu
besta formi og því fylgir mikið dekur
og lúxus."
öskubuska er fjörug ópera
„Grunnurinn er þá oftast góður svefn
og Vesturbæjarlaugin. Raunar held ég
að mörg vandamál mannkynsins leyst-
ust sjálfkrafa, ef þetta tvennt væri í
lagi, svefn og hreyfing. Að því loknu
fer ég að setja í gang, humma og fara í
gegnum hlutverkið, texta, innkomur á
svið, fataskipti og þess háttar. Svo
mæti ég í Óperuna um sexleytið, dríf
mig í sturtu og fæ meðhöndlun hjá
skvísunum, greiðslu og smink. Eftir
það er bara að einbeita sér og
skemmta sér. Öskubuska erfeikilega
fjörug ópera, hún byggir á sögunni
sem allir þekkja. Söngvararnir eru hver
öðrum betri og ýmsir sem koma frá-
bærlega á óvart, eiginlega get ég ekki
tekið einn fram yfir annan því að hér er
aðeins um toppfólk að ræða. Eftir sýn-
inguna verður svo húllumhæ á svölum
Óperunnar með freyðivíni og konfekti.
Sódavatn fyrir mig takk, en ég mun
áreiðanlega taka vel til matar míns af
smákökunum. Þetta er indælt líf."
Frumsýning framundan„/( Sunnudags-
morgnum erdásamieg að fara fgöngutúra
og ég býst við að skella mérfeinn laufléttan
mn að Elliðaám eða út á Seltjarnarnes "